Tíu staðreyndir um banka sem græddu mjög mikið af peningum í fyrra

Hagnaður þriggja stærstu banka lands­ins jókst um 170 pró­sent milli ára. Stjórn­völd og Seðla­bank­inn gripu til aðgerða við upp­haf far­ald­urs sem leiddu til þess að hagn­að­ar­tæki­færi þeirra juk­ust mikið. Bank­arnir ætla að skila tugum millj­arða til hlut­hafa.

Hagnaður: 81,2 milljarðar króna

Allir stóru bank­arnir þrír; Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, hafa nú birt árs­reikn­inga sína vegna árs­ins 2021. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 81,2 millj­arðar króna. Það er um 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020. Bank­arnir þrír urðu allir til á grund­velli neyð­ar­laga sem sett voru haustið 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá voru eignir fall­inna banka fluttar með handafli yfir á nýjar kenni­tölur. Sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna frá hruni er 750,2 millj­arðar króna. Mestur var hann árið 2015, en þá lit­aði umfangs­mikil eigna­sala upp­gjörið.

Virði útlánasafns jókst og íbúðarlánum fjölgaði

Hinn mikli hagn­aður bank­anna er að stóru leyti til­kom­inn vegna þess að virð­is­mat á útlána­safni þeirra hefur auk­ist. Þeir færðu þau söfn niður um 25,8 millj­arða króna árið 2020 en sömu söfn voru færð aftur upp um 13,2 millj­arða króna í fyrra. Það þýðir að líkur á því að útlán, aðal­lega til fyr­ir­tækja, inn­heimt­ist hafa auk­ist veru­lega.

Þá hafa útlána­söfn allra bank­anna þriggja stækkað mikið, aðal­lega vegna þess að þeir hafa aukið við lán­veit­ingar til íbúð­ar­kaupa. Hlut­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020.

Vaxtamunur enn umtalsverður

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,3-2,8 pró­sent á síð­asta ári, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­sent að með­al­tali. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­bank­anum. Til sam­an­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­senti, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­riti Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Vaxta­mun­ur­inn myndar hreinar vaxta­tekj­ur. Á árinu 2021 var hann sam­an­lagt 105 millj­arðar króna hjá kerf­is­lega mik­il­vægu bönk­unum þremur og jókst um 2,3 pró­sent milli ára.

Hreinar þóknanatekjur miklu hærri en 2020

Annar stór póstur í tekju­mód­eli banka eru þókn­ana­tekj­ur, stundum líka kall­aðar þjón­ustu­tekj­ur. Þar er um að ræða þókn­anir fyrir t.d. eigna­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Þessar tekjur uxu gríð­ar­lega á síð­asta ári. Hjá Lands­bank­anum fóru þær úr 7,6 í 9,5 millj­arða króna og juk­ust því um 25 pró­sent milli ára. Þar skipti meðal ann­ars máli að samn­ingum um eigna­stýr­ingu fjölg­aði um fjórð­ung milli ára. Þókn­ana­tekjur Íslands­banka hækk­uðu um 22,1 pró­sent og voru sam­tals 12,9 millj­arðar króna. Hreinar þókn­ana­tekjur Arion juk­ust um 26,7 pró­sent og voru 14,7 millj­arðar króna. Samtals voru því hreinar þókn­ana­tekjur bank­anna þriggja 37,1 millj­arður króna.

Arðsemi eiginfjár rauk upp milli ára ...

Bankar halda á miklu magni af eigin fé. Það magn sem þeir þurfa að halda á, til að geta til dæmis tek­ist á við áföll og virð­is­rýrnun lána, var aukið veru­lega eftir banka­hrunið til að koma í veg fyrir að sama staða kæmi upp á ný. Eigið fé við­skipta­bank­anna þriggja var sam­an­lagt 681 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

[adspot]Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Stjórnir við­skipta­banka á Íslandi gera kröfu um að arð­semi eigin fjár sé að minnsta kosti tíu pró­sent. Sögulega þá náði hún að vera sam­eig­in­lega rúm­lega ell­efu pró­sent að með­al­tali hjá bönk­unum þremur á árunum 2009 til 2018, en þar vigtar inn í að ein­skiptis­tekjur vegna t.d. sölu eigna voru umtals­verðar á fyrri hluta þess tíma­bils. Arðsemi eigin fjár Lands­bank­ans hækk­aði úr 4,3 pró­sent 2020 í 10,8 pró­sent í fyrra. Hjá Íslands­banka hækk­aði hún úr 7,6 pró­sent í 14,2 pró­sent og hjá Arion banka úr 6,5 pró­sent í 14,7 pró­sent.

... enn kostnaðarhlutfallið hélt áfram að lækka

Önnur leið til að auka hagnað er að spara í kostn­aði. Þar snýst allt um að ná niður hinu svo­kall­aða kostn­að­ar­hlut­falli, sem mælir hvað kostn­að­ur­inn er stórt hlut­fall af tekjum. Yfirlýst mark­mið íslensku bank­anna er að ná því hlut­falli niður fyrir 45-50 pró­sent og þeir eru að ná þeim mark­miðum. Ein­faldasta leiðin til að ná kostn­að­ar­hlut­falli niður er að fækka starfs­fólki. Kostn­að­ar­hlut­fall Lands­bank­ans var 43,2 pró­sent á árinu 2021 og lækk­aði mynd­ar­lega mill ára, en það var 47,4 pró­sent árið 2020. Kostn­að­ar­hlut­fall Arion banka var 44,4 pró­sent og lækk­aði úr 48,1 pró­sent milli ára. Kostn­að­ar­hlut­fall Íslands­banka lækk­aði úr 54,3 pró­sent í 46,2 pró­sent milli ára.

Á annað hundrað milljörðum skilað til hluthafa á nokkrum árum

Ein skil­virkasta leiðin til að auka arð­semi eigin fjár er að minnka ein­fald­lega eigið féð með því að greiða það eigið fé sem þeir halda á umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila út til hlut­hafa. Bæði Arion banki og Íslands­banki hafa það sem yfir­lýst mark­mið að gera það, í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á bréfum. Minna eigið fé þýðir að hlut­falls­leg arð­semi eig­in­fjár í ann­ars óbreyttum rekstri eykst.

Arion banki, eini stóri bank­inn sem er ekki að neinu leyti í opin­berri eigu, hefur verið allra banka dug­leg­astur í þess­ari veg­ferð. Til stendur að greiða 79 pró­sent af hagn­aði árs­ins út sem arð, alls 22,5 millj­arða króna, og kaupa eigin bréf fyrir að minnsta kosti 4,3 millj­arða króna á kom­andi ári. Gangi þessi áform eftir mun Arion banki vera búinn að skila hlut­höfum sínum 58,3 millj­örðum króna frá byrjun síð­asta árs. Bank­inn hefur áform um að greiða um 30 millj­arða króna ofan á það til hlut­hafa í nán­ustu fram­tíð þannig að heildar útgreiðslur nemi allt að 88 millj­örðum króna.

[adspot]Íslands­banki ætlar að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­arða króna í arð. Þar af fer 65 pró­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­is­ins, eða rúm­lega 7,7 millj­arðar króna. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­um. Sú veg­ferð mun hefj­ast með því að stjórn Íslands­banka mun leggja til við aðal­fund bank­ans að hefja end­ur­kaup á bréfum fyrir 15 millj­arða króna á næstu mán­uð­um.

Banka­ráð Lands­bank­ans ætlar að leggja til við aðal­fund að greiddur verði út 14,4 millj­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Banka­ráð er jafn­framt með til skoð­unar að leggja til að greiddur verði út sér­stakur arður á árinu 2022. Ekki er til­greint hversu há sú greiðsla gæti orð­ið. Þessi upp­hæð fer nær öll í rík­is­sjóð.

Bónusarnir snúa aftur

Allir banka­stjórar stóru bank­anna fengu hærri greiðslur frá atvinnu­rek­anda sínum í fyrra en á árinu 2020. Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Arion banki hefur einn stóru bank­anna inn­leitt kaupauka- og kaup­rétt­ar­kerfi sem umb­unar starfs­fólki umtals­vert.

Kaupauka­kerfið gengur meðal ann­ars þannig fyrir sig að ef bank­inn nær því mark­miði að vera með meiri arð­semi en helstu sam­keppn­is­að­ilar sínar þá fá stjórn­­­­­­endur og það starfs­­­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans allt að 25 pró­­­­­­sent af föstum árs­­­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­­­­­um. Í til­­­felli Bene­dikts þýðir það kaupauka upp á 17,5 millj­­ónir króna en hann var með 69,8 millj­­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóð á síð­­asta ári. Sam­kvæmt kaup­rétt­ar­á­ætlun Arion banka geta allir fast­ráðnir starfs­menn keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir 1,5 milljón króna einu sinni ári í fimm ár. Þau kaup fara fram á geng­inu 95,5 krón­ur, en mark­aðsvirði Arion banka er 98 pró­sent yfir því gengi í dag. Það þýðir að bréfin sem starfs­maður kaupir á 1,5 millj­ónir króna eru þriggja milljón króna virð­i.

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, fékk sam­tals 68,6 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,7 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Á árinu 2020 fékk hún 60,3 millj­ónir króna í laun eða um fimm millj­ónir króna á mán­uð­i. Mun­ur­inn á launum milli ára skýrist af sér­stakri 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfir­vinnu sem Birna fékk í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað í fyrra­sum­ar.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­­stjóri Lands­­bank­ans, fékk 54,4 millj­­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóðs á síð­­asta ári, eða rúm­­lega 4,5 millj­­ónir króna á mán­uði.

Fjölgar hjá Arion en fækkar hjá Íslandsbanka

Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins þótt nokkur fjöldi starfs­manna eigi lít­inn hlut. Arion banki hefur verið skráður á markað frá sumr­inu 2018. Fjöldi hlut­hafa hans óx úr 7.400 í 11.300 í fyrra, eða um 53 pró­sent. Hluta­bréfa­verð í bank­anum tvö­fald­að­ist í fyrra.

[adspot]Íslands­banki var einka­væddur að hluta í fyrra þegar íslenska ríkið seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum fyrir 55,3 millj­arða króna. Þegar hluta­fjár­út­boð Íslands­banka fór fram í fyrra­sumar tók 24 þús­und fjár­festar þátt í því. Fjöldi hlut­hafa Íslands­banka var kom­inn niður í 15.900 um síð­ustu ára­mót. Því liggur fyrir að yfir sjö þús­und fjár­festar hafa selt hlut­inn sem þeir keyptu rúmum átta mán­uðum eftir að útboðið fór fram. Síðan þá hefur mark­aðsvirði bank­ans auk­ist um 63 pró­sent, eða 97,3 millj­arða króna. Alls hafa 34 af þeim millj­örðum fallið nýjum eig­endum bank­ans í skaut. Sá sem keypti hluti fyrir eina milljón króna í júní 2021 getur selt þá með 630 þús­und króna hagn­aði í dag.

Framundan er frekari einkavæðing á bankakerfinu

Rík­­is­­stjórnin ætlar að selja eft­ir­stand­andi 65 pró­­sent eign­­ar­hlut sinn í Íslands­­­banka að fullu á næstu tveimur árum. Til stendur að selja um helm­ing úti­stand­andi hlutar rík­­is­ins í sumar og ríkið reiknar með að fá um 75 millj­­arða króna fyrir hann, sam­­kvæmt því sem fram kom í fjár­laga­frum­varpi yfir­stand­andi árs. Það sem eftir stæði yrði svo selt 2023 ef mark­aðs­að­­stæður yrðu ákjós­­an­­leg­­ar.

Í grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um frek­ari sölu á Íslands­banka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í gær kom fram að hann Banka­sýsla rík­is­ins teldi skyn­sam­leg­ast að næsta skref í sölu Íslands­banka væri með útboði á hluta­bréfa­mark­aði, þar sem hæfir fag­fjár­festar fengju mögu­leika á að kaupa hluti í bank­anum á afslætti. Bjarni hefur sam­þykkt til­lög­una.

Samkvæmt lögum verða fjár­festar sem hyggj­ast fara með virkan eign­ar­hlut í banka að stand­ast hæf­is­mat sem bygg­ist á ítar­legri grein­ingu og gagna­öflun. Þeir þurfa að hafa gott orð­spor og búa við sterka fjár­hags­stöðu, en auk þess ætti eign­ar­haldið ekki að tor­velda eft­ir­liti eða leiða til pen­inga­þvættis eða aðra ólög­lega starf­semi.

Heimild er til staðar í fjár­lögum til að selja allt að 30 pró­sent í Lands­bank­anum líka. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa hins vegar náð saman um að ekki verið haf­ist handa við þá sölu fyrr en að búið verður að selja Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár