Verslunarmenn og Starfsgreinasambandið ætla saman í kjaraviðræðurnar

Lands­sam­band íslenzkra verzlunarmanna og Starfs­greina­sam­band Íslands ætla að „taka höndum saman“ í við­ræðum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins um nýjan kjara­samn­ing. Hátt í 90 þús­und manns á almennum vinnu­mark­aði eru innan lands­sam­band­anna tveggja.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður LÍV og Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður LÍV og Vil­hjálmur Birg­is­son er for­maður SGS. Mynd: Samsett mynd

Lands­sam­band íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) og Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS) hafa ákveðið að taka höndum saman í við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins um nýjan kjara­samn­ing á almennum vinnu­mark­aði.

Í sam­hljóða til­kynn­ingum lands­sam­tak­anna tveggja segir að ljóst sé að sam­starf LÍV og SGS muni „skila auknum slag­krafti í kjara­samn­ings­við­ræð­urnar“ en lands­sam­tökin eru leidd af þeim Ragnari Þór Ing­ólfs­syni for­manni VR og Vil­hjálmi Birg­is­syni for­manni Verka­lýðs­fé­lags Akraness.

[adspot]

Um er að ræða þau tvö stærstu af alls fimm lands­sam­tökum launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði og nær sam­starfið til hátt í 90 þús­und ein­stak­linga sem starfa á almennum vinnu­mark­aði innan alls tutt­ugu stétt­ar­fé­laga.

„Mjög ríkur vilji er innan beggja sam­banda að gera sam­eig­in­lega atlögu að nýjum kjara­samn­ingi þar sem áherslan verður á að auka kaup­mátt og tryggja stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni frá LÍV og SGS.

Ragnar Þór kallaði þetta „ofurbandalag“ árið 2018

Hug­myndir voru uppi um sam­flot LÍV og SGS fyrir kjara­við­ræðn­a­lot­una sem end­aði með gerð lífs­kjara­samn­ings­ins árið 2019. Ragnar Þór viðr­aði hug­mynd­ina þá í færslu á Facebook og kall­aði slíkt sam­starf „ofur­banda­lag“.

Af „ofur­banda­lag­inu“ í þeirri mynd varð hins vegar ekki og æxl­uð­ust málin meira að segja að lokum svo að VR, sem er langstærsta stétt­ar­fé­lagið innan LÍV, var ekki í sam­floti með hinum tíu félög­unum innan LÍV í við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins.

Hins vegar má segja að ákveð­inn vísir að því sam­starfi sem nú hefur raun­gerst hafi orðið að veru­leika þá þegar, enda fóru VR, Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness í sam­flot í kjara­við­ræðum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár