Sex staðreyndir um Zelenskí

Fyrst lék hann for­seta. Svo varð hann for­seti. En að vera for­seti í Úkraínu í dag er ekk­ert grín. Hinn ungi Volodímír Zelenskí hefur sýnt óbilandi föð­ur­lands­ást og stað­festu sem aðrir þjóð­ar­leið­togar mættu taka sér til fyr­ir­myndar.

Volodímír Zelenskí, forseti Úkraínu.
Volodímír Zelenskí, for­seti Úkraínu. Mynd: EPA

Hetja á einni nóttu

Hinn 44 ára gamli Volodímír Zelenskí, lög­fræð­ingur og þekktur grínisti í heima­landi sínu Úkraínu, sem lék eitt sinn for­seta í vin­sælum sjón­varps­þáttum og tók svo við því emb­ætti í raun­veru­leik­anum, hefur hlotið lof og dáð fyrir hug­rekki sitt og föð­ur­lands­ást. „Ég þarf skot­færi, ekki far,“ sagði hann er Banda­ríkja­menn buð­ust til að flytja hann burt úr hinni stríðs­hrjáðu Úkraínu. Stað­festa hans og til­finn­inga­ríkt símtal hans frá Kænu­garði á neyð­ar­fund Evr­ópu­sam­bands­ins, sló fast á strengi vest­ur­veld­anna sem settu í kjöl­farið sögu­legar þving­anir á Rússland og ákveðið að senda for­set­anum her­gögn. „Þetta var ákaf­lega, ákaf­lega til­finn­inga­ríkt,“ sagði emb­ætt­is­maður ESB sem heyrði sím­tal Zelenskí sem fékk tárin til að streyma hjá fund­ar­gestum. For­set­inn sagði m.a. að mögu­lega væri þetta í síð­asta sinn sem við­staddir myndu sjá hann á lífi.

[adspot]

Vildi verða sáttasemjari

Eitt af stefnu­málum hans í stóli for­seta var að sætt­ast við Rússa. Það var veru­legur hiti í sam­skiptum ríkj­anna árið sem hann náði kjöri, 2019. Rússar höfðu inn­limað Krím­skaga árið 2014 og um 15 þús­und manns höfðu fallið í þeim átökum.

En Zelenskí komst ekki langt á þeirri braut. Hann náði reyndar að semja um fanga­skipti en slegið var á sátt­ar­hönd hans er hann neit­aði að fara að kröfum Pútíns um að draga sig frá vest­ur­veld­unum á hinu póli­tíska sviði. Halla sér ekki upp að erki­fj­endum Rússa, Banda­ríkja­mönnum. Það var hann ekki til­bú­inn að gera.

Óvinsæll í aðdraganda stríðsins

En Zelenskí var ekki endi­lega hátt skrif­aður hjá leið­togum vest­ur­veld­anna eða löndum sínum áður. Hann hafði verið gagn­rýndur fyrir að taka ekki harðar á spill­ingu í land­inu og einnig fyrir að gera lítið úr hót­unum Rússa í garð Úkraínu áður en af inn­rásinni varð.

Hann gagn­rýndi m.a. Joe Biden for­seta Banda­ríkj­anna fyrir stöðugar við­var­anir hans um að Rússar hyggðu á inn­rás. Sagði hann orð Bidens ótíma­bær og að þau gætu valdið skelf­ingu meðal Úkra­ínu­manna.

Þá vildu um 60 pró­sent Úkra­ínu­manna ekki að hann biði sig fram til for­seta á ný. Nú er komið allt annað hljóð í landa hans og yfir 90 pró­sent þeirra styðja hann.

Hið „fullkomna símtal“

Zelenskí vakti fyrst athygli á alþjóða­vísu í valda­tíð Donalds Trump. Trump hringdi í hann árið 2019 og bað hann að grafa upp eitt­hvað mis­jafnt á Joe Biden og son hans. Þetta var í aðdrag­anda banda­rísku for­seta­kosn­ing­anna. Trump sagði þetta hafa verið „full­komið sím­tal“ sem seinna varð til þess að full­trúa­deild Banda­ríkja­þings ákærði hann fyrir emb­ætt­is­af­glöp, fyrir að hafa notað stöðu sína sem for­seti í per­sónu­legum til­gangi og hóta því að draga úr fjár­stuðn­ingi til her­mála í Úkraínu.

Zelenskí neit­aði að gagn­rýna sím­tal Trumps og sagð­ist ekki vilja skipta sér af inn­an­rík­is­póli­tík ann­arra ríkja.

Gyðingur verður sameiningartákn

Er herir Pútíns for­seta Rúss­lands hófu inn­rás­ina í Úkraínu sagð­ist Zelenskí vera „skot­mark númer eitt“. Hann var þar með orð­inn „Úkra­ínu­maður númer eitt“ í augum heims­byggð­ar­innar. Í ljósi sög­unnar er gríð­ar­legur stuðn­ingur við hann í heima­land­inu ein­stakur og í raun nokkuð óvenju­legur.

Hann ólst upp í Sov­ét­ríkj­unum í rúss­nesku mæl­andi borg­inni Kryvyi Rih í aust­ur­hluta Úkraínu. And­rúms­loft Sov­ét­tím­ans mót­aði hann. Hann er af gyð­inga­ættum og var fjöl­skyldan að ein­hverju leyti utan­garðs jafn­vel þótt þau væru hámenntuð, móðir hans verk­fræð­ingur og faðir hans stærð­fræð­ingur. Á hans heima­slóðum var fjand­semi í garð gyð­inga mikil. Fjöldamorð þýskra nas­ista og aðskiln­að­ar­hópa í Sov­ét­ríkj­unum á gyð­ingum í Babi Yar árið 1941, er mörgum enn ofar­lega í huga. Tæplega 34 þús­und gyð­ingar voru drepnir á aðeins tveimur dögum.

Zelenskí sagð­ist í við­tali árið 2020 vera kom­inn af „dæmi­gerðri sov­éskri gyð­inga­fjöl­skyldu“ og að flestir gyð­ingar í Sov­ét­ríkj­unum hefðu ekki verið sér­stak­lega trú­ræknir.Í frétta­skýr­ingu The Atlantic um málið segir að þessi orð beri það ef til vill fyrst og fremst með sér að trú­rækni var ekki mögu­leg. Bænahús gyð­inga voru sem dæmi að mestu lokuð þar til í lok níunda ára­tugar síð­ustu aldar.

Allt frá átt­unda ára­tugnum og til þess tíunda yfir­gáfu um 1,5 millj­ónir gyð­inga Sov­ét­ríkin. Zelenskí og fjöl­skylda hans voru í minni­hluta þeirra gyð­inga sem ákváðu að verða um kyrrt.

Sov­ét­ríkin lið­ust í sundur, Úkraína varð sjálf­stætt ríki og gyð­ingar gátu farið að iðka trú sína. Úr þessu breytta and­rúms­lofti spratt for­seta­efnið Zelenskí. Fyrst í hlut­verki gyð­ings sem varð for­seti í sjón­varps­þætti og svo sem einmitt það sama í raun og veru eftir stór­sigur í kosn­ingum árið 2019.

Nú þegar Zelenskí er orð­inn sam­ein­ing­ar­tákn Úkra­ínu­manna finnst gyð­ingum í land­inu, sem í gegnum tíð­ina hafa sætt ofsóknum, þeir loks til­heyra.

Ósvikinn þjóðarleiðtogi

Zelenskí er fjöl­skyldu­maður. Hann gift­ist arki­tekt­inum Olenu árið 2003 og saman eiga þau sautján ára dóttur og níu ára son. Sjálfur er hann nú staddur í Kænu­garði og seg­ist hvergi ætla að fara. Hann hefur svo bætt því við að fjöl­skyldan sé enn í Úkraínu. Að hún sé ekki á flótta líkt og tug­þús­undir ann­arra.

„Stríðið hefur breytt hinum fyrr­ver­andi grínista úr afdala­legum stjórn­mála­manni með rang­hug­myndir um mik­il­leika sinn í ósvik­inn þjóð­ar­leið­toga,“ skrifar Melinda Haring, sér­fræð­ingur í utan­rík­is­málum Evrasíu-ríkja.

Þótt hægt sé að gagn­rýna hann fyrir að fara ekki hraðar í umbætur heima fyrir og styrkja landa­mæri Úkraínu að Rúss­landi með öllum ráðum síð­ustu mán­uði hefur hann sýnt „gríð­ar­legt hug­rekki“, neitað að sitja í skjóli í skot­byrgi heldur verið sýni­legur og farið um víg­velli með her­mönnum sínum. „Hann hefur sýnt stað­fasta föð­ur­lands­ást sem fáir áttu lík­lega von á frá rúss­nesku­mæl­andi Austur-Úkra­ínu­manni,“ skrif­aði Haring enn fremur.

Undir þessa skoðun hafa margir tekið síð­ustu daga. Stað­festa Zelenskís þykir aðdá­un­ar­verð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár