Lýsa yfir áhyggjum og undrun yfir því að blaða- og fréttamenn fái stöðu sakborninga vegna starfa sinna

Félag frétta­manna lýsir yfir stuðn­ingi við fjóra blaða­menn sem hafa fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi fyrir að hafa skrifað fréttir um „skæru­liða­deild Sam­herja“ upp úr sam­skipta­gögn­um.

Félag fréttamanna, stéttarfélag fréttamanna á RÚV, lýsir áhyggjum og undrun yfir því að fjórir blaða- og fréttamenn skuli hafa réttarstöðu grunaðra fyrir það eitt að sinna störfum sínum.
Félag frétta­manna, stétt­ar­fé­lag frétta­manna á RÚV, lýsir áhyggjum og undrun yfir því að fjórir blaða- og frétta­menn skuli hafa rétt­ar­stöðu grun­aðra fyrir það eitt að sinna störfum sínum. Mynd: Bára Huld Beck

Félag frétta­manna, stétt­ar­fé­lag frétta­manna á RÚV, lýsir yfir áhyggjum og undrun yfir því að lög­reglan á Norð­ur­landi skuli kalla blaða- og frétta­menn til yfir­heyrslu og veita þeim stöðu sak­born­inga vegna starfa þeirra við blaða­mennsku.

[links]Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður mið­ils­ins, hafa fengið stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi, sem er stað­sett á Akur­eyri, á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Þeim var greint frá þessu sím­leiðis í gær og þeir boð­aðir í yfir­heyrslu hjá rann­sókn­ar­lög­reglu­manni emb­ætt­is­ins sem mun gera sér ferð til Reykja­víkur til að fram­kvæma hana.

Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, og Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kveiks á Rík­is­út­varp­inu, hafa einnig verið boðuð í yfir­heyrslu. Sak­ar­efnið sem blaða­mönn­unum er gefið að sök er að hafa skrifað fréttir um „skæru­liða­deild Sam­herja“ upp úr sam­skipta­gögn­um.

Félag frétta­manna vísar í yfir­lýs­ingu sinni í dóma Hæsta­réttar og Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem hafa á und­an­förnum árum stað­fest rétt íslenskra blaða­manna og nauð­syn þess að þeir vinni fréttir úr gögnum sem þeim ber­ast, eigi þau erindi við almanna­hags­muni. „Þá ber blaða­mönnum ótví­ræð laga­leg skylda til að vernda heim­ild­ar­menn sína, hvort sem þeir hafa veitt upp­lýs­ingar með lög­mætum eða ólög­mætum hætti,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Frelsi fjölmiðla til að miðla staðreyndum og réttum upplýsingum forsenda lýðræðis og friðar

Þá bendir félagið á að blaða- og frétta­menn víða um heim búa við síauknar ógn­anir og ofsóknir, bæði af völdum stjórn­valda, skipu­lagðra glæpa­sam­taka og stór­fyr­ir­tækja. Tveir blaða­menn hlutu á síð­asta ári frið­ar­verð­laun Nóbels, fyrir bar­áttu sína fyrir fjöl­miðla­frelsi í löndum sínum. „Í rök­stuðn­ingi dóm­nefnd­ar­innar kom fram, að frelsi fjöl­miðla til að miðla stað­reyndum og réttum upp­lýs­ingum væri for­senda lýð­ræðis og friðar í ríkjum heims,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Félagið bendir einnig á ða Ísland hefur á und­an­förnum árum fallið niður lista sam­tak­anna Reporters Without Borders vegna bágrar stöðu fjöl­miðla hér, nú síð­ast niður í 16. sæti, meðal ann­ars vegna þess að Samherji „skipu­lagði her­ferð árið 2020 til að varpa rýrð á blaða­menn sem fjallað höfðu um frétta­málið (um athæfi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu)“.

„Nú hefur lög­reglan á Norð­ur­landi boðað blaða- og frétta­menn til yfir­heyrslu fyrir að fjalla um þessa sömu her­ferð. Félag frétta­manna lýsir yfir stuðn­ingi við þessa blaða- og frétta­menn, og lýsir áhyggjum og undrun yfir því að þeir skuli hafa rétt­ar­stöðu grun­aðra fyrir það eitt að sinna störfum sínum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár