Brim hagnaðist um ellefu milljarða króna en greiddi um 900 milljónir króna í veiðigjöld

Stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð er í Kauphöll greiddi um átta pró­sent af hagn­aði sínum í veiði­gjöld á síð­asta ári og rúm­lega fimmt­ung þeirrar upp­hæðar sem til stendur að greiða hlut­höfum sínum í arð vegna árs­ins 2021.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti eigandi Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Brims. Mynd: Skjáskot/RÚV

Brim hagn­að­ist um 11,3 millj­arða króna á síð­asta ári, sem er mikil aukn­ing frá þeim 4,7 millj­arða króna hagn­aði sem félagið sýndi á árinu 2020. Efna­hagur þess styrkt­ist mikið milli ára, tekjur voru 58,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins var 58,8 millj­arðar króna í lok árs. Eig­in­fjár­hlut­fallið jókst úr 44 í 50 pró­sent milli ára.

Á grund­velli þessa árang­urs ætlar Brim að greiða hlut­höfum sínum rúm­lega fjóra millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Í árs­reikn­ingi þess, sem birtur var í síð­asta mán­uði, kemur sömu­leiðis fram að Brim greiddi alls um 907 millj­ónir króna í veiði­gjald á árinu 2021, ef miðað er við með­al­gengi evru á árinu. Það er rúm­lega tvö­falt það sem Brim greiddi í veiði­gjöld árið áður. Því nema veiði­gjalda­greiðslur Brim til rík­is­sjóðs fyrir afnot af sjáv­ar­út­vegsauð­lind­inni rúm­lega 22 pró­sent af þeirri greiðslu sem félagið greiðir hlut­höfum sínum í arð vegna síð­asta árs og um átta pró­sent af hagn­aði Brim á árinu 2021.

Brim er eitt tveggja útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Hitt, Síld­ar­vinnslan, mun skila árs­reikn­ingi sínum síðar í þess­ari viku.

Stóraukinn loðnukvóti hafði mikil áhrif

Brim hefur verið skráð í Kaup­höll Íslands frá árinu 2014. Það er stærsta ein­staka útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins og mark­aðsvirði þess er sem stendur 149 millj­arðar króna og hefur hækkað um 45 pró­sent frá því í sept­em­ber í fyrra. Langstærsti eig­andi þess er Útgerð­­­­ar­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­ur­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar.

[adspot]Í til­kynn­ingu sem Brim sendi frá sér til Kaup­hallar Íslands vegna árs­upp­gjörs síns þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn kom fram að EBITDA-hagn­aður félags­ins – hagn­aður fyrir skatta, fjár­magns­gjöld og afskriftir – hafi tvö­fald­ast á síð­asta árs­fjórð­ungi 2021. Ástæðan væri aukin veiði á síld og loðnu og hærra verð á sjáv­ar­af­urðum, en úthlutun á loðnu­kvóta í fyrra var sú stærsta í tæp 20 ár og áætlað virði hans fyrir geir­ann í heild er talið vera yfir 50 millj­arða króna. Brim fékk alls 18 pró­sent af loðnu­kvót­anum.

Seldu til útgerðar forstjórans eftir að hafa farið yfir lögbundið hámark

Úthlutun á loðnu­kvóta hafði þó þau áhrif að Brim fór yfir tólf pró­sent af heild­ar­verð­mæti úthlut­aðra afla­heim­ilda, sem er lög­bundið hámark á fisk­veiði­kvóta sem ein útgerð má halda á sam­kvæmt lögum. Heild­ar­kvóti Brim fór í 13,2 pró­sent.

[links]Brim hafði sex mán­uði frá byrjun nóv­em­ber til að koma sér undir kvóta­þak­ið. Það gerði félagið 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar Brim seldi afla­hlut­deild fyrir 3,4 millj­arða króna til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, útgerðar í eigu for­stjóra síns og stærsta eig­anda.

Vegna þessa bók­færði Brim sölu­hagnað upp á tæpar 18 millj­ónir evra, um 2,7 millj­arða króna á með­al­gengi síð­asta árs. Í áður­nefndri til­kynn­ingu segir að salan hafi þrátt fyrir það hafi það verið „stjórn­endum þvert um geð að selja afla­hlut­deild­ina“ sem það hafi „alla burði og getu til að veiða og vinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár