Sér ekki hvað nýr valkostur um Mýrdal á að leysa

Oddviti Mýr­dals­hrepps telur að nýjum val­kosti Vega­gerð­ar­innar við færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal myndi fylgja umtals­vert meira jarð­rask en lág­lendis­vegi og jarð­göngum.

Nokkrir valkostanna sem eru til skoðunar gera ráð fyrir jarðgöngum í gegnum Reynisfjall og að vegurinn liggi meðfram Víkurfjöru.
Nokkrir val­kost­anna sem eru til skoð­unar gera ráð fyrir jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall og að veg­ur­inn liggi með­fram Vík­ur­fjöru. Mynd: Aðsend

Einar Freyr Elín­ar­son, odd­viti Mýr­dals­hrepps, seg­ist í fljótu bragði ekki sjá hvað nýr val­kostur Vega­gerð­ar­innar vegna fyr­ir­hug­aðrar færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal eigi að leysa. Hinum nýja val­kosti var bætt við í kjöl­far fjölda athuga­semda sem bár­ust á drög að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar. Sú leið sem bætt var við liggur sam­hliða núver­andi vegi og norðan við Vík­ur­þorp og gerir því ekki ráð fyrir jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall.

[links]Einar Freyr segir við Kjarnann að hann geri ráð fyrir því að þeirri leið sem Vega­gerðin hefur bætt við felist umtals­vert meira jarð­rask og mun nei­kvæð­ari sjón­ræn áhrif heldur en af lág­lendis­vegi, „mokstur úr mýr­unum vestan við Gatna­brún, nýr vegur upp Gatna­brún með til­heyr­andi efn­is­flutn­ingum og nýr vegur sem þverar bygg­ing­ar­land norðan Vík­ur­þorps og á slétt­unni aust­ast í þorp­inu og myndi kalla á brú­ar­gerð yfir Graf­ar­gil og mikið jarð­rask fyrir ofan þorpið“.

Vega­gerðin lagði mats­á­ætlun vegna fram­kvæmd­anna fram til Skipu­lags­stofn­unar nýverið. Mats­á­ætlun er eitt skref í mati á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda.

[adspot]

Meta á umhverf­is­á­hrif sjö val­kosta. Fjórir þeirra gera ráð fyrir vegi með­fram fjör­unni og jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall. Verði einn sá kosta val­inn sem gera ráð fyrir jarð­göngum reiknar Vega­gerðin með að þau verði 1,3-1,5 kíló­metrar að lengd auk veg­skála sem þurfa að vera nokkuð langir vegna hættu á ofan­flóðum. Gert er ráð fyrir að fara inn í fjallið að austan í yfir 10 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og yfir í 8 metra hæð vestan megin.

Varnargarður þyrfti að vera 7,5 metra hár

Er jarð­göng­unum sleppir austan megin fjalls­ins myndi veg­ur­inn liggja um Vík­ur­fjöru. Gert er ráð fyrir tvennum und­ir­göngum til að tryggja aðgengi gang­andi, hjólandi og hesta­um­ferðar frá Vík og niður í fjör­una. Meðfram veg­inum þyrfti að vera varn­ar­garður. Þar sem rann­sókn á stöð­ug­leika strand­ar­innar stendur enn yfir er ekki hægt að fast­setja hæð mann­virkj­anna en fyrstu drög benda til þess að lág­marks­hæð veg­ar­ins þyrfti að vera um 5,7 m.y.s. og varn­ar­garðs­ins að austan um 7,5 m.y.s.

Val­kostur 1 er sam­kvæmt skipu­lags­línu sveit­ar­fé­lags­ins. Sú leið liggur með­fram Dyr­hóla­ósi sem er á nátt­úru­minja­skrá og í göngum sunn­ar­lega um Reyn­is­fjall. Austan fjalls­ins liggur leiðin með­fram sjó og sam­ein­ast núver­andi vegi í Vík.

Nýi val­kost­ur­inn fylgir að hluta öðrum val­kosti sem einnig er til skoð­unar. Nýja leiðin sem Vega­gerðin ætlar að taka inn í umhverf­is­matið fela í sér lag­fær­ingar á nýver­andi vegi um Gatna­brún og gerir ráð fyrir að nýr vegur verði lagður sam­hliða núver­andi vegi. Hann yrði svo lagður norðan við þétt­býlið á Vík en núver­andi vegur klýfur Vík­ur­þorp.

„Það er eðli­legt í mínum huga að svona mál séu umdeild og mikið rædd, enda hags­muna­mál,“ segir Einar Freyr spurður út í þann mikla fjölda athuga­semda sem barst við drög að mats­á­ætlun. Flestar voru þær nei­kvæðar í garð jarð­ganga og vegar í nálægð við fjör­una. „Það eru í mínum huga mörg rök sem hníga að því að veg­ur­inn verði færður,“ heldur Einar Freyr áfram. „Þar má nefna aukið umferð­ar­ör­yggi í Vík þar sem núver­andi vegur klýfur þorpið, greið­fær­ari veg en oft þarf að loka honum vegna ill­viðris norðan Reyn­is­fjalls, mjög mikil veg­stytt­ing – að jafn­aði mun meiri en ein­föld stytt­ing þjóð­veg­ar­ins þar sem þeir ferða­menn sem heim­sækja Dyr­hólaey og Reyn­is­fjöru munu spara um 20 kíló­metra akstur hver, umhverf­is­vænni vegur vegna veg­stytt­ingar og lít­illa hækk­ana sem sparar þar af leið­andi umtals­vert elds­neyti og meng­andi útblástur.“

Einar Freyr segir að við­horf íbúa til áfor­manna hafi ekki verið kannað en bendir á að það hafi verið vilji sveit­ar­stjórnar frá árinu 2009 að veg­ur­inn yrði færður í sam­ræmi við aðal­skipu­lag.

„Annars hlakka ég til að sjá nið­ur­stöður umhverf­is­mats þar sem öll þessi atriði verða skoðuð á fag­legan hátt og allir munu þannig geta myndað sér upp­lýsta skoðun á mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár