Verðbólgan mælist nú 7,6 prósent – Ekki verið meiri í meira en tólf ár

Hús­næð­is­kostn­aður, matur og drykkur, nýir bílar og bensín hækk­uðu í verði í síð­asta mán­uði. Verð á flug­far­gjöldum dróst hins vegar saman. Verð­bólga hefur ekki mælst jafn mikil á Íslandi frá því í apríl 2010.

Verð á flugfargjöldum lækkaði um 6,9 prósent milli mánaða. Aðrar hækkanir gerðu það hins vegar að verkum að verðbólgan hélt áfram að rísa.
Verð á flug­far­gjöldum lækk­aði um 6,9 pró­sent milli mán­aða. Aðrar hækk­anir gerðu það hins vegar að verkum að verð­bólgan hélt áfram að rísa. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði um 0,77 pró­sent í maí. Tólf mán­aða hækkun hennar mælist nú 7,6 pró­sent en árs­verð­bólgan mæld­ist 7,2 pró­sent í síð­asta mán­uði. Án hús­næð­islið­ar­ins væri verð­bólgan 5,5 pró­sent.

Í til­kynn­ingu á vef Hagstofu Íslands segir að verð á mat og drykk hafi hækkað um 0,9 pró­sent í síð­asta mán­uði, kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hafi hækkað um 2,3 pró­sent og verð á nýjum bílum um 2,1 pró­sent. Þá hafi verð á bens­íni og olíu hækkað um 2,9 pró­sent en verð á flug­far­gjöldum lækk­aði um 6,9 pró­sent.

Í þjóð­hags­spá Grein­ingar Íslands­banka, sem birt var fyrr í mán­uð­inum, var því spáð að verð­bólgan myndi fara í 8,4 pró­sent í lok sum­ars en fara svo lækk­andi.

[adspot]Til að takast á við verð­bólg­una hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt. Þeir voru 0,75 pró­sent í fyrra­vor en eru nú 3,75 pró­sent. Búist er við því að vext­irnir verði hækk­aðir enn meira á næsta stýri­vaxt­ar­fundi sem fram fer snemma í júní.

[links]Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor og ytri með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, skrif­aði grein í Vís­bend­ingu fyrr í maí­mán­uði þar sem hann sagði að á næstu mán­uðum væri „nauð­syn­legt að virkir vextir Seðla­bank­ans hækki nægi­lega mikið til þess að raun­vextir hans verði jákvæðir að nýju“, sem þýðir að stýri­vextir bank­ans þyrftu að verða hærri en mæld verð­bólga í land­inu.

Í grein­inni benti hann á að raun­vextir væru nei­kvæðir og þótt afborg­anir af lánum hækki sam­hliða hærra vaxta­stigi þá sé raun­virði óverð­tryggðra lána að lækka um rúm­lega sjö pró­sent á ári við þessar aðstæður. „Hækk­andi verð­bólgu­vænt­ingar gætu valdið því að kraf­ist verði hærri launa í haust til þess að bæta launa­fólki upp bæði verð­bólgu þessa árs og vænt­an­lega verð­bólgu á næsta ári. Þessar launa­hækk­anir fara síðan út í verð­lag sem kallar á enn aðrar launa­hækk­an­ir. Slík víxl­verkun launa og verð­lags getur varað í árarað­ir. Þegar svo seðla­bankar reyna ná tökum á verð­bólg­unni þá krefst slíkt atvinnu­leysis með til­heyr­andi hörm­ungum fyrir þá sem fyrir því verða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár