Borgarlínan stendur í frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Þau sem vilja tvö efstu sætin á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík segj­ast öll vilja fara með borg­ar­línu­verk­efnið í aðrar áttir en núver­andi meiri­hluti borg­ar­stjórnar. Svokölluð „létt­lína“ og mis­læg gatna­mót eru ofar­lega í huga sumra fram­bjóð­enda.

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins settu fram afstöðu sína til Borgarlínu og ýmislegs annars í skjali sem Sjálfstæðisflokkurinn birti á dögunum.
Fram­bjóð­endur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins settu fram afstöðu sína til Borg­ar­línu og ýmis­legs ann­ars í skjali sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn birti á dög­unum. Mynd: Úr safni

Þátt­tak­endur sem stefna á efstu sætin í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, sem hófst í dag og lýkur á morgun, eru nær allir nei­kvæðir í garð upp­bygg­ingar Borg­ar­línu sem hágæða almenn­ings­sam­göngu­kerfis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í þeirri mynd sem unnið er að.

Þetta má lesa í skjali sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn birti nýlega með svörum fram­bjóð­enda í próf­kjör­inu við spurn­ingum sem kjós­endur sendu inn.

Þar var spurt hvort fram­bjóð­end­urnir væru „fylgj­andi Borg­ar­línu eins og núver­andi meiri­hluti borg­ar­stjórnar setur verk­efnið upp“ og einnig var spurn­ingin „Þessi nálgun að fjár­festa millj­örðum í strætó á sterum er 19 aldar lausn á 21 aldar vanda, er eitt­hvað sem veldur mér áhyggjum, hver er sýn fram­bjóð­enda að leysa þennan sam­göngu­vanda?“ borin undir þátt­tak­endur í próf­kjör­inu.

Hildur segir borgarstjóra þrengja að annarri umferð – Alda hallast að „léttlínu“

Þær Hildur Björns­dóttir og Ragn­hildur Alda M. Vil­hjálms­dóttir bít­ast um odd­vita­sætið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í borg­inni. Hildur segir í svari sínu við fyrri spurn­ing­unni sem nefnd var hér að ofan að hún sé „ekki sam­mála útfærslum borg­ar­stjóra á Borg­ar­línu sem miða að því að þrengja að öðrum kostum í sam­göngum“.

Um leið seg­ist hún þó vera sam­mála for­manni Sjálf­stæð­is­flokks, þing­flokki flokks­ins auk bæj­ar­stjóra sjálf­stæð­is­manna í öðrum sveit­ar­fé­lögum um að unnið verði að inn­leið­ingu sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem hún seg­ist styðja.[links]

Hildur segir í svari við síð­ari spurn­ing­unni að fólk eigi að „hafa frjálst val um það hvort það fari leiðar sinnar gang­andi, akandi, hjólandi eða með almenn­ings­vögnum“ og bætir við að sú hug­mynd að velja þurfi einn far­ar­máta til að not­ast við öllum stundum sé „hvorki raun­hæf né eft­ir­sókn­ar­verð.“

„Ég er jákvæð fyrir betri almenn­ings­sam­göngum sem miða að því að tryggja vagna í sér­rými, tíð­ari ferðir og betri bið­skýli. [...] Það er vel unnt að tryggja greiðar almenn­ings­sam­göngur án þess að þrengja að bíla­um­ferð,“ segir Hildur, sem hefur gagn­rýnt það að mögu­lega standi til að fækka akreinum fyrir almenna umferð á Suð­ur­lands­braut sam­hliða upp­bygg­ingu sér­rýmis Borg­ar­línu þar.

Ragn­hildur Alda seg­ist ekki fylgj­andi Borg­ar­línu eins og verk­efnið hafi verið sett upp, heldur seg­ist hún „hall­ast að Léttlínu útgáf­unni,“ og á þar við hug­myndir um útfærslu Borg­ar­línu þar sem sér­rými fyrir vagn­ana yrði ekki fyrir miðju heldur í jaðri vega.

Slíkar hug­myndir hafa verið settar fram af hópi sem kallar sig Áhuga­fólk um sam­göngur fyrir alla, sem einnig leggur til að minna fé verði sett í bættar almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sam­göngusátt­mál­inn gerir ráð fyrir og þeim mun meira fé í bygg­ingu fjölda nýrra mis­lægra gatna­móta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Allir sem vilja annað sæti mótfallnir Borgarlínu í núverandi mynd

Fimm fram­bjóð­endur gefa kost á sér í annað sætið í próf­kjöri flokks­ins, þau Marta Guð­jóns­dóttir, Kjartan Magn­ús­son, Friðjón R. Frið­jóns­son, Þorkell Sig­ur­laugs­son og Birna Hafstein. Ekkert þeirra er fylgj­andi Borg­ar­línu eins og hún hefur verið lögð upp.

Þau Friðjón og Birna svara því til að þau séu ekki hlynnt Borg­ar­línu eins og núver­andi meiri­hluti hafi verið að vinna að verk­efn­inu, en Birna seg­ist í svari sínu „vísa í sam­göngusátt­mál­ann hvað þetta varðar“.

Marta, Þorkell og Kjartan segj­ast öll vera and­víg Borg­ar­línu í þeirri mynd sem verk­efnið er lagt upp. Marta full­yrðir að Borg­ar­lína muni ekki leysa umferð­ar­vand­ann þar sem henni sé ætlað að taka akreinar af annarri umferð, auk þess sem hún sé hrein­lega „óraun­hæf og kostn­aður við hana him­in­hár“, auk þess sem allt sé á huldu um það hver muni greiða rekstr­ar­kostnað.

[adspot]

Marta segir enn­fremur að Borg­ar­línan sé „tíma­skekkja“ þegar haft sé í huga að „við stöndum á þrös­k­uldi bylt­inga í sam­göngum og í gerð far­ar­tækja“ auk þess sem Borg­ar­línan sé ekki ein­ungis sam­göngu­stefna heldur líka skipu­lags­stefna, sem hún sé alfarið mót­fallin. Kallar hún það „aðför að lýð­heilsu borg­ar­búa“ að meg­in­upp­bygg­ing íbúð­ar­byggðar verði með­fram borg­ar­línu og stofn­brautum.

Kjartan full­yrðir að það væri „auð­veld­ara, fljót­legra, ódýr­ara og árang­urs­rík­ara að bæta almenn­ings­sam­göngur í Reykja­vík með almennri efl­ingu á núver­andi kerfi“ og segir að svokölluð „létt borg­ar­lína“ geti verið mála­miðlun. Einnig segir hann að í stað þess að festa sig í „19. aldar lausnum“ ætti Reykja­vík­ur­borg að horfa til nútíðar og fram­tíðar, á lausnir eins og snjall­stýr­ingu umferð­ar­ljósa, sjálfa­kandi öku­tæki og sjálfa­kandi almenn­ings­sam­göngur.

Þorkell segir að það þurfi að end­ur­skoða sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem gerður var á milli Reykja­vík­ur­borgar, fimm sveit­ar­fé­laga þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur um stjórn­ar­taumana og rík­is­stjórnar þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór og fer enn með fjár­mála­ráðu­neytið, árið 2019.

Þorkell segir borg­ar­stjóra enn­fremur vera að reyna að búa til kransæða­stíflu í vega­kerf­inu í borg­inni. „Dagur stefnir að því að halda áfram að búa hér til enn meiri kransæða­stíflu við hjarta höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem er í ca. 3 km. rad­íus í kringum Land­spít­al­ann. Borg­ar­lína leysir ekki þá þörf sem íbúar hafa til að leysa sínar dag­legu ferða­þarfir og hægt er að leggja svo­kall­aða Borg­ar­línu á fljót­legri, ódýr­ari og án mik­ils rasks á gatna­kerfi borg­ar­innar.“

Mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut, Háaleitisbraut, Grensásveg og Lönguhlíð nefnd

Í svari við síð­ari spurn­ing­unni, um lausnir á sam­göngu­vand­anum, talar Þorkell fyrir því að sér­stökum akreinum fyrir Strætó verði fjölgað hægra megin á göt­unni, en talar einnig fyrir fleiri mis­lægum gatna­mótum í borg­inni.

„Setja upp nokkur mis­læg gatna­mót. Gera Miklu­braut að mestu ljós­lausa sem er auð­velt verk við Grens­ás­veg, Háa­leit­is­braut, Kringlu­mýr­ar­braut og við Löngu­hlíð. Þannig má fjölga tals­vert þeim sem nýta almenn­ings­sam­göngur en bif­reiðar til fólks og vöru­flutn­inga verða alltaf lang algeng­asta far­ar­tækið. Annað er draum­sýn fyrir borg eins og Reykja­vík þótt ekki væri nema veðr­átt­unnar vegna,“ segir Þorkell í svari sínu.

Í annarri spurn­ingu í sama skjali er spurt sér­stak­lega um mis­læg gatna­mót og hvort borg­ar­full­trúa­efnin vilji fjölga þeim. Þar seg­ist Kjartan í svari sínu sömu­leiðis vilja sjá mis­læg gatna­mót gerð þar sem Mikla­brautin mætir Kringlu­mýr­ar­braut, Grens­ás­vegi og Háa­leit­is­braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár