Spá því að stýrivextir fari í fimm prósent og verðbólgan verði 8,4 prósent í lok sumars

Greining Íslands­banka spáir því að raun­verð íbúða hækki um 13,1 pró­sent í ár á sama tíma og kaup­máttur launa drag­ist saman um 0,6 pró­sent. Nú vantar starfs­fólk í mann­afls­frekar greinar og það mun að uppi­stöðu koma erlendis frá.

Spáin gerir ráð fyrir því að ferðamenn geti orðið allt að 1,6 milljón í ár.
Spáin gerir ráð fyrir því að ferða­menn geti orðið allt að 1,6 milljón í ár. Mynd: Bára Huld Beck

Stýri­vextir fara yfir fimm pró­sent fyrir lok þessa árs og verð­bólgan fer hæst í 8,4 pró­sent í lok sum­ars. Vextir munu byrja að lækka, í litlum skrefum, frá miðju næsta ári og verða við 4,5 pró­sent í lok árs 2024. Verð­bólgan verður áfram hjá á næsta ári, 5,9 pró­sent að með­al­tali, en lækkað niður í 3,9 pró­sent árið eftir það.

Hag­vöxtur í ár verður fimm pró­sent eftir 7,1 pró­sent sam­drátt 2020 og hóf­legan 4,3 pró­sent vöxtu úr þeirri stöðu í fyrra. Hann verður svo mun hæg­ari á næstu tveimur árum þar á eftir, 26 til 2,7 pró­sent. Útflutn­ingur í ár mun aukast um 20 pró­sent vegna þess að bati ferða­þjón­ust­unnar mun drífa áfram vöxt í útflutn­ingi og fjöldi ferða­manna verða allt að 1,6 millj­ónir í ár, eða tæp­lega 70 pró­sent af þeoim fjölda sem kom hingað á metár­inu 2018. Atvinnu­leysið heldur sam­hliða áfram að lækka, verður 4,4 pró­sent í ár og lækkar niður í 3,7 pró­sent að með­al­tali á næsta ári. Samhliða gæti orðið skortur á vinnu­afli.

Krónan mun styrkj­ast um fimm pró­sent frá apríl 2022 og til loka árs 2024 og auknar erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða og áfram­hald­andi inn­grip Seðla­banka Íslands á gjald­eyr­is­markað munu vega gegn við­skipta­af­gangi og sterkri erlendri stöðu.

Þetta eru helstu fregn­irnar í nýrri þjóð­hags­spá Grein­ingar Íslands­banka sem birt var í morgun.

Íbúðamarkaðurinn var „tæmdur“

Í spánni er meðal ann­ars fjallað ítar­lega um stöð­una á íbúða­mark­aði og sagt að enn sé mikil eft­ir­spurn­ar­spenna þar. Raunverð íbúða hækk­aði um ríf­lega tíu pró­sent árið 2021 og umtals­vert meira en kaup­máttur launa. Helstu ástæður þess voru hag­stætt lánaum­hverfi og góð staða heim­il­anna, að mati Íslands­banka.

[adspot]Það sé þó grein­ing að ekki hafi verið byggt nóg til að anna þess­ari miklu eft­ir­spurn sem er til staðar. „Þrátt fyrir að fram­boð anni ekki eft­ir­spurn­inni hefur mikið verið byggt und­an­farin tvö ár ef marka má gögn Hag­stof­unnar. Met­fjöldi nýrra íbúða kom inn á mark­að­inn árið 2020 eða um 3.800 íbúðir en á síð­asta ári fækk­aði þeim nokkuð eða í um 3.200 sem þó er tölu­vert yfir með­al­tali síð­ast­lið­inna ára.“

Ljóst sé að enn ríki veru­legt ójafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar, það eru miklu fleiri sem vilja kaupa en sem vilja selja. „Í raun má segja að mark­að­ur­inn hafi verið tæmdur en aug­lýstum eignum til sölu hefur fækkað um nær 70 pró­sent frá upp­hafi far­ald­urs­ins enda hefur fram­boð af íbúðum til sölu aldrei mælst jafn lítið. Enn eru engin merki þess að eft­ir­spurn fari dvín­andi en bæði er með­al­sölu­tími íbúða í sögu­legu lág­marki um þessar mundir og tölu­verður fjöldi íbúða að selj­ast yfir ásettu verði.“

Raunverð íbúða hækkar skarpt en kaupmáttur dregst saman

Í þjóð­hags­spánni segir að Íbúða­verð hafi þegar hækkað um átta pró­sent að nafn­virði fyrstu fjóra mán­uði árs­ins. Samkvæmt spá Íslands­banka mun raun­verð íbúða hækka um 13,1 pró­sent í ár á sama tíma og kaup­máttur launa dregst saman um 0,6 pró­sent. Því er bilið milli kaup­máttar og raun­verðs að breikka skarpt en þetta verður í fyrsta sinn í meira en ára­tug sem kaup­máttur launa dregst saman.

Þetta hefur leitt til þess að íbúða­verð er orðið afar hátt í sögu­legu sam­hengi og þær aðgerðir sem Seðla­bank­inn hefur gripið til vegna þessa hafa ekki virkað sem skyldi. Greining Íslands­banka telur að eina lausnin til að hefta hækk­andi íbúða­verð sé ein­fald­lega að byggja meira.

Og það er verið að byggja meira. Nýleg taln­ing Samtaka iðn­að­ar­ins og Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar sýnir að nú séu um sjö þús­und nýjar íbúðir í bygg­ingu á land­inu öllu. Þar af eru um fimm þús­und á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og von­ast er til að tölu­verður fjöldi þess­ara íbúða komi inn á mark­að­inn fyrir árs­lok. „Vonandi er það nóg til að anna bæði upp­safn­aðri þörf sem þegar er til staðar en einnig lýð­fræði­legri þróun,“ segir í spánni.

Nýtt starfsfólk mun koma að utan

Atvinnu­leysi rauk upp í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og stjórn­völd þurftu að grípa til stór­tækra aðgerða til að mæta stöðu þess stóra hóps sem missti vinn­una vegna hans. Almennt atvinnu­leysi mæld­ist mest í jan­úar 2021, 11,6 pró­sent, og heild­ar­at­vinnu­leysi að með­töldum þeim sem enn voru á hluta­bótum í þeim mán­uði var 12,8 pró­sent.

[links]Samkvæmt könnun Gallup fyrir Seðla­bank­ann og SA meðal 400 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins telja um 40 pró­sent stjórn­enda nú að skortur sé á starfs­fólki, ekki síst í bygg­ing­ar­starf­semi og ferða­þjón­ustu. Vanda­málið sem atvinnu­lífið stendur frammi fyrir hefur því snú­ist algjör­lega við. Fyrir rúmu ári vant­aði störf fyrir fólk, nú vantar fólk í störfin.

Í þjóð­hags­spá Íslands­banka segir að fjöldi starfa sé nú orð­inn meiri en fyrir far­aldur en sam­setn­ing þeirra hafi líka breyst. „Nú eru um 20 pró­sent færri starf­andi í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum en fyrir far­ald­ur­inn. Það er því ljóst að það verður stór áskorun fyrir fyr­ir­tæki í þessum geirum að ráða inn starfs­fólk á næstu miss­erum. Stór hluti starfs­fólks í þessum greinum hefur komið frá öðrum löndum og útlit er fyrir að þeim muni fjölga áfram sam­hliða bata í efna­hags­kerf­inu.“

Því má búast við að fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem búa á Íslandi haldi áfram að aukast. Þeir voru 56.100 í lok mars eða 14,8 pró­sent allra íbúa lands­ins. Til sam­an­burðar voru erlendir rík­is­borg­arar hér­lendis 21.900 í lok mars 2013, eða 6,8 pró­sent lands­manna. Þeim hefur því fjölgað um 34.200 á níu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár