Borgarlínan „lykilþáttur“ í samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins

Höf­uð­borg­ar­svæðið, sem með­al­stór nor­ræn borg, er í sam­keppni við aðrar slíkar á Norð­ur­löndum um íbúa, bæði íslenska og erlenda. Hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi sem gefur mögu­leika á þéttri borg­ar­byggð er þar „lyk­il­þáttur“ segir Davíð Þor­láks­son.

Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
Davíð Þor­láks­son er fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna ohf. Mynd: Mynd: Arnar Þór

Davíð Þor­láks­son fram­kvæmda­stjóri opin­bera hluta­fé­lags­ins Betri sam­gangna, sem heldur utan um fram­kvæmdir og fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að upp­bygg­ing hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé „lyk­il­þáttur“ í því að auka sam­keppn­is­hæfni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins við aðrar sam­bæri­legar borgir á Norð­ur­lönd­unum.

„Borg­ar­línan er ekki bara sam­göngu­verk­efni, þetta er umbreyt­ing­ar­verk­efni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, borg­ar­um­breyt­ing­ar­verk­efni,“ segir Davíð, sem ræddi við blaða­mann um ýmis verk­efni sem standa fyrir dyrum hjá Betri sam­göngum í aðdrag­anda jóla.

„Ég held að við þurfum að hugsa meira þannig að það er bara ein borg á Íslandi og það er höf­uð­borg­ar­svæðið, ekki bara Reykja­vík. Við þurfum að horfa á þetta allt saman, líta á þetta allt sem eina borg og gera okkur grein fyrir því að við erum í heil­mik­illi sam­keppni um fólk og sér í lagi unga fólkið okkar. Nýir íbúar, börn sem vaxa úr grasi eða inn­flytj­endur og Íslend­ingar sem koma aftur heim, þetta fólk er hag­vöxtur. Þetta er það sem drífur áfram hag­vöxt, það er nýtt fólk. Það er lyk­il­at­riði, og sér­stak­lega núna þegar barn­eignum fer fækk­andi, er mik­il­vægt að við löðum til okkar fólk, bæði inn­flytj­endur og Íslend­inga sem hafa flutt út, því það er það sem drífur áfram hag­kerfið okkar,“ segir Davíð.

[adspot]

„Borg­ar­línan er lyk­il­þáttur í því, að við séum með hágæða­al­menn­ings­sam­göngu­kerfi, sam­bæri­leg við þau sem Íslend­ingar eru vanir að nota sem hafa búið í borgum á Norð­ur­lönd­unum. Þar þurfum við ekk­ert að bera okkur saman við Kaup­manna­höfn, Stokk­hólm og Ósló, ein­hverjar stór­borgir, við getum borið okkur saman við með­al­stórar nor­rænar borgir og höf­uð­borg­ar­svæðið er bara ein af þeim,“ bætir hann við.[links]

Davíð segir höf­uð­borg­ar­svæðið sé með­al­stór nor­ræn borg og í þeim nær öllum séu hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Slíkt kerfi sé til þess fallið að það sé hægt að þétta byggð nálægt stöðv­unum, með­fram lín­unni, „sem dregur úr ferða­tíma og býr til skemmti­legra borg­ar­um­hverfi og það er það umhverfi sem meg­in­þorri ungs fólks alla­vega vill lifa í, í þéttu umhverfi þar sem það getur notað fjöl­breytta ferða­máta“.

Bíllinn verði áfram vinsælastur

Davíð segir að þrátt fyrir að horft sé til þess að ferða­venjur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu breyt­ist með til­komu Borg­ar­línu muni flestir áfram nota einka­bíl­inn.

„Bíllinn verður áfram vin­sæl­asti ferða­mát­inn þrátt fyrir að öll okkar plön gangi eftir en það verður alla­vega til staðar þessi mögu­leiki fyrir mjög margt fólk að nota Borg­ar­lín­una og Strætó líka, sem verður enn betri þegar hann verður kom­inn með Borg­ar­lín­una sem svona hryggjar­stykkið í sér,“ segir Davíð og nefnir að auki fjár­fest­ingu í betri hjóla- og göngu­stígum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Við erum auð­vitað að setja marga millj­arða í þau verk­efni líka svo að sá ferða­máti nýt­ist enn betur. Við erum að sjá gríð­ar­legan vöxt í notkun á þeim ferða­máta og það ger­ist ekki af sjálfu sér, það ger­ist með því að það sé fjár­fest í þessu og menn búi til betri inn­viði því fólk er í eðli sínu skyn­samt, það gerir það sem það telur vera hag­kvæm­ast,“ segir Davíð.

„Ef það er kom­inn ótrú­lega góður ferða­máti sem hentar þér betur en það sem þú not­aðir áður þá mun margt fólk breyta ferða­venjum sínum. Það er reynslan alls staðar, við erum ekk­ert að reyna að finna upp hjólið. Allar borgir í Evrópu sem mér er kunn­ugt um og meira að segja mjög margar borgir í Norður-Ameríku, gamlar bíla­borgir, eru að fara þessa leið, að leggja höf­uð­á­herslu á fjöl­breytta ferða­máta, almenn­ings­sam­göngur, göngu- og hjóla­stíga frekar en gam­al­dags mann­virki fyrir bíla, þó að við séum vissu­lega að fjár­festa mjög mikið í þeim hér,“ segir Davíð einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár