Arion banki uppfærir starfskjarastefnu svo hægt sé að „laða að og halda í hæfa leiðtoga“

Arion banki ætlar að kaupa eigin bréf fyrir allt að 28 millj­arða króna næsta rúma árið. Gangi þau áform eftir mun bank­inn skila næstum 87 millj­örðum króna til hlut­hafa frá byrjun síð­asta árs. Starfs­loka­samn­ingar mega ekki verð­launa mis­tök í starfi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Á aðal­fundi Arion banka, sem fram fer 16. mars næst­kom­andi, mun verða lögð fram til­laga stjórnar um að bank­inn fái heim­ild til að kaupa allt að tíu pró­sent hlut í sjálfum sér, eða alls um 150 milljón hluti. Mark­aðsvirði þess hlutar í dag eru um 28,3 millj­arðar króna.

Heim­ild­ina á að nýta til að setja upp form­lega end­ur­kaupa­á­ætlun eða til að gera hlut­höfum almennt til­boð um kaup bank­ans á eigin bréfum. Fram­kvæmd end­ur­kaupa á grund­velli heim­ildar þess­arar er háð því skil­yrði að fyrir fram sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

Þetta kemur fram í til­lögum sem lagðar verða fyrir aðal­fund Arion banka og hafa verið birtar í Kauphöll Íslands.

Til við­bótar við mögu­leg end­ur­kaup stendur til að greiða 79 pró­sent af hagn­aði síð­asta árs út sem arð, alls 22,5 millj­arða króna. Gangi öll þessi áform eftir mun Arion banki vera búinn að greiða hlut­höfum sínum 86,6 millj­örðum króna út úr rekstr­inum með arð­greiðslum og end­ur­kaupum frá byrjun árs 2021.

Laða að og halda í „hæfa leiðtoga“

Í til­lög­unum eru einnig lagðar til ýmsar breyt­ingar á starfs­kjörum stjórn­enda í Arion banka. Í upp­færðri starfs­kjara­stefnu, sem verður lögð fyrir aðal­fund til sam­þykktar, segir meðal ann­ars að almennt skuli „starfs­kjör banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra, fram­kvæmda­stjóra og reglu­varðar vera til þess fallin að laða að og halda í hæfa leið­toga. Starfs­kjara­nefnd stjórnar skal, að fengnum til­lögum banka­stjóra, sam­þykkja við­eig­andi laun­ara­mma, þar sem tekið er til­lit til starfs­kjara­stefnu þess­arar, sam­an­burðar við fyr­ir­tæki sem eru sam­bæri­leg Arion banka að því er varðar starf­semi, stærð, eða orð­spor, og sem sam­ræm­ast fyr­ir­tækja­menn­ingu bank­ans, stefnu, gildum, áherslu á sjálf­bærni og lang­tíma­hags­munum hlut­hafa bank­ans og ann­arra hags­muna­að­ila.“

[adspot]Í til­lög­unum segir að það sé mat stjórnar bank­ans að þær breyt­ingar sem lagðar séu til varð­andi starfs­kjör banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra, fram­kvæmda­stjóra og reglu­varðar, styrki frekar grund­völl fyrir bank­ann til þess „að halda hæfi­leik­a­ríkum stjórn­endum, einkum með því að gera það skýrt að starfs­kjör æðstu stjórn­enda skuli vera til þess fallin að laða að hæfi­leik­a­ríka ein­stak­linga.“

Bene­dikt Gísla­son­, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð á síð­asta ári. Hann fékk auk þess kaupauka upp á 17,5 millj­ónir króna, sem greiddur var út í formi hluta­bréfa, og kaup­rétti á bréfum í sam­ræmi við kaup­rétta­kerfi bank­ans ofan á það.

Mistök eða vanræksla ekki verðlaunuð

Sá hluti sem snýr að starfs­loka­samn­ingum helstu stjórn­enda er einnig upp­færður í til­lög­unum.

[links]Þar segir að í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum sé hægt að gera „starfs­loka­samn­ing við banka­stjóra, aðstoð­ar­banka­stjóra og fram­kvæmda­stjóra. Skil­málar slíkra samn­inga skulu vera í formi beinna launa­greiðslna og ekki vara lengur en í 12 mán­uði eftir starfs­lok. Starfs­loka­greiðslur skulu að end­ur­spegla árangur í starfi og mega ekki verð­launa mis­tök eða van­rækslu.“

Þá er sá hluti starfs­kjara­stefnu bank­ans sem fjallar um kaupauka­kerfi einnig upp­færður og nú gert ráð fyrir að hann hafi heim­ild til að hætta við kaupauka­greiðslur, sem ekki hafa verið inntar af hendi, eða end­ur­heimta þegar greiddar kaupauka­greiðslur, að hluta til eða að öllu leyti, „til dæmis vegna til­vika þar sem við­kom­andi starfs­maður hefur tekið þátt í eða borið ábyrgð á athöfnum sem hafa valdið veru­legu tapi fyrir bank­ann eða falið í sér meiri háttar brotum á reglum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár