Nýr ríkisendurskoðandi kosinn í maí – Skil á úttekt á sölu hluta Íslandsbanka áætluð í júní

Sérstök ráð­gjaf­ar­nefnd hefur verið skipuð vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda sem fyr­ir­huguð er í maí. Embættið á að skila Alþingi nið­ur­stöðu á úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á 22,5% hlut í Íslands­banka í júní.

Þorgeir Örlygs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Stefán Svav­ars­son, lög­giltur end­ur­skoð­andi, og Katrín D. Ólafs­dóttir, sér­fræð­ingur í mannauðs­málum og fram­kvæmda­stjóri Hagvangs, hafa verið skipuð í ráð­gjaf­ar­nefnd vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda. Þorgeir er jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar. Und­ir­nefnd vegna kosn­ingar rík­is­end­ur­skoð­anda var veitt umboð til ganga frá skipun nefnd­ar­innar í síð­asta mán­uði.

For­sætis­nefnd Alþingis var greint frá skipan nefnd­ar­innar í morgun. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans mun nefndin hefja störf í þess­ari viku og munu þrír nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar starfa náið með ráð­gjaf­ar­nefnd­inni. Það eru Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, Oddný G. Harð­ar­dóttir, 1. vara­for­seti og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, 2. vara­for­seti. Vinna nefnd­ar­innar mun fara fram í apríl og áætlað er að nýr rík­is­end­ur­skoð­andi verði kos­inn í maí.

Staðgengill ríkisendurskoðanda er starfandi ríkisendurskoðandi

Í síð­ustu viku féllst Rík­is­end­ur­skoðun á beiðni fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um úttekt á útboði og sölu rík­is­ins á 22,5% hlut í Íslands­banka sem fram fór 22. Mars. Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar á föstu­dag segir að stefnt sé að því að nið­ur­staða úttekt­ar­innar verði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í júní.

[adspot]Samkvæmt lögum um rík­is­end­ur­skoð­anda end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga kýs Alþingi rík­is­end­ur­skoð­anda til sex ára í senn. Hann skal hafa þekk­ingu á reikn­ings­skilum og rík­is­rekstri auk stjórn­un­ar­reynslu og má ekki vera alþing­is­maður. For­sætis­nefnd Alþingis til­nefnir full­trúa við kosn­ing­una.

Guð­mundur B. Helgason stjórn­mála­fræð­ingur er starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi eftir að Skúli Eggert Þórð­ar­son, sem skip­aður var rík­is­end­ur­skoð­andi 2018, tók við emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu 1. febr­úar. Í kjöl­farið fól for­seti Alþingis Guðmundi að gegna starfi rík­is­end­ur­skoð­anda þar til kosn­ing nýs rík­is­end­ur­skoð­anda hefur farið fram á Alþingi. Guð­mundur Björgvin er stað­geng­ill rík­is­end­ur­skoð­anda en hann er sviðs­stjóri hjá Rík­is­end­ur­skoðun og for­stöðu­maður skrif­stofu emb­ætt­is­ins á Akureyri. Hann var áður ráðu­neyt­is­stjóri í land­bún­að­ar­ráðu­neyti og mannauðs­stjóri hjá Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna í Jórdaníu.

[links]Sama dag og Skúli Egg­ert hóf störf hjá ráðu­neyt­inu óskaði umboðs­maður Alþingis eftir skýr­ingum á laga­­legum grund­velli fyrir skipan eða tíma­bund­inni setn­ingu nýs ráðu­­neyt­is­­stjóra. Í bréfi sem menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytið sendi umboðs­manni 10. febr­úar kemur fram að Lilja hafi óskað eftir því við for­seta Alþingis að Skúli Egg­ert yrði fluttur úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­unar til for­seta Alþingis sem fall­ist var á með bréfi 27. jan­úar með vísan til 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem segir meðal ann­ars að stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, geti flutt emb­ætt­is­mann í annað starf án aug­lýs­ing­ar, enda liggi fyrir ósk eða sam­þykki emb­ætt­is­manns­ins sjálfs.

Eftir að athugun umboðs­manns hófst barst honum til­kynn­ing frá Alþingi þar sem aðkomu þings­ins að ákvörð­un­inni að skipa Skúla Egg­ert ráðu­neyt­is­stjóra var lýst, auk þess sem fram kom afstaða til þeirra laga­sjón­ar­miða sem byggt var á við flutn­ing­inn. Í kjöl­farið sendi umboðs­maður Lilju Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, bréf þar sem fram kom að athugun hans á skipan þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis sé lok­ið.

Ríkisendurskoðanda heimilt að rukka ríkið um úttektina

Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar um úttekt á útboði og sölu á hlut í Íslands­banka segir að áætlun um afmörkun og fram­kvæmd úttekt­ar­innar liggi ekki fyrir en slík áætlun verði end­ur­skoðuð eftir því sem úttekt­inni vindur fram. „Í því sam­bandi er ítrekað að [...] rík­is­end­ur­skoð­andi [er] sjálf­stæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlut­verki sínu sam­kvæmt lög­unum,“ segir í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Fyrir liggur því að starf­andi rík­is­end­ur­skoð­andi muni bera þung­ann af úttekt emb­ætt­is­ins á úttekt um söl­una á Íslands­banka.

Í til­kynn­ing­unni vísar Rík­is­end­ur­skoðun einnig í aðra máls­grein átt­undu greinar laga um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga þar sem kveðið er á um gjald­töku. Þar segir að þegar „sér­stak­lega stendur á og nauð­syn­legt er að að rík­is­end­ur­skoð­andi skoði eða geri úttekt á með­ferð rík­is­fjár í til­teknu máli eða á til­teknu sviði er honum heim­ilt að taka gjald fyrir.“ Rík­is­end­ur­skoð­anda er því heim­ilt að taka sér­stakt gjald fyrir að gera úttekt á útboði og sölu á hlut í Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár