Nýfundin myndbönd í lit sýna útför Stalíns frá sjónarhorninu sem Kreml sýndi aldrei

Stalín er enn þriðji vin­sæl­asti rúss­neski leið­tog­inn í Rúss­landi. Ein­ræð­is­herr­ann lést 1953 en ímynd hans er nú haldið við í auknum mæli. Nýverið fund­ust lit­myndir af Sov­ét­ríkjum Stalíns sem aldrei hafa áður litið dags­ins ljós.

Martin Manhoff kvikmyndaði útför Stalíns úr glugga sendiráðs Bandaríkjanna við Rauða torgið í Moskvu árið 1953. Hann tók einni fjölda ljósmynda í Sovétríkjunum, sem eru mikilvægar heimildir um sovéskt samfélag á sjötta áratug síðustu aldar.
Martin Manhoff kvik­mynd­aði útför Stalíns úr glugga sendi­ráðs Banda­ríkj­anna við Rauða torgið í Moskvu árið 1953. Hann tók einni fjölda ljós­mynda í Sov­ét­ríkj­unum, sem eru mik­il­vægar heim­ildir um sov­éskt sam­fé­lag á sjötta ára­tug síð­ustu aldar. Mynd: RadioLiberty / RadioFreeEurope

Allir íbúar Sov­ét­ríkj­anna voru í losti í mars 1953. Leið­tog­inn ógur­legi Jósef Stalín hafði fengið heila­blóð­fall og lést svo vegna þess viku síðar 5. mars þetta ár.

Íbúarnir voru í losti, enda var óvíst hvað myndi taka við. Stalín var 74 ára þegar hann dó en þá hafði hann eytt 31 ári við stjórn­völ­inn í komm­ún­ista­rík­inu Sov­ét­ríkj­unum, hafði tekið við sem aðal­rit­ari Komm­ún­ista­flokks­ins árið 1922 og staðið fyrir blóð­ug­ustu atburðum í sögu Sov­ét­ríkj­anna fyrr og síðar.

Á meðan á hreins­unum Stalíns stóð snéri hann Sov­ét­ríkj­unum, landi öreiga og verka­fólks, gegn íbúum lands­ins og lét taka meira en 600 þús­und manns af lífi fyrir meinta póli­tíska glæpi. Ógn­ar­stjórn Stalíns varð þess utan vald­andi dauða margra millj­óna manns. Það er varla fjöl­skylda í Rúss­landi sem varð ekki fyrir áhrifum af Stalín.

Hlutverk Sov­ét­ríkj­anna í Seinni heims­styrj­öld­inni, þar sem meira en 26 millj­ónir Sov­ét­manna lét­ust, og þáttur Sov­ét­manna í að hrinda Þýska­landi nas­ista hlaut fljót­lega goð­sagna­kenndan stað í sögu­legu til­liti. Sigurinn varð til­eink­aður Stalín og hann gat í krafti þess orðið enn valda­meiri.

Árið 1953 var Stalín enn kynntur sem alráður leið­togi, jafn­vel þó heilsu hans hafi tekið að hraka hratt og hann orð­inn mjög hrumur. Það kom þess vegna almenn­ingi í Sov­ét­ríkj­unum á óvart að Stalín væri dauður.

[links]Útför leið­tog­ans var haldin 9. mars 1953. Hún var ofboðs­leg í sniðum, þar sem öll dag­skráin var vand­lega fram­kvæmd. Í Sov­ét­ríkj­unum átti ríkið allar kvik­mynda­vélar sem þar var að finna, í það minnsta þær sem festu útför­ina á filmu. Þannig hefur Kreml getað stjórnað því hvernig útförin kom fyrir sjónir þeirra sem ekki voru við­staddir.

Nýfundin upptaka af útförinni

Nú er það hins vegar breytt vegna þess að fyrstu óop­in­beru upp­tök­unni af útför Stalíns hefur verið varpað á alnetið. Martin Manhoff, ofursti í banda­ríska hernum, kvik­mynd­aði nefni­lega jarð­ar­för­ina úr glugga banda­ríska sendi­ráðs­ins sem þá var til húsa við Rauða torgið í Moskvu.

Á upp­töku Manhoffs má sjá annað sjón­ar­horn af útför ein­ræð­is­herr­ans en hingað til hefur sést. Opin­berar upp­tökur hafa allar verið klipptar og upp­tök­unum rit­stýrt þannig að þær sýndu aðeins lík­ræður fyr­ir­menna fyrir Stalín.

Mikilvægar heimildir um lífið í Sovétríkjunum

Óop­in­bera upp­takan er hins vegar hrá – stundum er upp­takan mjög hreyfð – og sýnir aðra hlið við­burð­ar­ins: Langar raðir upp­klæddra her­manna, kistu Stalíns hulda rauðum dúk og gríð­ar­lega langar raðir fólks með kransa.

Það var Douglas Smith, sagn­fræð­ingur í Seattle í Banda­ríkj­unum, sem fann upp­tök­urnar af útför­inni ásamt hund­ruðum mynda og kvik­mynda sem Martin Manhoff tók í Sov­ét­ríkj­unum. Manhoff-skjala­safnið svo­kall­aða er sjald­séður speg­ill á óvana­leg augna­blik í sögu Rúss­lands.

Endurreisn ímyndar Stalíns

Nú þegar Rússar líta frá vestr­inu á ný hefur ímynd Stalíns verið end­ur­reist í auknum mæli. Á vef The Moscow Times er sagt frá því að ný söfn hafi verið opnuð og minn­is­varðar reistir til heið­urs ein­ræð­is­herr­anum. Emb­ætt­is­menn hafi oftar vísað til þess sem þeir telja að hafi verið jákvætt við stjórn Stalíns. Þá hafi Komm­ún­ista­flokkur Rúss­lands, hyllt Stalín sem „ímynd vonar“ árið 2016.

Í könnun sem gerð var í febr­úar af Levada Center, sjálf­stæðum könn­un­ar­að­ila í Rúss­landi, kom fram að 46 pró­sent Rússa tengja Stalín jákvæðum hug­myndum. Stalín er einnig þriðji vin­sæl­asti rúss­neski leið­tog­inn, á eftir Vladimír Pútín og Leonid Brezhnev.

Komm­ún­istar eru 42 í Dúmunni, neðri deild rúss­neska þings­ins. Alls sitja þar 450 þing­menn, svo komm­ún­istar eiga um það bill níu pró­sent og eru næst stærsti flokk­ur­inn á þing­inu. Lang flestir þing­menn eru úr flokki Vla­dimírs Pútín, Sam­ein­uðu Rúss­landi eða 343.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár