Efling gerir kröfu á Samtök atvinnulífsins um 167 þúsund króna hækkanir á öll laun til 2025

Samn­inga­nefnd Eflingar vill að öll mán­að­ar­laun hækki um 167 þús­und krónur í áföngum, í samn­ingum sem byggi á for­skrift Lífs­kjara­samn­ings­ins og verði í gildi til árs­ins 2025. Kröfu­gerð stétt­ar­fé­lags­ins fyrir kom­andi kjara­við­ræður hefur verið birt.

Samninganefnd Eflingar afhenti Samtökum atvinnulífsins í dag kröfugerð sína fyrir komandi kjaraviðræður.
Samn­inga­nefnd Eflingar afhenti Samtökum atvinnu­lífs­ins í dag kröfu­gerð sína fyrir kom­andi kjara­við­ræður. Mynd: Bára Huld Beck

Efling - stétt­ar­fé­lag vill semja við Samtök atvinnu­lífs­ins um að öll mán­að­ar­laun hækki um sam­tals 167 þús­und krónur í áföngum á þriggja ára samn­ings­tíma nýrra kjara­samn­inga, sam­kvæmt því sem fram kemur í kröfu­gerð stétt­ar­fé­lags­ins sem send hefur verið á fjöl­miðla eftir að hafa verið afhent full­trúum SA fyrr í dag.

Samn­inga­nefnd Eflingar fer í kröfu­gerð­inni fram á samn­ing sem gildi til 1. nóv­em­ber 2025 þar sem „byggt verði á for­sendum og árangri Lífs­kjara­samn­ings­ins“. Farið er fram á að þrjár árlegar launa­hækk­anir verði, auk sér­stakrar fram­færslu­upp­bótar sem nemi 30 þús­und krónum.

Samn­inga­nefndin vill einnig að launa­lið­ur­inn verði með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði, þess efnis að hann beri að end­ur­skoða ef verð­bólga fari meira en einu pró­sentu­stigi yfir þær spár sem byggt er á.

Í kröfu­gerð Eflingar segir að krónu­tölu­hækk­anir séu öflug leið til að hækka lægstu laun sér­stak­lega, að heim­ili lág­launa­fólks hafi búið við langvar­andi halla­rekstur og að sú krónu­tölu­hækkun sem samið verði um þurfi að „vinda ofan af því óþol­andi ástandi að ráð­stöf­un­ar­tekjur lág­launa­fólks séu undir fram­færslu­við­miðum“.

30 daga orlof fyrir alla

Í kröfu­gerð Eflingar er einnig gerð krafa um lengra orlof, og að orlof verði 30 dagar bæði á almennum vinnu­mark­aði og hjá hinu opin­bera. Einnig segir að meta þurfi ábyrgð og álag í starfi til launa og vísað til þess að margir Efl­ing­ar­fé­lagar þurfi að sætta sig við fyr­ir­vara­lausa aukn­ingu vinnu­á­lags á dögum þegar und­ir­mönnun beri að dyrum.

Samn­inga­nefnd Eflingar vill einnig að rætt verði af fullri alvöru um mögu­leika til stytt­ingar vinnu­viku Efl­ing­ar­fé­laga á almenna vinnu­mark­aðnum, án þess að afleið­ingin verði aukið álag eða skerð­ing á nauð­syn­legri hvíld í vinnu.

[adspot]

Einnig eru settar fram kröfur um aðgerðir vegna kjara­samn­ings­brota. „Tryggja þarf strangar afleið­ingar fyrir launa­þjófnað. Stórbæta þarf fram­fylgd þegar umsam­inna rétt­inda í samn­ingum svo sem lág­marks­fyr­ir­vara um breyt­ingar á vak­ta­plönum, gerð ráðn­ing­ar­samn­inga og starfs­lýs­inga sem rýma saman, hvíld­ar­tíma bíl­stjóra og við­un­andi aðbúnað í gist­ingu á ferðum um landið,“ segir í kröfu­gerð Eflingar.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar segir í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu að verk­efni næstu þriggja ára sé skýrt í huga Efl­ing­ar­fólks.

„Við ætlum að halda áfram á þeirri braut að ná fram kjara­bótum fyrir félags­fólk Eflingar. Það þarf að verja launin okkar gegn verð­hækk­unum á lífs­nauð­synjum og það þarf að vinda ofan af halla­rekstri á heim­ilum lág­launa­fólks. Leið krónu­tölu­hækk­ana hefur sannað sig sem besta leiðin að þessum mark­miðum. Algjör ein­ing var meðal samn­inga­nefndar Efl­ing­ar­fé­laga um kröfu­gerð­ina,“ er haft eftir Sólveigu Önnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár