Fallist á matsáætlun um færslu hringvegar með ellefu skilyrðum

Mik­il­vægt er að for­sendur færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal séu settar fram á hlut­lægan hátt og stað­hæf­ingar studdar gögnum, segir Skipu­lags­stofnun sem vill nýrri gögn og nákvæm­ari um slysa­tíðni og færð á núver­andi vegi.

Valkostir sem Vegagerðin kynnir í matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum hringvegar í Mýrdal. Hvíta línan er núverandi vegur og sú bleika, skipulagslína, er valkostur 1.
Val­kostir sem Vega­gerðin kynnir í mats­á­ætlun vegna mats á umhverf­is­á­hrifum hring­vegar í Mýrdal. Hvíta línan er núver­andi vegur og sú bleika, skipu­lags­lína, er val­kostur 1. Mynd: Vegagerðin

„Mik­il­vægt er að for­sendur fram­kvæmd­ar­innar séu settar fram á hlut­lægan hátt og stað­hæf­ingar studdar gögnum,“ segir Skipu­lags­stofnun í rök­stuðn­ingi álits síns á mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar um færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal. Stofn­unin fellst á áætl­un­ina með ýmsum skil­yrðum og tekur undir ákveðnar athuga­semdir frá stofn­unum, sam­tökum og ein­stak­lingum sem fram komu á aug­lýs­inga­tíma.

Vega­gerðin hyggst færa hring­veg­inn um Mýrdal og vinnur nú að umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­innar. Stofn­unin seg­ist vinna eftir þeirri stefnu­mótun sem fram komi í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps og Sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda til árs­ins 2024. Þar er lega veg­ar­ins dregin með strönd­inni og í gegnum göng í Reyn­is­fjalli. Vega­gerð­inni ber hins vegar að skoða aðra raun­hæfa val­kosti og bera saman með til­liti til umhverf­is­á­hrifa og í þessu til­viki eru þeir sam­tals sjö. Fjórir þeirra gera ráð fyrir legu veg­ar­ins með strönd­inni og í jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall.

[adspot]

Hart hefur verið deilt um þetta, ekki síst í ljósi þess að svæðið ein­kenn­ist af sér­stæðu lands­lagi, ein­stakri nátt­úru, sem hafa hlut­verki að gegna í líf­rík­inu en eru einnig vin­sælir áfanga­staðir ferða­manna.

Í dag liggur veg­ur­inn um Gatna­brún og að hluta í 10-12 pró­sent halla með nokkuð kröppum beygjum. Meðal val­kosta eru útfærslur sem miða að end­ur­bótum á þeim vegi. Sveit­ar­stjórn vill veg­inn niður að strönd og um göng og telur aðra kosti út úr mynd­inni.

Í mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar kemur fram að mark­mið fram­kvæmd­ar­innar felist í:

  • Greið­færni á vet­urna.
  • Umferð­ar­ör­yggi.
  • Þjóðveg út úr þétt­býli sem bætir öryggi og hljóð­vist í þétt­býli.
  • Stytting hring­vegar.

Skipu­lags­stofnun gerir hins vegar í áliti sínu athuga­semdir við að flutn­ingur þjóð­vegar út úr þétt­býl­inu sé sett fram sem mark­mið fram­kvæmd­ar­innar. Að mati stofn­un­ar­innar ættu mark­miðin að lúta að atriðum eins og öryggi, hljóð­vist og þeirri þjón­ustu sem veg­inum er ætlað að sinna fyrir sam­fé­lagið á svæð­inu og umferð um svæðið, fremur en að fela í sér til­tekna val­kosti um legu veg­ar­ins. „Í mats­á­ætlun eru ekki lögð fram gögn sem rök­styðja þörf­ina á þessu mark­miði eða sýnt fram á að ekki sé unnt að ná fram ásætt­an­legu öryggi og hljóð­vist í þétt­býl­inu með end­ur­bótum á núver­andi vegi og við­eig­andi útfærslu hans og hönnun, svo sem með til­liti til umferð­ar­hraða.“

[links]Í mats­á­ætl­un­inni segir jafn­framt: „Stefnt er að því að veg­ur­inn verði greið­fær og öruggur lág­lendis­vegur. Lág­lendis­vegur um Mýrdal við Dyr­hólaós er tal­inn bæta umferð­ar­ör­yggi og útrýma erf­iðum far­ar­tálma í vetr­ar­veðrum á leið­inni frá Hell­is­heiði til Reyð­ar­fjarðar.“

Í umsögnum um mats­á­ætlun er m.a. bent á að veg­ur­inn liggur nú um háls sem er mest í rúm­lega 100 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og geti ekki talist hálendis- eða fjall­vegur. Í umsögnum er lagt til að aflað verði gagna um hversu oft hring­veg­ur­inn lok­ast vegna slæms veð­urs undir Eyja­fjöllum, í Öræfum og á Hell­is­heiði til sam­an­burðar.

Skipu­lags­stofnun tekur í áliti sínu undir þessar ábend­ingar. „Mik­il­vægt er að for­sendur fram­kvæmd­ar­innar séu settar fram á hlut­lægan hátt og stað­hæf­ingar studdar gögnum,“ segir í álit­inu. Í umhverf­is­mats­skýrslu þurfi að leggja fram upp­lýs­ingar um hversu oft, hve lengi og hvers vegna hring­veg­inum við Reyn­is­fjall er lokað árlega, t.d. sl. 10 ár, og bera saman við aðra kafla á hring­veg­inum sem stundum er lokað, s.s. Hell­is­heiði, Eyja­fjöll og Öræfi. Í vetr­ar­veðrum getur færð spillst á stórum svæðum og fleiri en einum stað. Skipu­lags­stofnun telur ástæðu til að í umhverf­is­mats­skýrslu komi fram upp­lýs­ingar um hversu oft lok­anir við Reyn­is­fjall eru hluti af víð­tæk­ari lok­unum og hversu oft umræddur veg­kafli við Reyn­is­fjall er eina lok­unin á hring­veg­inum um Suð­ur­land.

Þá gagn­rýnir Skipu­lags­stofnun einnig að í umfjöllun um for­sendur fram­kvæmd­ar­innar sé birt yfir­lit um slys og slysa­tíðni á árinum 2014-2018. „Ekki er gerð grein fyrir því af hverju umrætt tíma­bil var valið. Skipu­lags­stofnun telur að yfir­lit yfir lengra tíma­bil gefi betri mynd af slysa­tíðni, sem og að nýta nýj­ustu upp­lýs­ingar“. Sama eigi við um umferð­ar­taln­ingar, sem eru ein­göngu birtar fyrir árin 2014- 2018.

Stofn­unin setur svo sem skil­yrði að allir val­kostir verði útfærðir, hann­aðir og gagna fyrir þá aflað með sam­bæri­legum hætti. Jafn­framt þurfi að meta alla val­kosti með sama hætti í umhverf­is­mats­skýrslu.

Áhrif á útivist og ferðamennsku verði rannsökuð

Meðal ann­arra skil­yrða sem stofn­unin setur er að fjallað verði um áhrif allra val­kost­anna á úti­vist og tóm­stundir íbúa Víkur. „Við slíkt mat þarf að meta tengsl við og gæði nálægra úti­vist­ar­svæða sem og úti­svæða í þétt­býl­inu og gæði teng­inga fyrir gang­andi og hjólandi veg­far­endur.“ Ofan­greint mat á áhrifum á sam­fé­lagið í Vík þarf m.a. að byggja á við­horfskönnun meðal íbúa til mis­mun­andi val­kosta.

Einnig þarf að meta áhrif á ferða­þjón­ustu og úti­vist með því að ráð­ast í við­horfskönnun meðal ferða­manna og ferða­þjón­ustu­að­ila á svæð­inu til mis­mun­andi val­kosta.

Veglína í norð­ur­jaðri Dyr­hóla­óss, sem er meðal val­kosta, mun liggja á mótum mýr­lendis og sjáv­ar­leira. Skipu­lags­stofnun minnir á að vot­lendi yfir 2 hekt­ara að stærð og leirur njóta sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd og forð­ast ber að raska þeim nema brýna nauð­syn beri til. „Ef fram­kvæmdin hefur áhrif á svæði sem njóta sér­stakrar verndar þarf að rök­styðja brýna nauð­syn þess að raska svæð­unum í umhverf­is­mats­skýrslu.“

Alls eru skil­yrði Skipu­lags­stofn­unar sett fram í ell­efu liðum sem lesa má nánar um hér.

Næsta skref í umhverf­is­mati er gerð og kynn­ing umhverf­is­mats­skýrslu. Allir geta sent inn athuga­semdir þegar hún verður aug­lýst. Skipu­lags­stofnun gefur svo álit sitt á end­an­legri skýrslu og þar með lýkur umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár