Líklegra að blóminn tengist hnattrænni hlýnun en laxeldi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun telur að þör­unga­blómi í fjörðum á Vest­fjörðum, sem ekki hefur áður sést að hausti í íslenskum firði, sé ekki til­kom­inn vegna sjó­kvía­eldis. Lofts­lags­breyt­ingar séu lík­legri skýr­ing.

Á gervitunglamynd sem tekin var nú í september sést blóminn mjög vel í Arnarfirði.
Á gervi­tungla­mynd sem tekin var nú í sept­em­ber sést blóm­inn mjög vel í Arn­ar­firði. Mynd: NASA

„Það er lík­legra að þetta sé þáttur í hnatt­rænni hlýnun en að þetta teng­ist eld­inu,“ segir Sara Harð­ar­dóttir, sér­fræð­ingur í svif­þör­ungum hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun, við Kjarnann. Talið er að kalk­þör­unga­teg­undin sem í byrjun mán­aðar breidd­ist frá einum firði til ann­ars á Vest­fjörðum og gaf þeim grænan lit, sé ekki skað­leg, að sögn Söru. Umfangs­mikið fisk­eldi er stundað í Arn­ar­firði þar sem blóm­inn var hvað mestur. „Blómar af þessu tagi hafa verið að aukast síð­ustu ára­tugi og það hefur verið stilla fyrir vestan.“

[adspot]

Yfirborð sjávar í Arn­ar­firði tók á sig græn­leitan blæ í byrjun sept­em­ber. Þar sem árs­tíð og stað­setn­ingar eru óvenju­legar fyrir plöntu­svifs­blóma af því tagi sem stundum sést á gervi­hnatta­myndum, rann­sak­aði Haf­rann­sókn­ar­stofnun yfir­borðs­sýni og var nið­ur­staðan sú að þarna hefði mynd­ast þéttur blómi af agn­arsmáum (5-7 µm) kalk­svif­þör­ungi sem nefn­ist Emil­i­ania hux­leyi.

Á gervi­hnatta­myndum má sjá að þör­unga­blóm­inn, sem fyrst sást frá Bíldudal, breidd­ist á nokkrum dögum út og yfir í Dýra­fjörð og sams­konar blómi hófst einnig í Hest­firði.

Blómar svif­þör­unga verða þegar skil­yrði eru góð fyrir við­kom­andi teg­und, en þegar líða fer á blóma Emil­i­ania hux­leyi fara að sjást mjólk­ur­hvítar slæður á yfir­borð­inu sem er afleið­ing þess að frum­urnar losa sig stöðugt við kalk­flögur sem hylja yfir­borð þeirra. Samkvæmt upp­lýs­ingum Hafró hefur blómi af þessu tagi veru­leg áhrif á bæði kals­íum- og kolefn­is­hringrás sjávar. Þör­ung­ur­inn bindur kalk úr upp­leystu kals­íum og bík­ar­bónati. Frum­urnar sökkva til botns og kalk­flög­urnar mynda að lokum kalkrík set­lög á hafs­botni.

Bindur koltvísýring – en losar hann líka

Eins og annað plöntu­svif nýtir Emil­i­ania hux­leyi koltví­sýr­ing úr and­rúms­loft­inu til ljóstil­líf­unar og getur teg­undin bundið umtals­vert magn kolefnis. En þar sem fram­leiðsla kals­íum­kar­bónats losar einnig koltví­sýr­ing er það háð vaxt­ar­skil­yrðum hvort kolefn­is­bind­ingin eða losun koltví­sýr­ings­ins er hlut­falls­lega meiri hjá teg­und­inni.

Engar heim­ildir liggja fyrir hjá Haf­rann­sókna­stofnun um að haust­blómi af þessu tagi hafi áður haf­ist í íslenskum firði. Algengt er að flekkir af Emil­i­ania hux­leyi sjá­ist á gervi­hnatta­myndum, ef marka má ofan­greind lit­brigði, og nær árlega á haf­svæð­inu suður og suð­vestur af land­inu. Und­an­farin ár hafa slíkir flekkir verið að ber­ast vestur um og norður fyrir landið fram á haust­mán­uði. Stöku sinnum hafa þeir blómar dreifst um haf­svæðið norðan lands­ins, en Hafró telur ekki að umræddur blómi fyrir vestan sé afleið­ing af slíkri fram­vindu.

Lágur styrkur nær­ing­ar­efna, sér í lagi kís­ils, leiðir til að aðrar teg­undir geta síður þrif­ist. Ef það er nægt köfn­un­ar­efni til staðar og stilla á sól­ríkum dögum eins og skil­yrðin gætu hafa verið á Vest­fjörðum, getur þör­ung­ur­inn leitað upp í yfir­borðið og fært sér í nyt hag­stætt umhverfi.

Kalk­svif­þör­ungar eru frum­fram­leið­endur og alla jafnan skað­lausir fyrir aðrar líf­verur í umhverf­inu. „Ekki er ástæða til að ætla að blóm­inn sé skað­legur umhverf­inu né fisk­eld­inu á svæð­inu,“ segir í upp­lýs­ingum frá Hafró.

Þau skil­yrði sem hafa stuðlað að blóma Emil­i­ania hux­leyi við landið eru inn­streymi heits og salts Atl­ans­sjávar, sól­ríkir og lygnir dagar og lágur styrkur nær­ing­ar­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár