Neita því að umhverfismatið sé aðeins til málamynda

Eina raun­hæfa aðgerðin sem getur komið í veg fyrir mikil og nei­kvæð umhverf­is­á­hrif af færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal er að færa hann ekki niður að strönd, segir Umhverf­is­stofnun.

Dyrhólaós er búsvæði fjölmargra fuglategunda.
Dyr­hólaós er búsvæði fjöl­margra fugla­teg­unda. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

Umhverf­is­stofnun telur að ekki sé unnt að ráð­ast i end­ur­heimt eða mót­væg­is­að­gerðir til að bæta fyrir umhverf­is­á­hrif sem myndu hljót­ast af því að færa hring­veg­inn við Vík í Mýrdal ofan af Gatna­brún og niður að strönd­inni. „Eina raun­hæfa aðgerðin sem getur komið í veg fyrir þessi miklu nei­kvæðu umhverf­is­á­hrif er að velja veg­inum annan stað en hér er gert.“

Þetta er meðal þess sem Umhverf­is­stofnun benti á í umsögn sinni um mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar vegna fyr­ir­hug­aðrar færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal. Umhverf­is­stofnun segir veg­lín­una með­fram strönd­inni liggja nærri land­svæðum sem talin eru hafa mjög mikið vernd­ar­gildi og staði sem séu vin­sælir meðal ferða­manna.

Skipu­lags­stofnun féllst nýverið á mats­á­ætl­un­ina með skil­yrðum.

[adspot]

Vegurinn liggur nú um Gatna­brún en sveit­ar­fé­lagið vill fá veg með strönd­inni sem þyrfti þá að fara umhverfis eða yfir Dyr­hólaós, og svo í jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall. Þessi skipu­lags­lína sveit­ar­fé­lags­ins sam­kvæmt gild­andi aðal­skipu­lagi er kölluð val­kostur 1 í mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar. Fjallað er þar um sex val­kosti til við­bótar, fjóra sem gera ráð fyrir jarð­göngum og tvo í námunda við núver­andi vegstæði.

[links]Sér­fræð­ingar Umhverf­is­stofn­unar vöktu í umsögn sinni athygli á því að svo virð­ist sem þegar hafi verið ákveðið hvar veg­ur­inn skuli liggja því að í grein­ar­gerð Vega­gerð­ar­innar komi fram að verið sé að vinna for­hönnun vegar sam­kvæmt val­kosti 1 og að mat á umhverf­is­á­hrifum verði unnið sam­hliða þeirri for­hönnun.

„Umhverf­is­stofnun telur að þegar mati á umhverf­is­á­hrifum virð­ist ekki ætlað annað hlut­verk en að setja fram til­lögu um útfærslu veg­ar­ins, t.d. hvort fláar verði 1:2,5 eða 1:3 eða hvort ræsi verða fleiri eða færri, þá er mats­ferlið orðið lítið annað en forms­at­riði sem þarf að ljúka áður en ráð­ist er í fram­kvæmdir.“

Umhverf­is­stofnun seg­ist svo hafa upp­lýs­ingar um að lík­ast til hafi aldrei verið hann­aður vegur um Gatna­brún heldur sé núver­andi vegur lag­fær­ing eldri vegar sem hafi verið val­inn staður á sama hátt og núver­andi vegur, þ.e. „settur út eftir aug­anu“. Stofn­unin telur því að koma þurfi fram að núver­andi vegur sé á engan hátt besta veg­tækni­lega lausnin á þessum stað og unnt sé að minnka halla og krappar beygjur með nýrri hönnun eins og ráð­gert er.

Vega­gerðin brást við þessum athuga­semdum Umhverf­is­stofn­unar með þeim orðum að þótt ákveðin stefna hafi verið mörkuð í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps og sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda, sem felur í sér strand­veg og jarð­göng, beri Vega­gerð­inni að skoða aðra raun­hæfa val­kosti. Auk þess hafi Vega­gerðin skyldum að gegna varð­andi kröfur um veg­tækni­leg atriði, greið­færni, umferð­ar­ör­yggi og kostnað. „Unnið er að frum­drögum fyrir alla val­kost­ina og verður sam­bæri­legra gagna aflað um val­kost­ina og gerð grein fyrir þeim í umhverf­is­mats­skýrslu. Vega­gerðin mót­mælir þeirri túlkun Umhverf­is­stofn­unar að umhverf­is­matið sé aðeins til mála­mynda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár