Fiskistofa mun taka upp veiðiaðferðir Hvals hf.

Ný reglu­gerð um veru­lega hert eft­ir­lit með hval­veiðum hefur verið sett og tekur gildi þegar í stað. Veiði­eft­ir­lits­menn munu héðan í frá verða um borð í veiði­ferðum Hvals hf.

Langreyður dregin á land í Hvalfirði með sprengiskutulinn enn í sér.
Lang­reyður dregin á land í Hval­firði með sprengiskut­ul­inn enn í sér. Mynd: Hard to Port

„Það er fagn­að­ar­efni að þessar lyk­il­stofn­anir skuli vera í sam­starfi um eft­ir­litið. Þar er sér­fræði­þekk­ing­una að finna og gögnin sem safn­ast munu geta skorið úr um það hvort að fram­kvæmd hval­veiða sé lögum sam­kvæmt,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sem sett hefur reglu­gerð um eft­ir­lit við hval­veiðar. Í henni er Mat­væla­stofnun falið að hafa reglu­bundið eft­ir­lit með veið­unum til að farið sé að lögum um vel­ferð dýra og Fiski­stofa mun sjá um fram­kvæmd eft­ir­lits­ins sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi sam­starfs­samn­ingi milli stofn­an­anna tveggja.

[links]Í til­kynn­ingu um málið frá mat­væla­ráðu­neyt­inu segir að Fiski­stofa muni m.a. sjá um eft­ir­lits­ferðir við veiðar, mynd­bands­upp­tökur veiði­að­ferða og skrán­ingu þeirra. Veiði­eft­ir­lits­menn munu verða um borð í veiði­ferðum og verður öllum gögnum komið til eft­ir­lits­dýra­læknis í lok hverrar athug­unar.

Fiski­stofa hefur einnig eft­ir­lit með því að þau skil­yrði sem fram koma í veiði­leyfi varð­andi veiði­búnað og veiðar séu upp­fyllt.

Reglu­gerðin tekur þegar gildi og mun eft­ir­litið hefj­ast sam­stundis.

Á yfir­stand­andi hval­veiði­ver­tíð hefur það marg­sinnis komið fyrir að sprengiskutlar sem Hvalur hf. notar við veið­arnar hafi geigað og ekki sprungið. Því hafi þurft að skjóta dýrin aftur sem tekur tíma og getur lengt dauða­stríð þeirra. Dæmi er um, líkt og Kjarninn hefur fjallað um að fjögur skot hafi þurft til að aflífa eitt dýr. Eitt dýrið var skotið í bægsli og þurfti því að skjóta það aftur. Það var lang­reyð­ar­kýr sem reynd­ist kelfd og var fóstrið skorið úr henni á vinnsluplan­inu við Hval­stöð­ina.

[adspot]

Sjáv­ar­vernd­ar­sam­tökin Hard to Port hafa fylgst náið með og myndað löndum og verkun hval­anna í hval­stöð­inni í Hval­firði í sumar. Full­trúar þeirra telja ljóst að aflíf­un­ar­að­ferð­irnar brjóti gegn lögum um dýra­vel­ferð.

Kjarninn leit­aði við­bragða Svan­dísar vegna þess­ara mála fyrr í sumar og benti hún á að hvorki ráðu­neyti hennar né und­ir­stofn­arnir þess hefðu upp­lýs­ingar um hvort verk­lags­reglum um hval­veiðar væri fylgt. „Það er alveg skýrt í mínum huga að ef atvinnu­greinar sem byggja á dýra­haldi eða veiðum geta ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra eiga þær sér enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi, sagði Svandís við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár