Ólöf Helga taldist ekki hafa umboð sem trúnaðarmaður – Uppsögnin ekki ólögleg

Félags­dómur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Icelandair hafi ekki brotið gegn lögum með því að segja Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur upp störfum sem hlaðmanni á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Ólöf Helga Adolfsdóttir var fyrrverandi trúnaðarmaður hlaðmanna á Reykjavíkurflugvelli er henni var sagt upp, að mati Félagsdóms.
Ólöf Helga Adolfs­dóttir var fyrr­ver­andi trún­að­ar­maður hlaðmanna á Reykja­vík­ur­flug­velli er henni var sagt upp, að mati Félags­dóms. Mynd: Efling stéttarfélag

Ekki er hægt að líta svo á að Ólöf Helga Adolfs­dóttir hafi í reynd haft umboð sem trún­að­ar­maður hjá Icelandair er flug­fé­lagið sagði henni upp störfum í ágúst í fyrra og ekki er heldur unnt að leggja til grund­vallar að henni hafi verið sagt upp sökum þess hvernig hún beitti sér sem örygg­is­trún­að­ar­maður á vinnu­staðnum.

Þetta eru megin nið­ur­stöður Félags­dóms, sem kvað upp dóm í mál­inu sem varðar upp­sögn Ólafar Helgu frá Icelandair í dag. Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir hönd Samtaka ferða­þjón­ust­unnar vegna Icelandair telj­ast því sýkn af kröfum Alþýðu­sam­bands Íslands, sem settar voru fram fyrir hönd Starfs­greina­sam­bands­ins vegna Eflingar stétt­ar­fé­lags sem rak málið áfram fyrir Ólöfu Helgu.

Engu breyti þótt samstarfsmenn hafi talið Ólöfu trúnaðarmann

Mál Ólafar Helgu vakti tölu­vert mikla athygli er það kom upp, en stétt­ar­fé­lagið Efling fór fram á að upp­sögn hennar yrði dregin til baka þar sem óheim­ilt væri fyrir Icelandair að segja upp starf­andi trún­að­ar­manni. Icelandair bar því hins vegar við að Ólöf Helga hefði ekki lengur haft umboð sem trún­að­ar­maður, en hún var kjörin af sam­starfs­fólki sínu til þess hlut­verks í mars 2018 til tveggja ára.

Félags­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ágrein­ings­laust væri að ekki hefði farið fram kosn­ing á trún­að­ar­manni á vinnu­staðnum eftir að því tíma­bili lauk, auk þess sem ekki væri séð að Ólöf Helga hefði verið til­nefnd af Eflingu stétt­ar­fé­lagi án kosn­ingar eða að upp­lýs­ingum um val hennar til áfram­hald­andi starfa sem trún­að­ar­maður starfs­manna hefði verið komið á fram­færi við Icelandair.

„Í ljósi þeirra atvika sem rakin hafa verið að framan og hinna skýru ákvæða sem giltu um aðferð við val trún­að­ar­manns sam­kvæmt kjara­samn­ingi er ekki unnt að líta svo á að Ólöf Helga hafi haft stöðu trún­að­ar­manns þegar henni var sagt upp störfum í ágúst 2021,“ segir í dómi Félags­dóms.

Einnig er því bætt við að það geti „ekki breytt þess­ari nið­ur­stöðu þó að a.m.k. ein­hverjir sam­starfs­menn Ólafar Helgu, sem og til­teknir stjórn­endur, kunni að hafa litið á hana sem trún­að­ar­mann“. Vísað er til dómafor­dæmis úr Hæsta­rétti hvað þetta atriði varðar.

Ólöf Helga hafði einnig verið svo­kall­aður örygg­is­trún­að­ar­maður hjá Air Iceland Connect áður en henni var sagt upp og taldi sig einnig eiga að njóta verndar vegna upp­sagna á þeim grund­velli.

Félags­dómur segir óum­deilt að Ólöf Helga og annar starfs­maður Air Iceland Connect hafi verið kosin í febr­úar 2020 til þess að gegna starfi örygg­is­trún­að­ar­manna í örygg­is­nefnd fyr­ir­tæk­is­ins, þó að reyndar sé til­tekið í dómnum að það séu engin merki um að sú nefnd hafi nokkru sinni komið saman.

[adspot]

Dómurinn féllst hins vegar einnig á rök­semdir Icelandair þess efnis að þegar starf­semi Air Iceland Connect var felld undir hatt Icelandair hafi umboð örygg­is­nefndar þeirrar sem var á vegum Air Iceland Connect fallið niður – örygg­is­nefndin hætt að vera til.

Þrátt fyrir það telur dóm­ur­inn að Ólöf Helga hafi áfram, eftir að Icelandair sam­tvinn­aði rekstur inn­an­lands­flugs­ins við móð­ur­fé­lagið, átt að njóta þeirrar verndar gegn upp­sögn sem staða hennar sem örygg­is­trún­að­ar­maður veitti henni.

Félags­dómur telur hins vegar ekki unnt að leggja til grund­vallar að það hafi verið fyrri störf Ólafar Helgu sem örygg­is­trún­að­ar­manns sem hafi verið ástæða upp­sagn­ar­innar, jafn­vel þótt ástæða upp­sagn­ar­innar sé sögð „nokkuð á reiki“.

„Þegar upp kom ágrein­ingur um hvort starfs­menn hlað­deildar eða far­þega­af­greiðslu skyldu ann­ast flutn­ing far­þega um borð í flug­vélar hafði Ólöf Helga ekki for­göngu um að málið yrði tekið upp á vett­vangi örygg­is­nefndar fyr­ir­tæk­is­ins. Af gögnum máls­ins verður ekki annað ráðið en að fram­ganga hennar í mál­inu hafi aðal­lega byggst á stöðu hennar sem flokks­stjóra í hlað­deild og að öðru leyti sem málsvari starfs­manna deild­ar­innar enda þótt hún hafi ekki gegnt stöðu trún­að­ar­manns,“ segir um þetta atriði í dómi Félags­dóms.

Dómnum þótti rétt að láta máls­kostnað milli aðila falla niður í ljósi atvika máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár