15 milljónir úr ríkissjóði til Forlagsins vegna bóka Arnaldar á síðustu tveimur árum

Ríkið hefur styrkt íslenska bóka­út­gáfu með end­ur­greiðslu á fjórð­ungi kostn­aðar frá árinu 2019. Sá tit­ill sem hefur fengið hæstu end­ur­greiðsl­una fékk tæpar 11 millj­ónir. Lög um stuðn­ing við útgáfu bóka á íslensku verða end­ur­skoð­uðu fyrir lok næsta árs.

Bækur Arnaldar Indriðasonar raða sér í tvö af þremur efstu sætunum yfir þá bókatitla sem fengið hafa hæstu endurgreiðslurnar á kostnaði úr ríkissjóði.
Bækur Arnaldar Ind­riða­sonar raða sér í tvö af þremur efstu sæt­unum yfir þá bókatitla sem fengið hafa hæstu end­ur­greiðsl­urnar á kostn­aði úr rík­is­sjóði. Mynd: Samsett/Kjarninn

Bóka­út­gef­endur fengu 374 millj­ónir króna end­ur­greiddar frá rík­is­sjóði vegna kostn­aðar við bóka­út­gáfu á síð­asta ári. End­ur­greiðsl­urnar voru enn meiri árið á undan þegar þær námu alls 398 millj­ónum. Slíkar end­ur­greiðslur voru festar í lög árið 2019 en end­ur­greiðslur það ár námu alls 78 millj­ónum. Það skýrist af því að bóka­út­gef­endur hafa níu mán­uði frá útgáfu bókar til þess að sækja um end­ur­greiðslu. End­ur­greiðslur vegna fyrsta jóla­bóka­flóðs­ins eftir að stuðn­ing­ur­inn var sam­þykktur er þar af leið­andi að lang­mestu leyti inni í tölum árs­ins 2020 um end­ur­greiðslur.

Lög um stuðn­ing við útgáfu bóka á íslensku voru sam­þykkt á Alþingi í des­em­ber árið 2018. Markmið lag­anna „er að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bóka­út­gef­endum tíma­bund­inn stuðn­ing í formi end­ur­greiðslu á hluta kostn­aðar sem fellur til við útgáfu bóka á íslensku.“ Þau tóku gildi strax í upp­hafi árs 2019 en þau koma til end­ur­skoð­unar fyrir lok árs 2023. Þá skal ráð­herra láta gera úttekt á árangri þessa stuðn­ings við íslenska bóka­út­gáfu fyrir lok þessa árs.

Prentun dýrasti kostnaðarliðurinn

Á heima­síðu Rannís má sjá nið­ur­brot á end­ur­greiðslum eftir kostn­að­ar­liðum. Á síð­asta ári vó prentun þyngst í end­ur­greiðsl­unni af ein­stökum kostn­að­ar­liðum, eða 28,1 pró­sent. Kostn­aður vegna prent­unar á þeim bókum sem fengu stuðn­ing á síð­asta ári nam rúmum 420 millj­ónum og því voru rúm­lega 105 millj­ónir end­ur­greiddar vegna prent­kostn­aðar. Þar á eftir koma höf­und­ar­laun, sem voru 20,2 pró­sent af kostn­aði og aug­lýs­ingar en 12,9 pró­sent af útgáfu­kostn­aði féll til vegna þeirra.

Það for­lag sem fékk hæstu end­ur­greiðsl­una í fyrra var Forlagið, rúma 91 milljón af þeim tæpu 374 millj­ónum sem end­ur­greiddar voru. Frá árinu 2019 hefur for­lagið fengið 240 millj­ónir end­ur­greiddar vegna kostn­aðar við bóka­út­gáfu félags­ins. Næst á eftir For­lag­inu kemur for­lagið Bjartur og Veröld, end­ur­greiðslan til þess for­lags nam rúmum 37 millj­ónum í fyrra.

Þegar end­ur­greiðslur vegna ein­stakra titla eru skoð­aðar sést hversu umfangs­mikið Forlagið er í íslenskri bóka­út­gáfu. Þeir þrír tillar sem hæstar end­ur­greiðslur hafa fengið voru gefnir út af For­lag­inu en það á alls fjóra titla á lista þeirra tíu titla sem hæstar end­ur­greiðslu hafa fengið.

Hæsta endurgreiðslan nemur ellefu milljónum

Sá tit­ill sem fengið hefur hæsta end­ur­greiðslu er bókin Síld­ar­árin 1867-1969 eftir Pál Baldvin Bald­vins­son. Forlagið fékk rétt um ell­efu millj­ónir end­ur­greiddar vegna kostn­aðar sem féll til við útgáfu þeirrar bókar, það þýðir að end­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður við útgáfu bók­ar­innar nam rúmum 43,8 millj­ónum.

Næstu tvær bækur á list­anum yfir þær sem hafa fengið hæstu end­ur­greiðsl­urnar eru bækur eftir Arnald Ind­riða­son. Bók Arnaldar, Treg­a­steinn, kom út árið 2019 og árið 2020 fékk Forlagið tæpar 7,7 millj­ónir end­ur­greiddar vegna kostn­aðar við útgáf­una. Ári síðar kom bókin Þagn­ar­múr út. End­ur­greiðslur vegna hennar nema rúmum 7,4 millj­ónum króna.

Á meðal þeirra bóka sem fengið hafa hæsta end­ur­greiðslu eru einnig bækur sem gefnar eru út af öðrum en stóru for­lög­unum. Þar má til dæmis finna Árbækur Ferða­fé­lags Íslands, þar má finna eina prjóna­bók sem gefin er út af Sögum útgáfu. Ofarlega á lista er bókin Skipulag eftir Sólrúnu Diego en hana gefur for­lagið Fullt tungl út, for­lag Björns Braga Arn­ars­sonar. Allir þessir titlar skil­uðu for­lögum sínum yfir þremur millj­ónum í end­ur­greiðslur.

Gert ráð fyrir að verð bóka myndi lækka

End­ur­greiðslur síð­ustu tveggja ára nema, líkt og áður segir, 374 millj­ónum og 398 millj­ónum. Það er nokkuð í takt við það sem gert var ráð fyrir í frum­varpi til laga um stuðn­ing við útgáfu bóka á íslensku. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kom það meðal ann­ars fram í kafl­anum um mat á áhrifum að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna stuðn­ings­ins væri áætl­aður um 300 til 400 millj­ónir á ári.

Í sama kafla var einnig sagt að meg­in­mark­mið frum­varps­ins væri að efla og styðja bóka­út­gáfu á íslensku til að vernda íslensku sem ætti undir högg að sækja og að efla læsi. Þar kom einnig fram að stuðn­ing­ur­inn ætti að gera bóka­út­gef­endum kleift að lækka verð á bókum um að lág­marki 10 pró­sent, eða gagn­ast þeim á annan hátt, til að mynda til frek­ari fjár­fest­ingar vegna útgáfu á raf- og hljóð­bókum.

„Gera má ráð fyrir því að ábati neyt­enda muni fel­ast í verð­lækkun bóka og fjöl­breytt­ara úrvali bóka, m.a. á raf­rænum miðlum. Hvort tveggja er til þess fallið að hvetja til lestrar á íslensku og styðja þannig við íslenska tungu og menn­ingu sem stuðlar að auk­inni hag­sæld fyrir allan almenn­ing,“ segir í frum­varp­inu.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin hefur verið upp­færð og fyr­ir­sögn hennar breytt eftir að ábend­ingar frá starfs­fólki Rannís bár­ust Kjarn­anum þess efnis að end­ur­greiddur kostn­aður ein­stakra titla var ofmet­inn. Á gagna­torgi þar sem sjá má yfir­lit yfir úthlut­anir fyrir hvern titil er tala fyrir kostnað við útgáfu hvers titil birt í stað úthlut­unar. Gagna­torgið hefur nú verið upp­fært.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár