Loksins í skólann eftir 95 vikna lokun

Hvergi í heim­inum hafa skólar verið lengur lok­aðir vegna far­ald­urs­ins en í Úganda. Nú er loks komið að því að dyr þeirra verði opn­aðar en ljóst þykir að mörg börn munu ekki skila sér. Blaða­maður Kjarnans hitti Leiu sem hlakkar til að hefja nám.

Leia getur ekki beðið eftir að byrja í skólanum aftur.
Leia getur ekki beðið eftir að byrja í skól­anum aftur. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

„Ég mun læra stærð­fræði, skrift og lestur,“ segir Leia lágróma og hallar sér feimn­is­lega að föður sínum. Það hýrnar svo yfir henni er hún heldur áfram: „Ég læri að skrifa mamma, pabbi, bróðir og systir.“ Hún hefur sér­stakan áhuga á því að skrifa „bróðir“. Hún á nefni­lega von á systk­ini á næstu dögum og vonar heitt og inni­lega að hún eign­ist lít­inn bróður.

Leia er sex ára. Og á morgun rennur upp einn stærsti dagur lífs hennar hingað til: Hún má mæta aftur í skól­ann. Hún er meðal þeirra 15 millj­óna úganskra barna og ung­linga sem ekki hafa komið inn í skóla­stofu síðan í mars árið 2020 er skólum lands­ins var lokað vegna far­ald­urs­ins. Háskólar og fram­halds­skólar hófu ekki aftur göngu sína fyrr en í nóv­em­ber síð­ast­liðnum en grunn­skól­arnir hefj­ast loks aftur á morgun, 10. jan­úar. Þá hafa þeir verið lok­aðir í 95 vikur og er það lengsta skóla­lok­unin í heim­inum.

[adspot]

Leia sveiflar sér brosmild á hand­riði við búr veit­inga­stað­ar­ins á hót­el­inu í Kololo-hverfi í Kampala, höf­uð­borg Úganda, þar sem pabbi hennar vinnur. Hún þurfti að koma með honum í vinn­una sem hefur reyndar ekki gerst oft í far­aldr­inum því hún hefur getað verið hjá frænku sinni á meðan for­eldr­arnir vinna. Hún hjálpar pabba í vinn­unni og spjallar glað­lega við sam­starfs­menn hans. Bráðum ætlar hún svo að hjálpa mömmu með litla barnið. Það er því margt spenn­andi framundan hjá Leiu.

Leia hafði verið í for­skóla í þrjá mán­uði er far­ald­ur­inn skall á og öllum skólum í land­inu var lokað. Það var í mars árið 2020. Hún er ákaf­lega spennt að byrja aftur í skól­anum og hlakkar mest til að hitta vini sína. En auð­vitað líka að halda áfram að læra.

Faðir hennar segir að á meðan skóla­lok­un­inni hefur staðið hafi Leia fengið einka­kennslu. For­eldrar hennar og nokkrir nágrannar þeirra tóku sig saman og réðu kenn­ara sem kom reglu­lega til að kenna nokkrum börnum í einu. Þannig hefur Leia ekki alfarið farið á mis við menntun. Joshua segir marga aðra for­eldra hafa gripið til sama ráðs en þó séu þeir lík­lega fleiri sem ekki hafi haft efni á því. „Það verður mjög gott fyrir hana að kom­ast aftur í skól­ann,“ segir Joshua. Þá kom­ist meiri rútína á lífið.

Fjarnám í gegnum tölvur eða snjall­síma er ekki boði fyrir lang­flest börn í Úganda. Þessi tæki eru ein­fald­lega ekki til á heim­il­unum. Til stóð að útvarpa kennslu því margir eiga jú útvarp, en þau áform, sem margir höfðu bundið vonir við, runnu út í sand­inn.

Joshua telur að hin langa lokun skól­anna hafi haft áhrif á börn í Úganda. „Margir for­eldrar misstu vinn­una og höfðu engar tekjur. Þeir höfðu ekki efni á því að kaupa einka­kennslu fyrir börnin sín. Það verður því erf­ið­ara fyrir börnin að koma aftur í skól­ann, þau hafa misst úr tvö ár. Og fyrir eldri börnin er erf­ið­ara að setj­ast aftur á skóla­bekk. Sum þeirra hafa þurft að vinna til að afla pen­inga fyrir heim­ilið og ef for­eldr­arnir eru ekki ennþá komnir með vinnu þá er mjög lík­legt að mörg þeirra fari ekki aftur í skól­ann.“

Mikil fjölgun þunganna unglingsstúlkna

Þessi börn eru orðin vön því að vinna, bætir Joshua við. Þau hafa farið til vinnu í námum, á syk­ur­plantekrum eða selja ýmsan varn­ing á göt­unum og fólk í Úganda sem Kjarninn hefur rætt við seg­ist hafa séð sífellt fleiri börn við þá iðju síð­ustu mán­uði. Börn jafn­vel niður í ell­efu, tólf ára aldur.

Hin langa skóla­lokun hefur aðmati UNICEF, barna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, skapað skugga­far­aldur í Úganda. Ekki aðeins hafi börnin orðið af menntun heldur einnig nauð­syn­legum skóla­mál­tíðum og barna­bólu­setn­ingum. Þá segir UNICEF ástandið hafa skapað aukna hættu á ofbeldi gagn­vart börnum. „Fyrir sum börn hefur skóla­lok­unin leitt til brott­falls úr námi, barna­þrælk­unar og barna­hjóna­banda,“ sagði UNICEF í yfir­lýs­ingu nýverið Margir hafi misst vinn­una í far­aldr­inum og fleiri búi nú við fátækt en áður. Fátækt bitni verst á börn­unum.

Talið er að um þrjá­tíu pró­sent nem­enda muni ekki mæta aftur í skóla af þessum sökum. Samkvæmt gögnum UNICEF hefur þung­unum ung­lings­stúlkna fjölgað um 22,5 pró­sent síðan í mars árið 2020. Stúlk­urnar eru allt niður í tíu ára gamlar.

Kenn­ara­sam­band Úganda segir að lokun skól­anna í svo langan tíma hafi gert „meiri skaða en gagn“. Þau hafa ítrekað bent á að betra hefði verið að halda kennslu áfram í skól­unum með tak­mörk­uðum hætti. Eftir að delta-bylgjan reis hæst í júlí og gripið var til alls­herjar útgöngu­banns og fleiri aðgerða um tíma greindust fá smit vik­urnar og mán­uð­ina á eftir. Þá, segja Kenn­ara­sam­tökin, hefði átt að opna skól­ana, en ekki bíða með það í marga mán­uði í við­bót.

[adspot]

Joshua seg­ist hafa verið hlynntur lokun skól­anna. Hann telur að þær hörðu aðgerðir sem gripið var til í Úganda í far­aldr­inum hafa bjargað manns­lífum. „Það voru svo margir alvar­lega veikir,“ útskýrir hann. Margir dóu. Sjálfur fékk hann COVID-19 á síð­asta ári og eig­in­kona hans einnig. En for­eldrar hans og aðrir eldri ætt­ingjar hafa sloppið hingað til. „COVID hefur kennt mér nýjar leiðir til að fást við hlut­ina,“ segir hann fullur æðru­leysis. Hann vann í bygg­inga­geir­anum snemma í far­aldr­inum en missti þá vinnu. Hann hafi síðan fengið vinnu á hót­el­inu og telur sig sér­lega hepp­inn.

Stærsta bylgja COVID hingað til reið yfir Úganda í sumar. Til­fellum er farið að fjölga hratt á ný en veik­indi eru ekki jafn tíð og alvar­leg þar sem afbrigðið ómíkron er komið til sög­unnar. Fá sýni eru tekin dag­lega og enn færi rað­greind. Það er því ómögu­legt að segja hver raun­veru­leg útbreiðsla COVID-19 hefur verið í land­inu.

Bólu­setn­ingar hafa gengið mjög hægt í Úganda rétt eins og víð­ast hvar í hinni víð­feðmu Afríku. Skorti á bólu­efnum er helst um að kenna en að auki hefur borið á and­stöðu við bólu­setn­ingar. Enn hafa aðeins þrjú pró­sent íbú­anna, sem telja í kringum 45 millj­ónir, fengið fulla bólu­setn­ingu, þ.e. tvær sprautur. Um 18 pró­sent Úganda­manna hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu og lang flestir hafa fengið bólu­setn­ingu sína á síð­ustu vikum. Áhersla hefur und­an­farið verið lögð á að bólu­setja ung­menni og kenn­ara svo ekki þurfi að grípa til frek­ari lok­unar skól­anna.

Síðar í jan­úar mun Joshua fá sína bólu­setn­ingu. Hann er á þrí­tugs­aldri og heilsu­hraustur og því ekki í sér­stökum áhættu­hópi. „Mjög vill­andi upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar hafa verið á kreiki í Úganda,“ segir hann. En það telur hann smám saman vera að breyt­ast. Sífellt fleiri hafi látið af and­stöðu sinni, jafn­vel þeir sem töl­uðu hæst gegn bólu­setn­ingum eru búnir að fá sínar sprautur eða ætla að þiggja þær.

„Ég ætla að láta bólu­setja mig svo ég geti verið öruggur,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

covid19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár