Gjöreyðingaráætlunin

Í skjala­safni pólska hers­ins er að finna hern­að­ar­á­ætlun frá 1989 þar sem gert var ráð fyrir að hund­ruðum kjarn­orku­sprengja yrði varpað á Danmörku, öllu lífi eytt og landið yrði rústir einar. Skjöl um áætl­un­ina eru nýkomin fram í dags­ljósið.

Ríkisskjalasafnið í Danmörku.
Rík­is­skjala­safnið í Danmörku. Mynd: Wikimedia

Steen Andersen sagn­fræð­ingur og sér­fræð­ingur á danska rík­is­skjala­safn­inu hefur um ára­bil unnið að rann­sóknum á skjölum úr safni pólska hers­ins. Í des­em­ber 2019 hélt hann, ásamt Peer Henrik Hansen sam­starfs­manni sínum, erindi fyrir yfir­menn úr danska hernum og hátt­setta danska emb­ætt­is­menn. Skjala­safn pólska hers­ins, sem er mikið að vöxtum hefur, þangað til fyrir örfáum árum, verið lokað inni í geymslum pólska hers­ins og þess vegna fáum kunn­ugt.

Á tímum kalda stríðs­ins stóðu bæði NATO ríkin og ríki Var­sjár­banda­lags­ins (undir stjórn Sov­ét­manna) fyrir stór­felldri hern­að­ar­upp­bygg­ingu, víg­bún­að­ar­kapp­hlaupi. Aldrei kom til beinna átaka, þótt stundum skylli hurð nærri hælum. Á níunda ára­tug síð­ustu aldar urðu miklar breyt­ingar sem leiddu til falls Sov­ét­ríkj­anna og loka kalda stríðs­ins.

Danmörk var á könnu Pólverja

Þrátt fyrir að mikil leynd hafi hvílt yfir upp­bygg­ingu og áætl­unum Var­sjár­banda­lags­ins og NATO fór ekki hjá því að ýmis­legt læki út. Innan Var­sjár­banda­lags­ins ríkti það fyr­ir­komu­lag að aðild­ar­ríkin höfðu til­tekin lönd, eða land­svæði á sinni könnu. Samkvæmt þessu skipu­lagi ,,til­heyrði“ Danmörk Póllandi. Þetta hafði lengi verið vitað. Um hern­að­ar­á­ætl­anir Pólverja var hins vegar lítið vitað og þeim sem hlýddu á fyr­ir­lestur Steen Andersen og Peer Henrik Hansen var brugðið. Tví­menn­ing­arnir byrj­uðu hins­vegar á frá­sögn sem fékk við­stadda til að brosa. Í pistli sem birt­ist hér í Kjarn­anum 12. jan­úar 2020 var greint frá því sem fékk við­stadda á áður­nefndum fyr­ir­lestri til að brosa, sú frá­sögn sýnir vel hvernig tím­arnir höfðu breyst frá árum kalda stríðs­ins og er því end­ur­birt hér:

Leyni­þjón­usta danska hers­ins taldi sig vita að ef til þess kæmi að Pól­verjar réð­ust inn í Dan­mörku myndi her­lið þeirra ganga á land við smá­bæ­inn Faxe á Suð­ur­-­Sjá­landi. Leyni­þjón­ustan ákvað þess vegna að ráða ungan mann, búsettan við Hafn­ar­göt­una í Faxe, sem eins­konar útvörð. Hann fékk þjálfun í að þekkja far­ar­tæki pólska hers­ins, ekki síst bryn­varða her­flutn­inga­vagna og flutn­inga­bíla. Hann sinnti þess­ari vinnu (sem auka­starfi) árum saman og fékk með reglu­legu milli­bili sendar myndir og teikn­ingar af nýj­ustu tækjum og tólum Pól­verja, svo hann gæti borið kennsl á þau pólsku tæki sem færu um veg­inn og rugl­aði þeim ekki saman við her- og flutn­inga­bíla danska hers­ins.

Á gafli húss „út­varð­ar­ins“ hafði leyni­þjón­ustan komið fyrir lítt sýni­legu loft­neti og á háa­lofti í hús­inu var öfl­ugur rad­íó­send­ir, með tal­stöð. Ef stríð skylli á skyldi „út­vörð­ur­inn“ fylgj­ast grannt með umferð og sæi hann skyndi­lega pólsk hertól á veg­inum átti hann umsvifa­laust að kveikja á tal­stöð­inni og láta yfir­stjórn hers­ins vita. „Út­vörð­ur­inn“ sinnti starf­inu af kost­gæfni árum sam­an, próf­aði sendi­bún­að­inn af og til, en aldrei kom til þess að hann sæi pólska her­liðið koma storm­andi eftir veg­inum og hann þyrfti að gera við­vart. Það var þessi frá­sögn sem fékk við­stadda á áður­nefndum fyr­ir­lestri dönsku sér­fræð­ing­anna til að brosa. Þótt hug­myndin um „út­vörð­inn“ með tal­stöð­ina hafi kannski einu sinni verið góð og gild voru áætl­anir Pól­verja, ef til inn­rásar kæmi árið 1989, af allt öðrum toga.

Í áður­nefndum fyr­ir­lestri dönsku sagn­fræð­ing­anna kom fram að ef Pól­verjar réð­ust gegn Danmörku yrði beitt leift­ur­sókn og það sem kom mest á óvart var að Pól­verjar myndu lík­lega beita kjarn­orku­vopnum. Það hafði fyrr­ver­andi flug­maður í pólska hernum reyndar nefnt í tíma­rits­grein haustið 2019, en ekki vakið mikla athygli.

Gjöreyðingaráætlunin

Steen Andersen sagn­fræð­ingur hefur haldið áfram rann­sóknum sínum á skjala­safni pólska hers­ins. Og þótt þeim sem hlýddu á fyr­ir­lestur hans og sam­starfs­manns hans í des­em­ber 2019 hafi brugðið þegar þeir heyrðu um hern­að­ar­á­ætl­anir Pólverja hefur sagn­fræð­ing­ur­inn nú séð í skjala­safn­inu aðra áætlun. Sann­kall­aða gjör­eyð­ing­ar­á­ætlun.

Þessi áætlun er frá árinu 1989, skömmu áður en múr­inn féll og allt breytt­ist. Mikil leynd hefur alla tíð hvílt yfir þess­ari áætlun sem hefur verið gætt sér­stak­lega, hern­að­ar­sér­fræð­ingar töldu sig vita að hún fyr­ir­fynd­ist en höfðu aldrei vitað neitt meira. Nú hefur Steen Andersen, eftir mikla leit, fundið áætl­un­ina sem fyllir 42 vél­rit­aðar síður og mjög nákvæm­lega útli­stuð. Hún skipt­ist í nokkur þrep og óhugn­an­leg að ekki sé meira sagt.

Fyrst 131 sprengja og svo 133 til viðbótar

Í fyrsta þrepi var gert ráð fyrir að varpa 131 kjarn­orku­sprengju á skot­mörk í Danmörku. 100 sprengjur átti að flytja með rúss­neskum Scud eld­flaugum og 31 sprengju skyldi varpað úr flug­vélum. Skot­mörkin voru einkum flug­vellir og aðsetur danska hers­ins, til dæmis á suð­ur­hluta Amager þar sem Hawk loft­varnaflaugar voru stað­settar.

Í öðru þrepi áætl­un­ar­innar var gert ráð fyrir að varpað yrði 133 sprengjum til við­bótar á til­tekin skot­mörk, ekki var til­greint hvers konar sprengjur þar var um að ræða.

Í áætl­un­inni, sem birt hefur verið af Berl­ingske, er ekki getið um stærð kjarn­orku­sprengj­anna sem not­aðar yrðu. Danskir hern­að­ar­sér­fræð­ingar hafa reiknað út að sam­an­lagður sprengi­kraftur 131 kjarn­orku­sprengju næmi lík­lega 6550 kílótonnum en til sam­an­burðar má nefna að sprengjan sem varpað var á Hiros­hima árið 1945 var 15 kílótonn. Sú sprengja ban­aði að minnsta kosti 60 þús­und manns og annar eins fjöldi særð­ist alvar­lega.

1 kílótonn jafn­gildir 1000 tonnum af TNT sprengi­efni.

Hver var tilgangurinn með gereyðingaráætluninni?

Steen Andersen sagn­fræð­ingur telur að til­gangur með stór­árás á Danmörku hefði verið sá að sýna mátt Var­sjár­banda­lags­ins, neyða Danmörku og NATO ríkin í Evrópu til taf­ar­lausrar upp­gjafar. Í skjöl­unum sem Steen Andersen hefur lesið og rann­sakað kemur fram að kjarn­orku­sprengj­urnar í Póllandi væru geymdar í sov­éskum her­stöðvum og þegar her­stjórnin í Moskvu tæki ákvörðun um að ráð­ast á Danmörku yrðu sprengj­urnar afhentar pólskum her­sveitum. Pól­verjarnir myndu stjórna skot­pöll­unum en sov­éskir sér­fræð­ingar myndu miða út skot­markið og sjá um að „hleypa af“.

Steen Andersen segir að í gögnum komi fram að Sov­ét­menn hafi haft alla stjórn fyr­ir­hug­aðra aðgerða með höndum.

Athygl­is­vert er að á síð­ari hluta níunda ára­tug­ar­ins ákvað Mikhail Gor­batsjev leið­togi Sov­ét­ríkj­anna breyt­ingar á Var­sjár­banda­lag­inu, það skyldi fram­vegis vera varn­ar­banda­lag en ekki árás­ar­banda­lag. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Sov­ét­leið­tog­ans und­ir­bjuggu Pól­verjar, undir stjórn hern­að­ar­yf­ir­valda í Moskvu hugs­an­lega kjarn­orku­árás á Danmörku.

Steen Andersen sagn­fræð­ingur sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að mörgum þætti ef til vill þessar áætl­anir um árásir á Danmörku reyfara­kenndar. „Á und­an­förnum vikum höfum við hins vegar séð að allt getur gerst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sovétríkin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár