Í þá tíð… Leyndarhjúp svipt af grimmdarverkum Stalíns í leyniræðu Krústsjeffs

Níkíta Krústsjeff, leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, flutti ræðu á lands­þingi Komm­ún­ista­flokks­ins þar sem hann svipti hul­unni af grimmd Jósefs Stalíns, for­vera síns, og skefja­lausri for­ingja­dýrkun sem ástunduð var undir hans stjórn.

Níkíta Krústsjeff leiðtogi Sovétríkjanna varpaði sprengju inn á landsþing kommúnistaflokksins árið 1956 þegar hann reif niður helgimyndina af forvera sínum Jósef Stalín og upplýsti um grimmdarverk hans.
Níkíta Krústsjeff leið­togi Sov­ét­ríkj­anna varp­aði sprengju inn á lands­þing komm­ún­ista­flokks­ins árið 1956 þegar hann reif niður helgi­mynd­ina af for­vera sínum Jósef Stalín og upp­lýsti um grimmd­ar­verk hans.

Mann­kyns­sagan er ansi hreint þétt­skipuð mönnum sem hafa lagt sig fram um að öðl­ast völd og auð án til­lits til ann­ars fólks. Sumir hinna verstu hafa ofsótt, pyntað og drepið, jafn­vel sína eigin þegna, en í efstu lögum þessa mann­fé­lags­mengis eru nokkur nöfn sem standa uppúr; Adolf Hitler, Maó Zedong og Jósef Stalín.

Stalín stýrði Sov­ét­ríkj­unum með harðri hendi, svo ekki sé dýpra í árina tekið, á árunum 1929 til 1953 og í valda­tíð hans er talið að allt að 20 millj­ónir manna hafi látið lífið, annað hvort í skipu­lögðum ofsóknum gegn raun­veru­legum og ímynd­uðum and­stæð­ingum, eða vegna efna­hags­að­gerða sem áttu að gera Sov­ét­ríkin að iðn­að­ar­stór­veldi en ollu þess í stað hung­ursneyðum með gíf­ur­legu mann­falli.

[links]Síðustu ævi­árin ágerð­ist ofsókn­ar­brjál­æði og vit­firr­ing Stalíns veru­lega en eftir að hann fékk heila­blóð­fall náði hann sér aldrei og lést í mars 1953.

Eftir frá­fall Stalíns tók við hörð valda­bar­átta milli Gerogys Malenkov, eins nán­asta sam­starfs­manns leið­tog­ans heit­ins, og Krústsjeffs, sem hafði klifið met­orða­stig­ann af mik­illi list, frá smábæ í Úkraínu upp í efstu lög flokks­ins.

Malenkov tók fyrst við stjórn­inni en fljót­lega tók að fjara undan honum, aðal­lega þar sem hann þótti frekur til fjörs­ins og vildi treysta tök sín á bæði stjórn­kerf­inu og flokknum. Innan flokks­starfs­ins hafði Krústsjeff hins vegar komið sér vel fyrir og beitti áhrifum sínum til að skáka Malenkov og árið 1955 stóð Krústsjeff uppi með pálmann víð­fræga í hönd­unum.

[adspot]

Slakað á harðstjórninni

Krústsjeff hófst fljót­lega handa við að vinda nokkuð ofan af því helsi sem Stalínsárin höfðu lagt á þegna rík­is­ins. Slakað var á rit­skoð­un­ar­til­burðum stjórn­valda og þús­undir póli­tískra fanga sneru aftur úr Gúlag-fanga­búðum og rann­sókn hófst á grimmd­ar­verkum Stalíns og vald­mis­beit­ingu. Krústsjeff hafði hugsað sér að kynna nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar á 20. lands­þingi flokks­ins sem fyr­ir­hugað var árið eftir, en margir kollega hans, meðal ann­ars Malenkov og Molotov utan­rík­is­ráð­herra, voru því mót­fallnir. Krústsjeff lét það ekki á sig fá og ákvað að láta vaða.

Lands­þingið var haldið í febr­úar 1956 og það sóttu tæp­lega 1.500 full­trúar. Fyrir lá að fara yfir ýmsar stöðu­skýrslur, meðal ann­ars um ástand efna­hags­mála, alþjóða­mála og ekki síst téða skýrslu Krústsjeffs sjálfs, sem eng­inn vissi í raun hvað fjall­aði um.

Trúlega hafa margir orðið hvumsa þegar Krúst­tsjeff hélt setn­ing­ar­ræðu sína, en þegar hann bað við­stadda að standa upp til að minn­ast þeirra mekt­ar­manna flokks­ins sem höfðu fallið frá frá síð­asta þingi, var nafn Stalíns þar á blaði með lítt þekktum félögum án þess að meira mál væri gert úr honum.

Ellefu dögum seinna, á loka­degi þings­ins, steig Krúst­sjoff hins vegar skrefið til fulls og flutti ræðu sína á fundi sem kallað var til eftir að form­legum fundi var lokið og var lok­aður blaða­mönnum og öðrum gestum (þó voru um 100 sér­stakir gestir við­staddir, en þeim hafði nýlega verið sleppt úr Gúlaginu).

Steinhissa þingfulltrúar

Ræðan, sem jafnan hefur gengið undir nafn­inu „Leyniræðan“ þar sem hún var ekki birt opin­ber­lega í Sov­ét­ríkj­unum fyrr en árið 1989, bar yfir­skrift­ina „Um per­sónu­dýrkun og afleið­ingar hennar“.

Þar hlóð Krústsjeff í fjög­urra tíma yfir­haln­ingu á stjórn­ar­háttum Stalíns sem var for­dæma­laus í tæpra fjög­urra ára­tuga sögu Sov­ét­ríkj­anna, sem þekktu í raun aðeins tvo leið­toga; Lenín og Stalín.

Meg­in­þráð­ur­inn í ræð­unni var til þess fall­inn að svipta helg­inni af minn­ingu og störfum Stalíns, hvers lík­am­legar leifar lágu smurðar við hlið Leníns í graf­hýsi þess síð­ar­nefnda.

Krústsjeff vitn­aði meðal ann­ars í til­mæli Leníns sjálfs, sem var­aði við því, í bréfi sem birt var helstu stjórn­endum flokks­ins að honum gengnum, að Stalín væri ekki ákjós­an­legur leið­togi og mælti meðal ann­ars til þess að hann yrði settur af sem aðal­rit­ari flokks­ins.

Þessu bréfi hafði á sínum tíma verið stungið undir stól af Stalín og félögum hans og vissu til­tölu­lega fáir innan Sov­ét­ríkj­anna af til­vist þess fyrr en með opin­berum Krúst­sjoffs.

Lenín sagði í bréfi sínu að Stalín væri óhæfur stjórn­andi og frekar ómerki­legt ein­tak af manni (ekki með þeim orðum þó) og lík­legur til að mis­nota allt það vald sem honum yrði falið.

Þetta greip Krústsjeff á lofti og þuldi upp ótal dæmi um einmitt það, sér­stak­lega hreins­an­irnar sem Stalín stóð að á seinni hluta fjórða ára­tug­ar­ins þar sem hálf önnur milljón ein­stak­linga var tekin höndum fyrir mis­vel und­ir­byggð brigsl um and-sov­éskt athæfi. Þar af voru hátt í 700.000 tekin af lífi, oftar en ekki í sýnd­ar­rétt­ar­höldum á grund­velli játn­inga sem fengnar voru með pynt­ingum.

Þá fór hann hörðum orðum um frammi­stöðu Stalíns í Seinni heims­styrj­öld­inni þar sem hann sagði að varnir Sov­ét­ríkj­anna gagn­vart Þýska­landi hafi verið ófull­nægj­andi auk þess sem yfir­stjórn hers­ins hafi verið veik­ari en ella sökum hreinsana í efstu lögum her­afl­ans þar sem fjöl­margir hers­höfð­ingjar höfðu verið settir af eða drepnir.

Þá var Stalín gagn­rýndur harð­lega fyrir nauð­ung­ar­flutn­inga þjóð­fé­lags­hópa frá heima­hér­uðum sínum og fyrir að fæla Júgóslavíu burtu úr sam­starfi aust­an­tjalds­þjóða.

Eitt af aðal­at­riðum Krústsjeffs var svo auð­vitað per­sónu­dýrk­unin sem Stalín stóð fyrir, sem var satt að segja skefja­laus.

Stjórn­ar­tíð Stalíns ein­kennd­ist, að mati Krú­stjeffs, af umburð­ar­leysi, grimmd og mis­beit­ingu valds og að hann hafi oft beitt kúgun og morðum bæði gegn óvinum og fólki sem hafði ekki gert sig sekt um nokkra glæpi gegn flokknum eða stjórn­völdum.

Um við­brögð við­staddra sagði Krústsjeff sjálfur í end­ur­minn­ingum sínum: „Þingið hlýddi á mig í algerri þögn. Eins og segir í mál­tæk­inu, þá mátti heyra saum­nál detta. Þetta bar allt svo brátt að og var svo óvænt.“ Einnig er hermt að mörgum fund­ar­manna hafi orðið svo um við að hlýða á lest­ur­inn að þeir hafi þurft að yfir­gefa sal­inn vegna van­líð­anar.

Ekki var boðið upp á neinar spurn­ingar eða umræður í kjöl­far ræð­unnar þannig að við­staddir héldu út úr salnum, eflaust margir óvissir um hvað þeir hafi hlýtt á þarna.

Afdrifaríkar uppljóstranir

Ræðan var ekki gefin út, eins og fyrr sagði, en þetta sama kvöld fengu erlendir full­trúar á þing­inu að lesa hana og viku síðar var henni dreift til mið­stjórn­ar­manna í flokknum. Í fram­hald­inu var svo fyr­ir­skipað að hún skyldi lesin á flokks­fundum í hér­uðum víða um landið og þarna í byrjun mars hafði ein­taki verið lekið til Reuters, sem dreifði inni­haldi hennar víða um vest­ur­lönd.

Það sem þykir ljóst með til­gang Krústsjeffs með skýrsl­unni, er að hann hafði hugsað hana fyrst og fremst til að styrkja eigin stöðu við stjórn­völ­inn gagn­vart gömlum banda­mönnum Stalíns. Enda er ekki eins og skýrslan sé ein­hvers konar hvít­bók um frammi­stöðu komm­ún­ista­flokks­ins við stjórn Sov­ét­ríkj­anna.

Þar er til dæmis skautað fram­hjá dauða þeirra millj­óna manna, kvenna og barna sem lét­ust vegna mis­ráð­inna til­rauna með end­ur­skipu­lagn­ingu land­bún­aðar, hún getur auk þess bara ofsókna á hendur flokks­með­lima en ekki gegn almennum borg­urum og gagn­rýnir Stalín ekki fyrir gjörðir hans fyrstu árin, þegar hann atti kappi um völdin við menn eins og Búkharín og Trotskí.

Smátt og smátt fór efni ræð­unnar að kvis­ast út og ímynd Stalíns beið mikla hnekki á árunum sem fylgdu. Meðal ann­ars var lík hans flutt út úr graf­hýsi Leníns 1961.

Afhjúp­un­unum fylgdu nokkrar róstur, meðal ann­ars í Póllandi og Ung­verja­landi. Ástandið róað­ist fljótt í Póllandi en ágerð­ist nokkuð í Ung­verja­landi þar til Krústsjeff ákvað að senda sov­éska her­inn á vett­vang. Þar voru gagn­rýn­is­raddir barðar niður með harðri hendi og lét­ust um 2.500 manns í aðgerðum Sov­ét­manna.

Næstu ár ein­kennd­ust Sov­ét­rík­inn þó af eins konar „þíðu“ þar sem Krústsjeff lagði nokkuð uppúr því að draga úr völdum leynilög­regl­unnar, opna landið fyrir erlendum gestum og áhrifum og efldi jafn­framt geim­ferða­á­ætlun lands­ins með góðum árangri.

Engu að síður var Krústsjeff síst nokkur friðar- eða sátta­post­uli á alþjóða­vett­vangi þar sem hann, öðrum fremur, var kom­inn á fremsta hlunn með að steypa stór­veld­unum út í kjarn­orku­stríð árið 1962 þegar hann lét koma fyrir eld­flauga­skot­pöllum á Kúbu, í bak­garði Banda­ríkj­anna.

Þessi stefna átti hins vegar ekki alfarið upp á pall­borðið hjá flokks­for­yst­unni og árið 1964, átta árum eftir flutn­ing ræð­unnar stór­merku, var Krústsjeff settur af sem leið­togi Sov­ét­ríkjnna og lifði frið­sömu lífi á eft­ir­launum allt til árs­ins 1971. Við tók Leoníd Bresnjeff sem var þaul­set­inn í emb­ætti, en stýrði Sov­ét­ríkj­unum inn í skeið efna­hags­legrar hnign­unar.

Krústsjeff barð­ist í sjálfu sér ekki gegn því að vera settur af, enda sagði hann að fram­kvæmd valda­skipt­anna, þ.e. að leið­toga væri til­kynnt að hann nyti ekki trausts og yrði því settur af, væri til marks um það að áætlun hans með opin­ber­unum í leyniræð­unni hafi gengið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sovétríkin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár