Uppnám í elítuskólanum og prinsinn hættur

Her­lufs­holm­skól­inn á Sjálandi hefur verið tal­inn fyr­ir­mynd ann­arra skóla í Danmörku, skóli hinna útvöldu og ríku. Ný heim­ilda­mynd svipti hins vegar hul­unni af ýmsu sem tíðkast hefur í skól­anum og nú er skóla­starfið í upp­námi.

Herlufsholmen var áður munkaklaustur en í aldir var þar rekinn skóli.
Her­lufs­hol­men var áður munka­klaustur en í aldir var þar rek­inn skóli. Mynd: Wikipedia

Fimmta maí síð­ast­lið­inn sýndi danska sjón­varps­stöðin TV2 heim­ilda­þátt­inn Her­lufs­holms Hemmelig­heder, Leynd­ar­mál Her­lufs­holms. Þátt­ur­inn vakti gríð­ar­lega athygli og skól­inn, og mál­efni hans, hafa síðan nán­ast dag­lega verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum.

Her­lufs­holm skól­inn er alda­gömul stofnun, hann er elsti og stærsti heima­vist­ar­skóli í Danmörku og saga hans nær aftur til árs­ins 1565. Saga stað­ar­ins er þó mun eldri en árið 1135 var þar stofnað munka­klaustur. Árið 1140 gaf Eríkur III kon­ungur (Erik Lam) út sér­stakt bréf þar sem kveðið var á um ýmis konar rétt­indi til handa klaustr­inu, sem gekk undir nafn­inu Skovkloster. Bréfið er enn til og er elsta varð­veitta hand­skrif­aða skjal sem vitað er um í Danmörku. Á tímum siða­skipt­anna 1536 lagði kóng­ur­inn, sem þá var Kristján III. undir sig klaustrið og land­ar­eign­ina. Munk­arnir fengu þó leyfi til að vera áfram í klaustr­inu en þeir síð­ustu fluttu burt árið 1559.

[adspot]

Makaskipti og stofnun skóla

Eftir að munk­arnir fluttu burtu bauð kóng­ur­inn, Friðrik II hjón­unum Herluf Trolle og Birgitte Gøye klaustrið í maka­skiptum fyrir Hill­erøds­holm, land­svæði á Norður- Sjálandi. Þar reis síðar höllin Frederiks­borg.

Hjónin Herluf og Birgitte höfðu ákveðið að stofna skóla og eftir maka­skiptin við kóng­inn hófu þau und­ir­bún­ing. Skólinn, sem fékk nafnið Her­lufs­holm, tók til starfa árið 1565 eins og áður sagði. Herluf sem var yfir­for­ingi í flota dana­kon­ungs lést skömmu áður en skól­inn tók til starfa en hann hafði særst alvar­lega í sjóorr­ustu gegn Svíum á Eystra­salti fyrr á þessu sama ári. Birgitte varð fyrsti skóla­stjóri hins nýstofn­aða skóla, sem ætl­aður var „adelige og andre ærlige mænds børn“. Vel að merkja ein­ungis drengjum.

Rúmt er um skól­ann og bygg­ing­arnar sem honum til­heyra en land­ar­eignin er um það bil 1050 hekt­arar, mestur hluti þess svæðis skógi vax­inn.

Margt breytt en jafnframt haldið í hefðir

Í upp­hafi var Her­lufs­holm ein­göngu heima­vist­ar­skóli, pilt­arnir bjuggu allir á heima­vist­inni. Í dag er skól­inn heima­vistar- og dag­skóli og nem­endur um 600. Um það bil helm­ingur þeirra býr á heima­vist­inni. Árið 1966, þegar skól­inn hafði starfað í rúm 400 ár, fengu stúlkur aðgang og árið 1985 fengu þær leyfi til að búa á heima­vist­inni.

Yngstu nem­endur eru 13 til 14 ára, sem sé enn í grunn­skóla en að loknu grunn­skóla­prófi geta þeir haldið áfram og lokið stúd­ents­prófi, að jafn­aði 18 ára gamlir.

Þótt margt hafi breyst frá því skól­inn hóf starf­semi er samt mörgum gömlum hefðum fylgt. Nemendum er gert að klæð­ast skóla­bún­ingum, lit­irnir eru tveir, dökk­blár og dökk­grár. Áður fyrr urðu piltar að vera í jökkum í kennslu­stundum og mat­sal, en það er ekki lengur skylda. Stúlkur geta valið um buxur eða pils og jakka eða peysur.

Við sér­stök tæki­færi, árs­há­tíð og þess háttar gilda strangar og ákveðnar reglur um klæða­burð

Meðal þess sem telst til gam­alla hefða við skól­ann eru hinir svo­nefndu svefnsalir, í hverjum skála sofa 20 – 30 nem­endur. Lang­flestir hafa reyndar lítið vinnu­her­bergi til einka­af­nota en þar má ekki sofa.

Skóli útvalinna og ríkra

Það hefur löngum þótt sér­stakur gæða- og virð­ing­ar­stimp­ill að hafa setið í Her­lufs­holm­skól­anum. Þar hafa margir þekktir Danir, af báðum kynjum stundað nám gegnum tíð­ina. Námið er dýrt, árlegt skóla­gjald fyrir nem­anda sem býr á heima­vist­inni sam­svarar um það bil 4,3 millj­ónum íslenskra króna og þar við bæt­ist ýmis kostn­aður.

Glansmyndir og skuggahliðar

Á und­an­förnum árum hafa verið gerðir fjöl­margir sjón­varps- og útvarps­þættir um Her­lufs­holm og lífið þar. Sú mynd sem þar hefur verið dregin upp hefur lang oft­ast verið mjög jákvæð og það er jafn­framt sú ímynd sem skól­inn hefur almennt haft í hugum Dana. Þarna væri eft­ir­sókn­ar­vert að stunda nám, skóla­brag­ur­inn allur annar og betri en í flestum öðrum skólum. Námið væri góð und­ir­staða hvaða leið sem nem­endur veldu.

En, engin er rós án þyrna og í heim­ilda­þætt­inum „Her­lufs­holms Hemmelig­heder“ var dregin upp önnur, og dekkri, mynd af líf­inu í þessum þekkta skóla.

Ekki er ofmælt að þátt­ur­inn hafi vakið mikla athygli í Danmörku. Þátta­gerð­ar­fólkið hafði kafað djúpt og lagt mikla vinnu í verkið, vit­andi að öllu skipti að farið væri rétt með og á bak við allt sem fram kæmi væru pott­þéttar upp­lýs­ingar. Það hefur enda sýnt sig að eng­inn hefur reynt að halda því fram að það sem fram kom í þætt­inum væri ekki allt sann­leik­anum sam­kvæmt.

[adspot]

Einelti, kyn­ferð­is­leg áreitni og margs konar ofbeldi virð­ist hafa við­geng­ist í skól­anum um ára­bil, kannski um aldir. Svo virð­ist sem eng­inn af stjórn­endum skól­ans hafi hreyft hönd né fót til að sporna gegn því sem tíðk­að­ist í skól­anum, þótt margir hafi vitað af ástand­inu. Eldri nem­endur und­ir­ok­uðu þá yngri og létu þá þjóna sér að vild.

Fyrst var rektorinn látinn fjúka og svo stjórnin

Tveimur dögum eftir að fyrr­nefndur þáttur var sýndur í sjón­varpi var rekt­or­inn lát­inn fjúka. Sérstök eft­ir­lits­nefnd sem starfar á vegum mennta­mála­yf­ir­valda hafði, fyrir mörgum mán­uðum, fengið veður af gerð sjón­varps­þátt­ar­ins og hóf þá rann­sókn á skóla­starf­inu. Drög að skýrslu nefnd­ar­innar voru gerð opin­ber fyrir nokkrum dögum og þar var allt stað­fest sem komið hafði fram í sjón­varps­þætt­inum. Í fram­haldi af þessu sagði skóla­nefndin af sér. Fram hefur komið að lík­legt sé að árlegur styrkur sem skól­inn hefur fengið frá rík­inu verði felldur niður, að minnsta kosti tíma­bundið, en hann skiptir veru­legu máli fyrir rekst­ur­inn.

Nýr yfir­maður skól­ans er Jon Stokholm, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Hann sagði í við­tali mikið verk fyrir höndum að vinna úr málum skól­ans og end­ur­reisa orð­spor hans. Hann nefndi sér­stak­lega svefn­skálana og að kannski væri rétt að leggja þá af. Það yrði skoðað nánar. Honum hefur verið falið að velja og skipa nýja skóla­nefnd.

Krónprinsparið hikandi

Athygli danskra fjöl­miðla vegna þessa máls hefur ekki hvað síst beint að Friðriki krón­prins og Mary. Elsta barn þeirra hjóna, Christian (f. 2005) hóf nám í fyrsta bekk fram­halds­skól­ans á Her­lufs­holm haustið 2021 og áformað var að hann héldi þar áfram námi í haust. Tilkynnt hafði verið að systir hans Isabella (f. 2007) hæfi þar nám í haust. Fjöl­miðlar veltu því fyrir sér, strax eftir sýn­ingu þátt­ar­ins um leynd­ar­mál Her­lufs­holms, hvort Christian yrði áfram í skól­anum og hvort Isabella myndi setj­ast þar á skóla­bekk í haust. Fjöl­miðlar rifj­uðu upp, trekk í trekk, að Mary krón­prinsessa hefði í orði og verki lagt mikla áherslu á mál­efni barna, einkum bar­áttu gegn ein­elti. Friðrik og Mary voru fyrst í stað hik­andi og vildu ekki svara neinu varð­andi fram­tíð barna sinna á Her­lufs­holm. Sögðu að þetta væri sorg­legt mál og að breyt­ingar til úrbóta væru óhjá­kvæmi­legar.

Fyrir viku, 26. júní til­kynntu þau Friðrik og Mary að börn þeirra, þau Christian og Isabella, myndu ekki setj­ast á skóla­bekk í Her­lufs­holm í haust. Einn danskur blaða­maður sagði ákvörð­un­ina óhjá­kvæmi­lega. Það væri enn­fremur gott fyrir þau Christian og Isabellu að kynn­ast „venju­legum“ ung­lingum, nem­endur á Her­lufs­holm væru ekki dæmi­gerðir danskir ung­lingar.

Ekkert hefur komið fram um það í hvaða skóla systk­inin fara í haust.

Þess má geta að hvorki Friðrik krón­prins né Jóakim bróðir hans stund­uðu nám á Her­lufs­holm en Nikolaj elsta barn Jóakims (f.1999) stund­aði þar nám og útskrif­að­að­ist sem stúd­ent árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár