Vilja nota kopar á kvíar í Arnarfirði – eitrað og jafnvel skaðlegt segir Hafró

Að mati Haf­rann­sókna­stofn­unar er það áhyggju­efni og aft­ur­för miðað við stefnu ann­arra landa að verið sé að hefja notkun á ásætu­vörnum sem inni­halda kopar í sjó­kvía­eldi hér á landi.

Nót húðuð með koparoxíði rétt eins og Arctic Sea Farm vill gera í Arnarfirði.
Nót húðuð með kop­aroxíði rétt eins og Arctic Sea Farm vill gera í Arn­ar­firði.

Skipu­lags­stofnun hefur ákveðið að lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Sea Farm, þurfi að láta meta umhverf­is­á­hrif áforma sinna um að nota kopar í svoköll­uðum ásætu­vörnum á eld­is­svæðum í Arn­ar­firði.

Umhverf­is­stofnun, Ísa­fjarð­ar­bær og Vest­ur­byggð töldu ekki þörf á slíku mati en Haf­rann­sókn­ar­stofnun mælti ein­dregið með því enda kopar eitr­aður málmur sem safn­ast upp í umhverf­inu og getur haft skað­leg áhrif á líf­ríki. Stofn­unin benti m.a. á umsögn sinni um málið að erlendis hefur notkun ásætu­varna með kop­aroxíði víða verið hætt. Í umsögn­inni er enn­fremur rifjað upp að Arctic Sea Farm hafi um tíma notað slíkar varnir hér á landi í leyf­is­leysi.

[adspot]

Ásætur eru þær líf­verur kall­aðar sem safn­ast upp á hlutum í haf­inu, s.s. á eld­iskvíum. Um er m.a. að ræða ýmsa þör­unga og hrygg­leys­ingja. Kopar drepur dýr og þör­unga og virkar þess vegna sem ásætu­vörn. Hafró segir að allt bendi til þess að kopar sé skað­legur umhverf­inu og segir að um það hafi verið fjallað í mörgum rann­sóknum. Ásætu­varnir hafa ekki aðeins áhrif á þær líf­verur sem stefnt er að því að verj­ast. Þannig hafi rann­sóknir sýnt að á svæðum í kringum kop­arkvíar hafa líf­verur, til dæmis humrar og ígul­ker, safnað þung­málm­inum í vefi sína.

Leyfi Arctic Sea Farm eru bundin við þrjú svæði; Lækj­ar­bót, Hvestu­dal og Trostans­fjörð. Í eld­inu hafa ásætur hingað til verið fjar­lægðar með reglu­legum háþrýsti­þvotti á eld­isnótum með til­heyr­andi álagi á netin sem slitna fljótar og eykur það að mati fyr­ir­tæk­is­ins líkur á slysa­slepp­ingum. Mark­miðið með því að nota ásætu­varnir sem inni­halda kop­aroxíð sé að minnka þörf á þvotti á eld­isnótum og draga þannig úr álagi á nætur.

Í grein­ar­gerð sem fyr­ir­tækið skil­aði til Skipu­lags­stofn­unar vegna máls­ins segir að með notkun kop­ar­á­sætu­varna sé ein­ungis þörf á þvotti nóta í sjó með lág­þrýst­ingi á 8-12 mán­aða fresti en nætur án kop­aroxíð­húð­unar þurfi að þvo á 6 vikna fresti. Þegar slátrað hefur verið úr kví­unum verði nætur þrifnar í landi og lit­aðar aftur með kop­aroxíð fyrir næstu notkun. Allt vatn sem falli til muni fara í gegnum vatns­hreinsi­kerfi þar sem grófur úrgangur verði síaður frá og síðan í annað ferli þar sem málmar og önnur efni verði felld út og vatnið fari svo í gegnum óson­kerfi þar sem það verður dauð­hreinsað. Ásætu­vörnin sem stefnt er að því að nota heitir Netwax E5 Greenline.

Vonlaus ályktun

Hafró sagði í umsögn sinni um málið að í grein­ar­gerð ASF væri ekki fjallað um hvaða áhrif kopar geti haft á botn­dýra­líf. Hins vegar sé fjallað almennt um eitr­un­ar­á­hrif kop­ars sem fyr­ir­tækið skýri „rétti­lega frá“ að séu til staðar. „Þó dregur fram­kvæmd­ar­að­ili þá ályktun að notkun kop­aroxíðs fylgi ekki veru­leg nei­kvæð umhverf­is­á­hrif,“ skrifa sér­fræð­ingar Hafró. „Þetta er von­laust að styðja nema vita umfang kop­ar­los­un­ar­innar.“

Fram kemur að ef í ljós komi að kopar safn­ist upp í botns­eti fer yfir við­mið­un­ar­mörk sem er lýst í vökt­un­ar­á­ætlun og rekja megi til notk­unar á eld­isnótum með ásætu­vörn sem inni­halda kopar muni ASF grípa til mót­væg­is­að­gerða. Mót­væg­is­að­gerðir fælust þá í að lengja hvíld­ar­tíma, færa kvíar innan eld­is­svæðis, að fækka seiðum eða að hætt verði að nota svæðið. „Ekki er ljóst hvernig lengdur hvíld­ar­tími eða fækkun á útsettum seiðum getur verið mót­væg­is­að­gerð gegn upp­söfnun kop­ars úr ásætu­vörnum í botns­eti,“ bendir Hafró á. „Séu kvía­stæði færð til innan eld­is­svæðis er verið að dreifa úr eitr­un­ar­á­hrifum af hálfu kop­ars­ins. Koparinn eyð­ist ekki upp heldur safn­ast saman og því er ólík­legt að þessar mót­væg­is­að­gerðir geri mikið fyrir umhverfið. Besta mót­væg­is­að­gerðin er að hætta notkun kop­ars.“

Að mati Haf­rann­sókna­stofn­unar er það áhyggju­efni og aft­ur­för miðað við stefnu ann­arra landa að verið sé að hefja notkun á ásætu­vörnum sem inni­halda kopar hér á landi.

Að mati Arctic Sea Farm fylgja notkun kop­ar­á­sætu­varna ekki veru­leg nei­kvæð umhverf­is­á­hrif og því eigi breyt­ing á þann veg að nota slíkt ekki að vera háð mati á umhverf­is­á­hrifum. Þessu er Haf­rann­sókn­ar­stofnun algjör­lega ósam­mála og segir þessa ályktun fyr­ir­tæk­is­ins „í algerri mót­sögn við stöðu þekk­ingar um áhrif kop­ars á umhverfið“. Þá kemur einnig fram í sam­an­tekt til­kynn­ingar ASF að „til að lág­marka enn fremur umhverf­is­á­hrif ásamt því að bæta dýra­vel­ferð óskar Arctic Sea Farm því eftir heim­ild í starfs­leyfi til að nota ásætu­varnir sem inni­halda kop­aroxíð á eld­is­svæðum sínum.“ Haf­rann­sókna­stofnun seg­ist draga stór­lega í efa að eitr­aður þung­málmur eins og kopar geti dregið úr eða lág­markað umhverf­is­á­hrif á nokkurn hátt. „Ef fram­kvæmd­ar­að­ili telur að kop­aroxíð geti dregið úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum þarf hann að skýra það frekar og vitna í rann­sóknir sem styðja mál hans.“

[adspot]

Haf­rann­sókn­ar­stofnun segir mikla óvissu um áhrif kop­ars, lyfja­með­höndl­unar gegn lúsum og stytt­ingu hvíld­ar­tíma milli eld­is­lota á annað líf­ríki en eld­is­lax sem og sam­virk­andi áhrif þess­ara þátta. „Ferli leyf­is­veit­inga í sjó­kvía­eldi hér á Íslandi er orðið þannig að upp­haf­lega fram­kvæmdin sem sótt er um fer í mat á umhverf­is­á­hrifum en tekur svo breyt­ingum eftir á í smærri skrefum,“ segja sér­fræð­ingar Hafró. „Þannig hafa verið að koma upp beiðnir um stytt­ingu hvíld­ar­tíma milli eld­is­lota og nú notkun kop­aroxíðs sem ásætu­vörn. Einnig hafa komið upp all nokkur til­felli á Vest­fjörðum þar sem notkun á lyfjum gegn laxa- og fiski­lús hefur verið heim­iluð. Þessar breyt­ingar, stytt­ing hvíld­ar­tíma, notk­unar ásætu­varna og lyfja­með­höndlun í sjó­kvía­eldi hafa ekki farið í gegnum mat á umhverf­is­á­hrifum þó þær séu, að mati Haf­rann­sókna­stofn­unar, þær breyt­ingar sem lík­lega hafa hvað mest umhverf­is­á­hrif í för með sér m.t.t. þeirra þátta sem tengj­ast starfs­sviði stofn­un­ar­innar.“

Að þessu öllu sögðu telur Haf­rann­sókn­ar­stofnun að notkun kop­ar­á­sætu­varna á eld­is­svæðum Arctic Sea Farm í Arn­ar­firði skuli háð mati á umhverf­is­á­hrifum.

Nægileg grein gerð fyrir framkvæmd

Skipu­lags- og umhverf­is­ráð Vest­ur­byggðar telur hins vegar að í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins sé gerð full­nægj­andi grein fyrir fyr­ir­hug­uðum áformum og umhverf­is­á­hrifum og að fram­kvæmdin eigi ekki að vera háð mati á umhverf­is­á­hrifum.

Skipu­lags- og mann­virkja­nefnd Ísa­fjarð­ar­bæjar telur sömu­leiðis að nægj­an­lega sé gerð grein fyrir fram­kvæmd­inni í fram­lögðum gögnum fram­kvæmda­að­ila og að fram­kvæmdin kalli ekki á umhverf­is­mat.

Umhverf­is­stofnun telur áhrif hinnar fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmdar liggja ljós fyrir í til­kynn­ingu Arctic Sea Farm til Skipu­lags­stofn­unar og að ferli umhverf­is­mats myndi í þessu til­felli ekki varpa skýr­ari mynd á áhrif starf­sem­innar á umhverfið. „Með til­liti til umfangs, eðlis og stað­setn­ingar fram­kvæmdar, að því gefnu að starf­semin upp­fylli þau skil­yrði sem sett verða í breyttu starfs­leyfi og verði byggð á bestu aðgengi­legu tækni telur Umhverf­is­stofnun ekki lík­legt að hún hafi í för með sér umtals­verð umhverf­is­á­hrif og sé því ekki háð mati á umhverf­is­á­hrifum.“

Það var sömu­leiðis nið­ur­staða Heil­brigð­is­eft­ir­lits Vest­fjarða.

Krefjast aðstæður í Arnarfirði

Skipu­lags­stofnun tekur hins vegar undir með Haf­rann­sókn­ar­stofnun í ákvörðun sinni og segir það nið­ur­stöðu sína að fyr­ir­huguð fram­kvæmd sé lík­leg til að hafa í för með sér umtals­verð umhverf­is­á­hrif og skuli því háð mati á umhverf­is­á­hrifum.

„Lífríki á botni Arn­ar­fjarðar lifir við krefj­andi aðstæður vegna þrösk­uldar í mynni fjarð­ar­ins auk þess sem það er undir álagi vegna los­unar líf­ræns úrgangs frá fisk­eldi og ítrek­aðrar notk­unar lúsa­lyfja,“ segir í ákvörðun stofn­un­ar­innar. „Notkun kop­ars í sjó­kvíum bætir við nýjum álags­þætti á botn­dýra­líf fjarð­ar­ins en kopar getur haft langvar­andi eitr­un­ar­á­hrif á líf­verur og er mjög eitr­aður þör­ungum og hrygg­leys­ingjum. Með til­liti til eitr­un­ar­á­hrifa kop­ars er langvar­andi notkun ásætu­varna sem inni­halda kopar lík­leg til að stuðla að því að ástand vatns­hlots­ins Arn­ar­fjarðar versni og að umhverf­is­mark­miðum verði ekki náð. Ekki er víst að vöktun komi í veg fyrir upp­söfnun kop­ars í firð­inum og óaft­ur­kræf skað­leg áhrif á líf­ríki fjarð­ar­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár