Krefjast rannsóknar á meintum ólöglegum veiðum Hvals hf. frá árinu 2017

Lögmaður Jarð­ar­vina hefur kraf­ist þess að Lög­reglu­stjóri Vest­ur­lands rann­saki meintar ólög­legar veiðar Hvals hf. frá árinu 2017. Samkvæmt Jarð­ar­vinum féll veiði­leyfi Hvals hf. niður eftir að félagið stund­aði engar lang­reyði­veiðar á árunum 2016 og 2017.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin Jarð­ar­vinir hafa óskað eftir því að lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi taki til taf­ar­lausrar rann­sóknar og eftir atvikum sæki for­svars­menn Hvals hf. til saka þar sem þeir telja veiði­leyfi félags­ins hafi fallið niður eftir veiði­hlé félags­ins á árunum 2016 og 2017. Lög­reglu­stjóri Vest­ur­lands hefur nú þegar til rann­sóknar tvær aðrar kærur um meint brot Hvals hf.

Veiðileyfi falla úr gildi ef ekki er veitt í 12 mánuði

Í bréfi lög­manns Jarð­ar­vina til lög­reglu­stjóra Vest­ur­lands, sem dag­sett er þann 29.apríl síð­ast­lið­inn, er greint frá því að í 1.mgr. 4.gr laga nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða segir að veiði­leyfi í atvinnu­skyni falli niður hafi fiski­skip ekki verið haldið til fisk­veiði í atvinnu­skyni í tólf mán­uði. Í bréf­inu segir að þar sem Hvalur hf. hafi ekki haldið til lang­reyða­veiða á árunum 2016 og 2017, eða í meira en tólf mán­uði, hafi veiði­leyfi Hvals hf. fyrir árin 2012 til 2018 fallið niður. Samkvæmt bréf­inu var ekki nýtt leyfi til hval­veiða gefið út til Hvals hf. eftir veiði­hléið 2016 til 2017 og því hafi allir veiðar Hvals hf. eftir það verið ólög­legar og refsi­verðar sam­kvæmt 1.gr og 10.gr laga um hval­veiðar.

Í lögum um hval­veiðar segir að brot varði allt að sex mán­aða fang­elsi, upp­töku á veiði­tækjum skips, byssum, skot­línum, skot­færum svo og öllum afla skips­ins. Einnig er talað um að kyrr­setja skuli skip sem staðið er að meintum ólög­legum veiðum þegar það kemur til hafnar og er ekki heim­ilt að láta það laust fyrr en dómur hefur verið kveð­inn upp í máli ákæru­valds gegn skip­stjóra skips­ins eða máli hans lokið á annan hátt.

Veiddu langreyði fyrir 2.4 milljarða í fyrra

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Jarð­ar­vinum mun Hvalur hf. hafa veitt 144 lang­reyða og 2 blend­inga árið 2018. Sölu­verð­mæti hverrar lang­reyðar eru 16,4 millj­ónir króna sam­kvæmt skýrslu Háskóla Íslands frá jan­úar síð­ast­liðnum. Á þeim grund­velli, væri sölu­verð­mæti afla Hvals hf. árið 2018, miðað við 144 dýr, nær 2.4 millj­örðum króna. Jarð­vinir halda því hins vegar fram að að veiði­leyfi Hvals hf. hafi verið fallið úr gildi árið 2018.

Lögmaður Jarð­ar­vina krest þess að hin opin­bera rann­sókn og eftir atvikum sak­sókn nái einnig til ofan­greindra atvika en auk þess­arar kæru hefur lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi tvær aðrar kærur á hendur Hvals hf. til rann­sóknar.

Ríkissaksóknari felldi úr gildi ákvörðun lögreglustjóra um að hætta rannsókn

Jarð­ar­vinir kærðu Hval hf. í ágúst í fyrra fyrir brot á reglu­gerð um hval­veiðar. Kæran var í þremur liðum og sneri að veiðum Hvals hf. á blend­ings­hval, skut­ul­byss­unum sem not­aðar eru við veið­arnar og loks að vinnslu og verkun afurða. Rík­is­sak­sókn­ari sendi kæruna til með­ferðar hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi, sem til­kynnti í des­em­ber að rann­sókn­inni hefði verið hætt. Jarð­ar­vinir kærðu þá ákvörðun lög­reglu­stjóra .

Rík­is­sak­sókn­ari tók kæruna fyrir, stað­festi ákvörðun lög­reglu um að hætta rann­sókn á skut­ul­byssum og blend­ingsveiðum en síð­ast­nefnda brotið skal rann­saka áfram, segir í ákvörðun rík­is­sak­sókn­ara. Samkvæmt kærunni fór Hvalur hf. ekki að reglum um að um að vinnsla afurða skuli fara fram á yfir­byggðum skurð­ar­fleti og þykir rík­is­sak­sókn­ara fyllsta ástæða til að afla frek­ari gagna um þetta atriði. Jafn­framt beinir rík­is­sak­sókn­ari því til lög­regl­unnar á Vest­ur­landi að emb­ættið rann­saki hvort Hvalur hf. hafi van­rækt þá skyldu sína að skila veiði­dag­bókum skip­stjóra til Fiski­stofu. Það voru einnig sam­tökin Jarð­ar­vinir sem ósk­uðu eftir því að skil veiði­dag­bóka yrðu rann­sökuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár