Greiðslur úr ríkissjóði bjargvættur bókaútgáfu en meira hafi mátt renna til höfunda

Fram­kvæmda­stjóri Rit­höf­unda­sam­bands Íslands segir að skoða þurfi gaum­gæfi­lega hvort stuðn­ingur rík­is­ins við bóka­út­gáfu hafi skilað mark­miði sínu. Formaður Félags íslenskra bóka­út­gef­enda segir mark­miðum laga um stuðn­ing­inn svo sann­ar­lega hafa verið náð.

Ragnheiður Tryggvadóttir, framvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands og Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
Ragn­heiður Tryggva­dóttir, fram­væmda­stjóri Rit­höf­unda­sam­bands Íslands og Heiðar Ingi Svansson, for­maður Félags íslenskra bóka­út­gef­enda Mynd: Samsett/Kjarninn

Fara þarf gaum­gæfi­lega yfir hvaða áhrif end­ur­greiðsla kostn­aðar vegna útgáfu bóka á íslensku hefur haft á íslenska bóka­út­gáfu að mati Ragn­heiðar Tryggva­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Rit­höf­unda­sam­bands Íslands, en sú vinna stendur nú yfir hjá sam­band­inu. Heiðar Ingi Svansson, for­maður Félags íslenskra bóka­út­gef­enda segir aftur aftur á móti að end­ur­greiðsl­urnar sem voru lög­festar árið 2019 hafi ótví­rætt haft jákvæð áhrif og hrein­lega bjargað íslenskum bóka­mark­aði.

Kjarninn fjall­aði á dög­unum um end­ur­greiðsl­urnar sem hófust árið 2019 eftir að lög um stuðn­ing við útgáfu bóka á íslensku voru sam­þykkt á Alþingi. Markmið lag­anna er að efla íslenska bóka­út­gáfu með því að veita bóka­út­gef­endum stuðn­ingin í formi end­ur­greiðslu á allt að fjórð­ungi kostn­aðar við útgáfu. Lögin verða end­ur­skoðuð fyrir lok lok næsta árs en þar að auki skal ráð­herra láta gera úttekt á árangri stuðn­ings­ins fyrir lok þessa árs. [links]

Þessar end­ur­greiðslur námu á fjórða hund­rað millj­óna króna bæði í fyrra og í hitti­fyrra en upp­hæðin var öllu lægri árið 2019, enda hafa útgef­endur níu mán­uði til þess að sækja um end­ur­greiðslu eftir að bók kemur út. Þar sem upp­hæð end­ur­greiðsl­unnar fer eftir kostn­aði við útgáfu fá þau verk hæstu end­ur­greiðsl­una sem bera mestan kostnað. Sund­ur­liðað eftir útgjalda­liðum fá útgef­endur mest end­ur­greitt fyrir prent­kostnað. Því er ljóst að þær bækur sem eru prent­aðar í stórum upp­lögum fá hæstar end­ur­greiðslur, enda raða þekktir met­sölu­titlar sér í mörg af efstu sætum þeirra bóka sem fengið hafa hæstu end­ur­greiðsl­urnar á síð­ustu árum.

Vill að höfundar fái meira í sinn hlut

Því hljóta ein­hverjir að spyrja sig: „Á ríkið að borga undir útgáfu met­sölu­bóka?“ Þetta er ein af þeim spurn­ingum sem Ragn­heiður Tryggva­dóttir segir Rit­höf­unda­sam­bandið vera með til skoð­unar.

„Við erum í þeirri vinnu að fara gaum­gæfi­lega yfir þetta og við erum með alls­konar svona spurn­ingar eðli­lega. Við erum ekki komin svo langt í ferl­inu að geta sagt til um hvort þetta sé endi­lega slæmt, að bók sem að hvort eð er selst svona mikið fái þetta háa end­ur­greiðslu því við þurfum nátt­úr­lega líka að skoða hvort það komi ein­hverju öðru til góðs. En vissu­lega, það er ekk­ert leynd­ar­mál að menn vilja reikna það dæmi mjög vel.“ segir Ragn­heiður. [adspot]

Hún bendir í kjöl­farið á hversu gagn­sætt kerfið er. Útgef­endur gefa upp sinn kostnað og fá svo allt að fjórð­ung hans end­ur­greiddan. Hún segir engu að síður nauð­syn­legt að skoða það gaum­gæfi­lega hvort end­ur­greiðsl­urnar hafi skilað mark­miði sínu sem er að auka og bæta bóka­út­gáfu.

Spurð að því hvort end­ur­greiðsl­urnar hafi skilað sér til höf­unda segir Ragn­heiður þær hafa gert það að litlu leyti. „Höfundur fær 45 pró­sent hlut af greiðslu til útgef­and­ans frá íslenska rík­inu vegna end­ur­greiddra höf­und­ar­launa fyrir við­kom­andi verk. Þannig að bóka­út­gef­and­inn fær 25 pró­sent af áætl­uðum höf­und­ar­launum til baka frá rík­inu og af þessum pen­ingum, af þessum 25 pró­sentum borgar hann höf­und­inum innan við helm­ing – 45 pró­sent.“

Spurð að því hvort ekki megi kalla þetta kjara­bót fyrir höf­unda segir Ragn­heiður: „Já, en mjög langt frá því að vera það sem við vildum. Okkur finnst í raun­inni að þetta eigi bara að skila sér til höf­unda.“

„Fjölbreytt bókaútgáfa gagnast lesendum.“

Fram kom í grein­ar­gerð sem fylgdi laga­frum­varp­inu um stuðn­ing­inn þegar það var lagt fram að end­ur­greiðsl­urnar ættu að geta leitt af sér lækkun á bóka­verði. Ragn­heiður segir það ekki hafa tek­ist. Lækkun bóka­verðs myndi heldur ekki endi­lega gagn­ast höf­undum. „Það myndi út af fyrir sig ekki koma höf­undum neitt sér­stak­lega vel því höf­und­ar­laun eru greidd sem pró­senta af heild­sölu­verði bókar,“ segir Ragn­heiður og bætir því við að höf­und­arnir sjálfir hafi ekki kallað sér­stak­lega eftir því að bóka­verð myndi lækka. „Nema ef hægt væri að setja dæmið þannig upp að það myndi auka söl­una svo mikið, því það er aukin sala sem skilar sér í vasa höf­und­anna.“

Spurð að því hvort end­ur­greiðsl­urnar hafi þar af leið­andi ekki gagn­ast les­endum að neinu marki segir Ragn­heiður ekki geta gefið já eða nei svar. „Ef þú hugsar þetta þannig að þetta eigi að gagn­ast bóka­út­gáfu í heild sinni og þar með auð­velda útgáfu á bókum sem kannski yrðu ekki gefnar út, þá auð­vitað gagn­ast þetta les­endum því fjöl­breytt bóka­út­gáfa gagn­ast les­endum.“

Til þess að meta árang­ur­inn þurfi því að fara í saumana á því hvernig end­ur­greiðsl­urnar hafa skilað sér og segir Ragn­heiður þá vinnu standa yfir.

„Það hefur tekist að bjarga þessari grein“

Heiðar Ingi Sig­urðs­son, for­maður Félags íslenskra bóka­út­gef­enda segir það aftur á móti skýrt að stuðn­ing­ur­inn hafi bjargað íslenskri bóka­út­gáfu. Hann segir að þegar lögin voru sett hafi staðið yfir mikið sam­drátt­ar­skeið í sölu bóka hér á landi. „Það hefur tek­ist að bjarga þess­ari grein, það hefur verið vöxtur síðan að lögin voru sett. Veltan var 2,4 millj­arðar árið 2018, sam­kvæmt Hag­stof­unni, og í fyrra 4,1 millj­arður, sem þýðir að já, það hefur tek­ist svo um munar.“

Hann segir að í kjöl­far þess að stuðn­ingi hafi verið komið á hafi fjöl­breytni í bóka­út­gáfu einnig auk­ist, bæði hvað varðar útgáfu­form, til dæmis hafi fleiri raf­bækur og hljóð­bækur komið út á síð­ustu árum, en einnig nefnir hann sér­stak­lega barna­bæk­urnar. „Útgáfan er alla­vega miklu blóm­legri og fjöl­breytnin meiri heldur en áður, eðli­lega.“

Heiðar bendir á að hlut­fallið af stuðn­ingi nemi um níu pró­sentum af veltu í grein­inni, sumum kunni að finnst það lágt hlut­fall en öðrum að ríkið eigi alls ekki að standa í slíkum styrkt­ar­greiðslum. „Auðvitað er alltaf hægt að spyrja sig hvort ríkið eigi að styðja menn­ingu og listir og hvernig eigi að gera það og hvernig því sé best komið fyrir. Ég held að nið­ur­staðan sé sú, almennt séð, að þessi aðferð sem beitt er á kvik­myndir, tón­list og bóka­út­gáfu sé góð.“

Telur bókaverð ekki hafa haldið í við verðbólgu

Spurður út í það hvort nauð­syn­legt sé að styðja við bakið á útgáfu met­sölu­bóka segir Heiðar erfitt að svara því ját­andi eða neit­andi. „Þá getur maður spurt sig, hvaða aðferð væri betur til þess fallin að ná sama árangri? Hugsunin í þessu öllu er að þetta er almenn aðgerð, að þetta sé almennur stuðn­ingur,“ segir Heiðar og bendir á að núver­andi fyr­ir­komu­lag sé gagn­sætt sem skiptir máli.

„Ramminn er alveg skýr, það er ekki verið að flokka bækur eftir efn­is­tökum, inni­haldi sölu­mögu­leikum og svo fram­vegis,“ segir Heiðar. „Ef þú ætlar að flokka bækur þannig þá ertu búinn að skemma hag­fræði­legu rökin. Hag­fræði­legu rökin eru þau að svo fram­ar­lega sem þú gefur út bók og hún upp­fyllir þau skil­yrði sem eru sett, sem eru almenn og gegnsæ, þá færðu end­ur­greiðslu.“

Líkt og áður segir var í grein­ar­gerð með frum­varp­inu talað um að verð bóka ætti að geta lækkað eftir inn­leið­ingu á end­ur­greiðsl­unum. Heiðar seg­ist ekki hafa skoðað þetta atriði ofan í kjöl­inn en telur að þetta mark­mið hafi náðst. „Ef þú skoðar verð bóka eða þróun á verði bóka í sam­an­burði við almennar verð­hækk­anir, ef þú skoðar verð­bólgu og tekur verð­bólgu­þróun inn í þetta, þá tel ég að verð bóka hafi hlut­falls­lega lækkað und­an­farin ár,“ segir hann og bætir við að þarna hafi end­ur­greiðslan hjálpað til við að halda aftur af verð­hækk­unum.

Hvað höf­undana varðar, þá telur Heiðar að þessi aðgerð hafi einnig komið þeim til góða. „Hags­munir höf­unda eru bein­tengdir við hags­muni útgef­enda. Ef að útgefnum bókum fjölgar eða ef veltan eykst eða brans­inn stækkar að umfangi þá eykst ábati höf­unda í hlut­falli við það, það gefur auga­leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár