„Ætli ég verði ekki hér það sem eftir er“

Helgi Styr­kárs­son segir að hann muni lík­lega lifa ævina út í Svíþjóð þótt honum lyndi ekki vel við nágranna sína eða Svía almennt. Hann segir að það hafi verið létt­ara að lesa bók Auðar systur sinnar um ævi hans en hann hafi átt von á.

„Ætli ég verði ekki hér það sem eftir er“
Væri dauður hefði hann ekki stungið af Bæði Auður og Helgi eru þeirrar skoð­unar að för Helga til Sví­þjóðar hafi bjargað lífi hans. Mynd: Auður Styrkársdóttir

„Bókin hennar systur minnar er alveg ágæt. Í flestum til­fellum er hún alveg kór­rétt, alveg nákvæm­lega eins og hlut­irnir voru, þó að mig minni nú að sumt sé svo­lítið öðru­vísi. Ég get sam­þykkt flest allt sem þarna stendur.“ Þetta segir Helgi Styr­kárs­son um bók­ina Helga saga, sem systir hans Auður Styr­kárs­dóttir skrif­aði og kom út á síð­asta ári. Í bók­inni er fjallað um líf Helga og ára­langa glímu hans við geð­klofa og fíkn og sam­fylgd þeirra systk­ina í líf­inu í þeim skugga.

„Ég kalla hana Auju“

Eins og kemur fram í við­tali við Auði hér í blað­inu hefur Helgi glímt við geð­sjúk­dóma frá unga aldri. Í bók­inni rekur Auður lífs­hlaup Helga og gengur oft og tíðum nærri bæði honum og sér. Auður fór út síð­ast­liðið sumar til Gauta­borgar og sýndi …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár