„Hér skautar lögreglustjórinn fyrir norðan á afar þunnum ís“

Þingmenn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka hafa gagn­rýnt lög­regl­una á Norð­ur­landi á sam­fé­lags­miðlum síð­asta sól­ar­hring vegna yfir­heyrsla yfir blaða­mönnum.

Efri röð: Hanna Katrín, Helga Vala og Þórhildur Sunna. Neðri röð: Björn Leví, Sigmar og Jóhann Páll.
Efri röð: Hanna Katrín, Helga Vala og Þór­hildur Sunna. Neðri röð: Björn Leví, Sigmar og Jóhann Páll. Mynd: Samsett mynd

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Pírata tjáðu sig með afger­andi hætti á sam­fé­lags­miðlum eftir að fréttir bár­ust af því að lög­reglan á Norð­ur­landi hefði boðað blaða­menn í yfir­heyrslu fyrir meint brot á lögum um frið­helgi einka­lífs­ins.

Kjarninn greindi frá því í gær að Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri Kjarn­ans og Arnar Þór Ing­ólfs­son blaða­maður mið­ils­ins hefðu fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi, sem er stað­sett á Akur­eyri, á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Þeim var greint frá þessu sím­leiðis í gær og þeir boð­aðir í yfir­heyrslu hjá rann­sókn­ar­lög­reglu­manni emb­ætt­is­ins sem mun gera sér ferð til Reykja­víkur til að fram­kvæma hana.

Aðal­steinn Kjart­ans­son blaða­maður á Stund­inni er sömu­leiðis með stöðu sak­born­ings í mál­inu og hefur einnig verið boð­aður í yfir­heyrslu. Þá var greint frá því á vef RÚV í gær­kvöldi að Þóra Arn­órs­dóttir rit­stjóri Kveiks hefði einnig verið boðuð í yfir­heyrslu.

Skautað á hálum ís

Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­maður tjáði sig um málið í gær í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni. „Við búum sem sagt í landi þar sem blaða­menn fá rétt­ar­stöðu sak­born­ings í yfir­heyrslum fyrir að skrifa fréttir. Hér skautar lög­reglu­stjór­inn fyrir norðan á afar þunnum ís, væg­ast sagt.

Það er full­kom­lega heim­ilt að skrifa fréttir upp úr svona gögnum, ef upp­lýs­ing­arnar varða almanna­hag. Það er nán­ast dag­legt brauð. Man ekki betur en að Samherji hafi beðist vel­virð­ingar vegna hegð­unar þess­arar skæru­liða­deildar í fram­haldi af frétta­skrif­unum sem eru undir í þessu máli. Ef Aðal­steinn Kjart­ans­son og Þórður Snær Júl­í­us­son þurfa að svara til saka en ekki Þorbjörn Þórð­ar­son og Jón Óttar spæj­ari, þá er kerfið okkar mein­gallað,“ skrif­aði hann.

Formaður BÍ: Óskiljanleg og óverjandi ákvörðun

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar gerði málið einnig að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í gær. „Svo það eru þá fjöl­miðl­arnir sem voru vondu kall­arnir. Og þessir almanna­hags­munir sem eru alltaf að reyna að þykj­ast vera eitt­hvað merki­legt. Ves­al­ings skæru­lið­arnir. Og auð­vitað aum­ingja Samherji.“

Hún deildi með færsl­unni frétt RÚV þar sem fjallað er um yfir­lýs­ingu for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands, Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur, vegna máls­ins. Sigríður Dögg sagði í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í gær að ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi um að kalla til blaða­menn til yfir­heyrslu vegna umfjöll­unar þeirra um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja, væri óskilj­an­leg og óverj­andi.

„Því er óskilj­an­legt og nær óverj­andi að lög­reglan kalli blaða­menn til yfir­heyrslu ein­göngu til þess að fá þær upp­lýs­ingar frá þeim að þeir muni ekki gefa upp heim­ild­ar­menn sína. Það má bein­línis túlka sem óeðli­leg afskipti lög­reglu af starfi blaða­manna sem tefur þá að auki frá öðrum störfum á meðan og hefur þar af leið­andi hamlandi áhrif á störf þeirra. Evr­ópu­ráðið hefur bent á að þessu til við­bótar geti afskipti lög­reglu sem þessi af blaða­mönnum dregið úr vilja almenn­ings til þess að láta blaða­mönnum í té upp­lýs­ingar, sem hafi einnig áhrif á rétta almenn­ings til upp­lýs­inga,“ sagði Sigríður Dögg.

Árás á fjölmiðla og „algjörlega ólíðandi“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar lagði einnig orð í belg. „Þetta er árás á fjöl­miðla og algjör­lega ólíð­andi.“ Þetta sagði Helga Vala Helga­dóttir á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Minni á að við erum í 16. sæti heims­lista yfir frelsi fjöl­miðla á sama tíma og önnur nor­ræn ríki raða sér í efstu sætin. Að starfa í fjöl­miðlum er ekki vel launað starf hér á landi og krefst þess að fólk, amk það sem fæst við fréttir og frétta­tengt efni, sé alltaf á vakt. Þetta verður að lífs­stíl og vakt­inni lýkur aldrei. Þegar ofsóknir auð­fólks bæt­ast svo við verður þetta starf nán­ast óverj­andi amk fyrir fjöl­skyldu­fólk. Við verðum að opna augun fyrir þess­ari stöðu því án sjálf­stæðra fjöl­miðla veik­ist lýð­ræðið og þar með rétt­ar­ríkið.“

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrrum blaða­maður sagði á Facebook í gær að frétta­flutn­ingur af skæru­liða­deild Samherja hefði átt brýnt erindi við almenn­ing.

„Þessi afskipti lög­reglu af störfum fjöl­miðla­fólks vekja með manni ugg svo ekki sé fastar að orði kveðið og kalla á skýr­ingar.“

Kallar á frekari skýringar

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að sjálf­stæðir fjöl­miðlar væru grund­vall­ar­at­riði í heil­brigðu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.

„Í sið­uðum ríkjum er blaða­mönnum tryggðar aðstæður sem ætlað er að tryggja að þeir geti sinnt störfum sínum í þágu almanna­hags­muna. Alþjóða­stofn­anir leggja ríka áherslu á að gætt sé fyllstu var­kárni þegar blaða­menn eru rann­sak­aðir og íslensk lög tryggja þeim rétt til að vernda heim­ild­ar­menn sína.“

Hann sagði jafn­framt að það væri fáheyrt ef til­gang­ur­inn með yfir­heyrslum lög­reglu væri að blaða­menn gæfu upp heim­ild­ar­menn sína og vert væri að minna á að sam­kvæmt dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins hefðu blaða­menn bæði rétt á og bæru í raun skylda til þess að halda trúnað við heim­ild­ar­menn sína.

„Þessi rann­sókn kemur mér því mjög spánskt fyrir sjónir og kallar á frek­ari skýr­ingar,“ skrif­aði hann.

Segir að þetta standist ekki lög

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata sagði í athuga­semd við færslu rit­stjóra Kjarnans þar sem hann deilir frétt af mál­inu að þetta væri fárán­legt og stæð­ist ekki lög.

Benti hún á að nefnd­ar­á­lit alls­herjar- og mennta­mála­nefndar gerði það mjög skýrt að ákvæðið sem lög­reglu­stjór­inn vísar í und­an­skilur vinnu blaða­manna.

„Ég var fram­sögu­maður á nefnd­ar­á­liti allrar alls­herjar- og mennta­mála­nefndar og lagði áherslu á að tryggja að vinna blaða­manna yrði und­an­skilin þessu ákvæði við vinnu mína í nefnd­inni og nefndin var öll á bak við þá til­lögu.“

„Hvers vegna lögreglan lætur hafa sig út í þetta er stórfurðulegt“

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata deildi frétt Stund­ar­innar um málið í gær og spurði hvað í ósköp­unum væri eig­in­lega í gangi.

„Dettur ein­hverjum hérna í hug að það sé til­viljun að það er lög­reglan á Akureyri sem fer að skipta sér af þessu?

Ég á ekki orð. Ef þessu verður ein­hvern vegin troðið í ein­hvers konar sak­sókn og dóms­mál þá eru lög um fjöl­miðla og hlut­verk þeirra alger­lega ónýtt. Hitt finnst mér lík­legra að það sé hrein­lega um ofsóknir að ræða – hvers vegna lög­reglan lætur hafa sig út í þetta er stórfurðu­legt,“ skrif­aði hann.

RÚV leit­aði til Lilju Alfreðs­dóttur menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra varð­andi við­brögð og segir hún í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV í dag að hún tjái sig ekki um ein­staka mál sem eru til rann­sóknar. Segir hún að brýnt sé að fjöl­miðlar geti sinnt sínu mik­il­væga lýð­ræð­is­hlut­verki og stuðlað þannig að mál­efna­legri umræðu í þjóð­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár