Gjöreyðingaráætlun, elítuskóli, veiran, Zelensky og forríka forsetadóttirin

Þótt enn hafi örlað á eft­ir­köstum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í ár þá var athygli les­enda Kjarnans á öðrum tíð­indum utan úr heimi. Hér eru mest lesnu frétta­skýr­ingar af erlendum vett­vangi á árinu.

5. Gjöreyðingaráætlunin

Í skjala­safni pólska hers­ins er að finna hern­að­ar­á­ætlun frá 1989 þar sem gert var ráð fyrir að hund­ruðum kjarn­orku­sprengja yrði varpað á Danmörku, öllu lífi eytt og landið yrði rústir einar. Skjöl um áætl­un­ina eru nýkomin fram í dags­ljósið.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

4. Uppnám í elítuskólanum og prinsinn hættur

Her­lufs­holm­skól­inn á Sjálandi hefur verið tal­inn fyr­ir­mynd ann­arra skóla í Danmörku, skóli hinna útvöldu og ríku. Ný heim­ilda­mynd svipti hins vegar hul­unni af ýmsu sem tíðkast hefur í skól­anum og setti skóla­starfið í upp­nám.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

3. Næsta afbrigði kórónuveirunnar mun eflaust koma á óvart

Við lærðum margt í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. En við áttum líka enn fjöl­margt eftir ólært. Ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar var gott dæmi um það.

[adspot]Í byrjun febr­úar, þegar tak­mark­anir voru enn í gildi, var því velt upp í frétta­skýr­ingu hvort það yrði sá bjarg­vættur út úr far­aldr­inum sem verið var að óska eftir.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

2. Sex staðreyndir um Zelenskí

Fyrst lék hann for­seta. Svo varð hann for­seti. En að vera for­seti í Úkraínu í dag er ekk­ert grín. Hinn ungi Volodímír Zelenskí hefur sýnt óbilandi föð­ur­lands­ást og stað­festu sem aðrir þjóð­ar­leið­togar mættu taka sér til fyr­ir­myndar.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild hér.

1. Interpol lýsir eftir forríku forsetadótturinni

Hún gæti verið í Portúgal, þrátt fyrir að yfir­völd hafi fryst eignir hennar, þar á meðal þak­íbúð­ina og sveita­setrið. Svo gæti hún verið ein­hvers staðar allt ann­ars staðar, konan sem var sú rík­asta í Afríku en er nú eft­ir­lýst um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár