Bjarni: „Eru fjölmiðlamenn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu?“

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gagn­rýnir frétta­flutn­ing RÚV, segir umfjöllun um rann­sókn á störfum blaða­manna vera á for­sendum þeirra sjálfra og spyr hvort það megi „gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að svo virð­ist sem önnur vinnu­brögð og lög­mál eigi við hjá fjöl­miðlum í umfjöllum um lög­reglu­mál þar sem blaða­menn eru undir í lög­reglu­málum en hjá almennum borg­urum. Mál sem séu til rann­sóknar fái reglu­lega umfjöllun í frétta­tímum og fram­vindu mála sé fylgt eftir frá rann­sókn til ákæru og dóms eða nið­ur­fell­ingar máls eftir atvikum.

Annað sé uppi á ten­ingnum í umfjöllun um þá ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra að gefa fjórum blaða­mönnum stöðu sak­born­ings í rann­sókn sinni á broti gegn frið­helgi einka­lífs manns sem var til umfjöll­unar í frétta­flutn­ingi af svo­kall­aðri „skæru­liða­deild Samherja“. „Það verður að segj­ast eins og er að svo virð­ist sem þessi hefð­bundnu vinnu­brögð og lög­mál eigi ekki við, að minnsta kosti ekki að öllu leyti, í til­viki blaða­mann­anna sem fengu sím­tal í gær.“

Þetta segir Bjarni í stöðu­upp­færslu á Facebook sem hann birti í kvöld.

Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra birti til­kynn­ingu á vef sínum í dag þar sem stað­fest var eina brotið sem þar er til rann­sóknar sé ætlað brot gegn frið­heldi einka­lífs og rann­sókn þess sögð í hefð­bundnum far­vegi. Þeir blaða­menn sem hafa fengið stöðu sak­born­ings vegna rann­sóknar lög­regl­unnar eru Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks, Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður á Kjarn­anum. Aðal­steinn, Þórður Snær og Arnar Þór skrif­uðu umfjall­anir um „skæru­liða­deild Samherja“ í maí í fyrra en Kveikur tók málið ekki til umfjöll­unar.

Þegar umfjöllun Kjarnans og Stund­ar­innar birt­ist var Bjarni á meðal þeirra ráða­manna sem tjáði sig um hana opin­ber­lega. Þá sagð­ist hann telja að Sam­herji hefði „gengið óeðli­­­lega fram í þessu máli með sínum afskipt­u­m.“

Efast um að blaðamennirnir viti hvað sé til rannsóknar

Bjarni segir að engar fréttir hafi verið fluttar af því sem mestu máli skiptir og flesta þyrstir að vita hvað lög­reglan kunni að hafa undir höndum sem gefi til­efni til rann­sóknar. „Þeir sem stjórnað hafa þeirri umræðu eru þeir hinir sömu og nú eru til rann­sóknar. Það eina sem þeir hafa fram að færa hins vegar eru get­gátur um það hvað lög­reglan muni mögu­lega vilja spyrja þá um og álit þeirra á eigin get­gátum um það. Þeir segja okkur að þeim sé gefið að sök að hafa nýtt gögn til að skrifa fréttir. En hvað vita þeir svo sem um það á þessu stigi máls?“

[adspot]Sak­ar­efnið sem blaða­mönn­unum er gefið að sök er að hafa skrifað fréttir um „skæru­liða­deild Sam­herja“ upp úr sam­skipta­gögn­um. Þeir eru með stöðu sak­born­ings fyrir að hafa brotið gegn 228. og 229. grein almennra hegn­ing­ar­laga. Þar segir meðal ann­ars að hver sá sem „brýtur gegn frið­helgi einka­lífs ann­ars með því að hnýs­ast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heim­ild­ar­leysi skjöl­um, gögn­um, myndefni, upp­lýs­ingum eða sam­bæri­legu efni um einka­mál­efni við­kom­andi, hvort heldur sem er á staf­rænu eða hlið­rænu formi, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári, enda sé hátt­semin til þess fallin að valda brota­þola tjón­i.“

Í fyrra voru gerðar breyt­ingar á hegn­ing­ar­lögum. Þar var 229. grein þeirra meðal ann­ars breytt þannig að hún hljóðar nú svona: „Hver sem í heim­ild­ar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða for­ritum ann­arra sem geymd eru á tölvu­tæku formi skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 1 ári.“

Í áliti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar vegna þeirra breyt­inga sagði að ákvæðið eigi ekki við „þegar hátt­semin er rétt­læt­an­leg með vísan til almanna- eða einka­hags­muna. Er hér m.a. litið til þess að ákvæðið hamli ekki störfum og tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla, m.a. í þeim til­vikum þegar þeir fá aðgang að gögnum eða for­ritum sem hefur verið aflað í heim­ild­ar­leysi og geti varðað almanna­hags­muni.“ Undir álitið og breyt­ing­ar­til­lög­una skrif­uðu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar, Pírata, Við­reisnar, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks, eða allir sem sæti áttu í nefnd­inni.

Spyr hvort það séu fordæmi fyrir fréttaflutningi RÚV

Bjarni gagn­rýnir einnig RÚV fyrir að hafa tekið málið skref­inu lengra í frétta­tíma sínum í kvöld með því að fá lög­mann­inn Gunnar Inga Jóhanns­son til „lýsa því yfir að ef málið sner­ist um það sem blaða­menn­irnir sjálfir telja, þá sé nær úti­lokað að ákæra verði gefin út og svo les maður fréttir af dómafor­dæmum um að slík mál séu von­laus frá upp­hafi. ,,Afar ólík­legt að blaða­menn­irnir verði ákærðir," segir í fyr­ir­sögn fréttar á ruv.is. Þetta er áður en nokkur maður veit hvaða gögn lög­reglan hefur eða hvaða spurn­inga hún leitar svörum við. Eru ein­hver for­dæmi fyrir svona vinnu­brögðum frétta­stofu?“

[links]Í stöðu­upp­færslu Bjarna segir hann að öll fréttin hjá RÚV hafi verið að gefnum for­sendum þeirra blaða­manna sem fengu sím­tal í gær. „Hefði Rík­is­út­varpið ekki mátt láta þess getið að sumir þeirra sem eru með kenn­ingar um það hvað málið snýst hafa starfað á Rík­is­út­varp­inu. Hefði það ekki sýnt lág­marks við­leitni til að gæta hlut­leysis í máli sem virð­ist á algjöru byrj­un­ar­stigi? Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins hefur kom­ist að því að máilð sé alvar­legt og óskilj­an­legt. Gott ef ég heyrði ekki að það væri búið að senda bréf til útlanda til að vekja athygli á þessu alvar­lega máli. Ég get ekki varist því að spyrja nokk­urra spurn­inga þegar maður les, heyrir og sér hverja frétt­ina á eftir annarri vegna sím­tals­ins frá lög­regl­unni í gær.“

„Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjölmiðlunum líka?“

Bjarni spyr svo hvort fjöl­miðla­menn séu of góðir til að mæta og svara spurn­ingum lög­reglu eins og almennir borg­arar, og hvernig það geti talist alvar­legt mál að lög­regla óski eftir því að þeir gefi skýrslu? „Ef fjöl­miðla­menn­irnir eiga þann lögvarða rétt sem þeir gefa sér að eigi við í þessu máli, að svara ekki spurn­ingum lög­regl­unnar, vilja þeir þá ekki bara gera það, neita að svara. Er það mjög íþyngj­andi? Meira íþyngj­andi en almennir borg­arar þurfa að þola í málum sem eru til rann­sóknar lög­reglu? [...] Við gerum öll kröfu til þess að hér á landi séu allir jafnir fyrir lög­unum. Má gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár