Næsta afbrigði kórónuveirunnar mun eflaust koma á óvart

Við höfum lært margt. En við eigum einnig ennþá fjöl­margt eftir ólært. Ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar er gott dæmi um það. En verður það sá bjarg­vættur út úr far­aldr­inum sem við óskum? Við getum ekki verið svo viss.

Hvert liggur leið eftir ómíkron-bylgjuna?
Hvert liggur leið eftir ómíkron-bylgj­una? Mynd: EPA

Ómíkron-afbrigði kór­ónu­veirunnar SARS-CoV-2, veirunnar sem fyrst greind­ist fyrir rúmum tveimur árum og hefur líkt og við mátti búast stökk­breyst ítrekað síðan þá, hefur gjör­breytt far­aldr­inum á heims­vísu. Það er gríð­ar­lega smit­andi en veldur, sem betur fer, mun væg­ari sjúk­dóms­ein­kennum en delta, afbrigðið sem áður var ríkj­andi.

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, hefur gefið í skyn að ómíkron-bylgjan og útbreitt ónæmi sem henni fylgir gæti markað enda­lok far­ald­urs­ins en þó aðeins ef meiri­hluti jarð­ar­búa verði orð­inn bólu­settur í sumar. Ýmsir sér­fræð­ingar vara hins vegar við að óvissan sé enn mikil og alls ekki víst að ómíkron verði sá „bjarg­vættur“ sem við óskum.

[adspot]

Ómíkron breið­ist svo hratt út að fjöldi smita getur auð­veld­lega tvö­fald­ast á aðeins örfáum dögum. Það þýðir, að sögn vís­inda­manna, að mjög erfitt er að und­ir­búa við­brögð og geta sér til um fram­haldið. Og jafn­vel þótt hraðað verði á bólu­setn­ingum megi ekki gleyma því að það taki um tvær vikur fyrir þær að ná fullri virkni. „Ómíkron er eins og flensa á sýru,“ hefur vís­inda­tíma­ritið Nature eftir Graham Medley, sér­fræð­ingi í spálík­önum fyrir far­sóttir og einum helsta ráð­gjafa breskra stjórn­valda í þeim efnum.

[links]Hin gríð­ar­lega hraða útbreiðsla gerir það einmitt að verkum að mjög erfitt er að spá fyrir um hvað kunni að ger­ast næst. Skiptar skoð­anir voru í upp­hafi ómíkron-bylgj­unnar meðal sér­fræð­inga um hvernig ætti að bregð­ast við. Suður-afrísku vís­inda­menn­irnir sem upp­götv­uðu afbrigðið sögðu þegar í upp­hafi að það virt­ist valda mun væg­ari ein­kennum en delta. En stjórn­völd margra ríkja, m.a. á Íslandi, vildu ekki taka þá áhættu að bíða og sjá heldur gripu til hert­ari aðgerða. Flestar þjóðir eru nú búnar eða eru í því ferli að aflétta.

Annað sem gerir sér­fræð­ingum erfitt fyrir að spá um fram­haldið er sú stað­reynd að nú eru ekki allir jafn næmir fyrir veirunni og fyrir einu ári eða tveimur. Margir hafa fengið COVID-19 síð­ustu mán­uði og að auki er rúm­lega helm­ingur jarð­ar­búa nú bólu­settur þrátt fyrir að skipt­ingin sé mjög mis­jöfn milli landa og heims­álfa. Ólíkar teg­undir bólu­efna eru svo not­aðar og vörn þeirra gegn hinu og þessu afbrigð­inu mis­jöfn.

Lands­lagið hefur því breyst mikið. Sá lyk­il­þáttur sem fylgst hefur verið náið með, þ.e. hversu margir veikj­ast alvar­lega, er orð­inn síbreyti­legur eftir afbrigðum, bólu­setn­ingum og fyrri sýk­ingum af völdum ann­arra afbrigða veirunnar.

Af þessum sökum voru vís­inda­menn í Evrópu t.d. margir hverjir í fyrstu efins um að ómíkron væri endi­lega mun væg­ara afbrigði. Íbúar sunn­an­verðrar Afríku voru ekki aðeins mun yngri að með­al­tali en Evr­ópu­landa, sem minnk­aði áhættu á veik­indum, heldur höfðu mun fleiri þeirra lík­lega sýkst af öðrum afbrigðum en að sama skapi mun færri verið bólu­settir.

Fljótt kom í ljós að hlut­fall inn­lagna af smit­fjölda í ómíkron-bylgj­unni var allt annað og lægra heldur en af fyrri afbrigðum. Spár sem byggðar voru á hegðun fyrri afbrigða reynd­ust því rangar og þær svart­sýn­ustu gengu sem betur fer ekki eftir.

Veiran hverfur ekki en faraldurinn breytist

En hvernig mun far­ald­ur­inn fjara út? Ekki með ómíkron, segja vís­inda­menn sem Nature ræðir við. „Þetta verður ekki síð­asta afbrigðið og næsta afbrigði mun hafa sína eigin eig­in­leika,“ segir Medley.

Ólíklegt er að kór­ónu­veiran nýja muni nokkru sinni hverfa alfarið úr sam­fé­lagi manna. Hún mun kannski ekki valda enda­lausum heims­far­aldri heldur valda sýk­ingum hjá til­teknum hópum á ákveðnum svæðum. Það þýðir ekki að hún verði hættu­laus, ekki frekar en inflú­ensan sem árlega gengur yfir heims­byggð­ina. En SARS-CoV-2 er ný veira og því er enn sem komið er nær ómögu­legt að spá fyrir um hegðun hennar til fram­tíðar. Að „lifa með veirunni“, sem margir telja næsta skref eftir tveggja ára tak­mark­anir í flestum sam­fé­lögum, gæti því þýtt að meta þurfi hversu mörg dauðs­föll séu „ásætt­an­leg“, segir breski far­alds­fræð­ing­ur­inn Sebast­ian Funk við Nature.

Mark Woolhouse, sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum við Háskól­ann í Edinborg, telur að far­ald­ur­inn verði aðeins árs­tíða­bund­inn líkt og inflú­ensan nú ef meiri­hluti fólks, fyrst á barns­aldri, smit­ast af veirunni mörgum sinnum á nokkrum ára­tugum og myndar þannig nátt­úru­legt ónæmi. Þangað til að slíkum áfanga verði náð muni því margt eldra fólk og aðrir við­kvæmir hópar eiga á hættu að veikj­ast alvar­lega ef það fær ekki reglu­lega örv­un­ar­bólu­setn­ingu.

Það er engin vissa fyrir því að næsta afbrigði kór­ónu­veirunnar verði mild­ara, segir breski veiru­fræð­ing­ur­inn Julian Tang, þótt að það virð­ist þó þró­unin með ómíkron.

[adspot]

Kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 hefur nefni­lega allt að því ótelj­andi mögu­leika til að stökk­breyt­ast. Til að skilja hegðun hennar og spá fyrir um þróun reyna vís­inda­menn a kort­leggja „lands­lag“ erfða­meng­is­ins – dali og hæðir eig­in­leik­anna hverju sinni – eig­in­leika sem t.d. gera hana hæf­ari til að smit­ast manna á milli eða valda alvar­legri veik­indum hýsla sinna. En af því að hún er ólík­inda­tól, líkt og margoft hefur verið sagt, er erfitt og kannski ómögu­legt að spá fyrir um hverju hún tekur upp á næst á þró­un­ar­braut sinni. Gott dæmi um það er til­koma ómíkron.

Þegar delta-afbrigðið hóf að breið­ast út virt­ist það ætla að útrýma öðrum afbrigðum, svo hæft var það. „Ég hélt að næsta afbrigði myndi þró­ast út frá delta,“ segir Katia Koelle, líf­fræð­ingur við Emory-háskóla í ítar­legri frétta­skýr­ingu The Atlantic. En þá allt í einu birt­ist ómíkron á fjar­lægri hæð í „lands­lagi“ erfða­mengis veirunnar.

Ómíkron spratt ekki frá delta

Veiran sem veldur COVID-19 þró­að­ist í nokkur ólík afbrigði og framan af voru alfa, beta og delta þeirra þekkt­ust, segir í ítar­legri útskýr­ingu Arnars Páls­sonar erfða­fræð­ings á Vís­inda­vefnum, af til­urð ómíkron. Sam­an­burður á erfða­mengi ómíkron, sem fannst í nóv­em­ber í fyrra, sýnir að það hafði mjög margar stökk­breyt­ingar í gen­inu sem myndar bindi­pró­tínið, um 30 breyt­ingar alls. Þótt sumar þess­ara breyt­inga þekk­ist úr öðrum afbrigðum sýna gögnin, svo óyggj­andi er, að það spratt ekki úr neinu af hinum 10 afbrigð­unum sem þekkt voru á þeim tíma­punkti.

„Það við­ur­kenn­ist að eftir að delta-afbrigðið var orðið mjög algengt áttu fáir von á því að nýtt afbrigði myndi skáka því,“ skrifar Arnar. Til áminn­ingar þá er metið að delta hafi 50 pró­sent meiri smit­hæfni en alfa, sem var 50 pró­sent meira smit­andi en upp­runa­lega gerðin. Það er mjög mikil aukn­ing í hæfni. „Ómíkron kom því flestum fag­mönnum á svið­inu á óvart, bæði sú stað­reynd að hún spratt úr „þró­un­ar­legri“ rót ætt­ar­trés­ins og það hversu margar breyt­ingar höfðu orðið á ætt­meið afbrigð­is­ins.“

Næsta afbrigði gæti allt eins komið okkur jafn mikið á óvart. Það gæti til dæmis haft enn meiri smit­hæfni en ómíkron. Og sér­fræð­ingar segja nær full­víst að veiran muni finna nýjar leiðir til að kom­ast fram hjá því ónæmi sem við höfum öðl­ast annað hvort með sýk­ingu eða bólu­setn­ingu. Veiran mun halda áfram að finna þessar hæðir í lands­lagi sínu, segir í grein The Atlantic, en þó er mjög ólík­legt að hún nái að gera ónæmi okkar að engu.

Afritin öðruvísi en uppruninn

Í hvert skipti sem veiran nær að sýkja mann­eskju þá „afritar“ hún sjálfa sig í gríð og erg. Sum „afritin“ eru öðru­vísi, þ.e. stökk­breyt­ing verður. Sumar þessar stökk­breyt­ingar eru veirunni sjálfri í hag en aðrar hýsl­inum. Í dæmi­gerðri COVID-sýk­ingu nær veiran ekki að stökk­breyt­ast stór­kost­lega en þegar gríð­ar­lega margir eru sýktir sam­tímis þá eykst hættan á því og nýtt afbrigði getur orðið til.

Ef veiran „mallar“ hins vegar í lík­ömum fólks í lengri tíma, t.d. vegna veikl­aðs ónæm­is­kerfis, hefur hún marg­falt meiri tæki­færi til að stökk­breyt­ast og marg­falt lík­legra verður að stökk­breyt­ing­arnar nái yfir­hönd­inni og að nýtt afbrigði – með aðra eig­in­leika – geti orðið til.

Vís­inda­menn reyna nú að kom­ast að því hvernig ómíkron varð til. Ef það tekst aukast lík­urnar á því að hægt verði að spá fyrir um næstu skref kór­ónu­veirunnar á þró­un­ar­braut­inni.

„Við vorum heppin með ómíkron,“ segir Sergei Pond, þró­un­ar­líf­fræð­ingur við Temple-háskóla við The Atlantic. Stökk­breyt­ing­arnar sem valda því að afbrigðið er svona bráðsmit­andi gera það einnig að verkum að sýk­ingin verður ekki jafn hættu­leg. Hann segir hins vegar ekki víst að þannig verði það alltaf.

„Á meðan ýmsir eig­in­leikar ómíkron komu á óvart, var það fyr­ir­sjá­an­legt að það sprytti upp í þeim heims­hluta þar sem bólu­efni hafa verið af skornum skammti,“ minnir Arnar Pálsson á. Af þeim fimm afbrigðum sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin segir nú var­huga­verð, urðu fjögur til í löndum þar sem bólu­setn­ingar eru ónógar. „Það bendir sterk­lega til að besta leiðin til að stoppa nýliðun afbrigða sé að gera bólu­efni aðgengi­leg fyrir alla á jörð­inni.“

Nýja kór­ónu­veiran gæti þró­ast í ýmsar áttir héðan í frá og með tím­anum gætum við áttað okkur betur á hvaða leið hún lík­leg­ast velur. En eins og staðan er núna er að minnsta kosti ekk­ert sem bendir til þess að hún muni hverfa í bráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár