Sóttvarnalæknir telur ástæðu til að aflétta takmörkunum hraðar

Sótt­varna­læknir segir stjórn­völd gera sitt besta til að aflétta sótt­varna­tak­mörk­unum í öruggum skrefum og vonar að hægt verði að aflétta hraðar en kynnt var í síð­ustu viku.

„Ég tel að góðar vonir séu til þess að við munum ná í mark í þessari baráttu og í þessu langhlaupi í síðari hluta mars og jafnvel fyrr ef ekkert óvænt kemur upp á,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
„Ég tel að góðar vonir séu til þess að við munum ná í mark í þess­ari bar­áttu og í þessu lang­hlaupi í síð­ari hluta mars og jafn­vel fyrr ef ekk­ert óvænt kemur upp á,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir ástandið vegna COVID-19 hafa lag­ast og álagið á spít­al­anum sömu­leiðis minnkað. Því sé það til skoð­unar af stjórn­völdum, í sam­vinnu við sótt­varna­lækni að ráð­ast í frek­ari aflétt­ingar en þær sem kynntar voru í síð­ustu viku.

Þetta er meðal þess sem fram kom í mála hans á upp­lýs­inga­fundi dags­ins þar sem hann fór yfir stöðu far­ald­urs­ins ásamt Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni hjá almanna­vörnum. Þórólfur segir það áhættu mat sem nú er stuðst við snúi ekki lengur ein­ungis að hættu­legum afleið­ingum sýk­ing­ar­innar sjálfrar, heldur einnig að þeim sam­fé­lags­legu afleið­ingum sem sjást af útbreiddum veik­indum og fjar­vistum starfs­manna.

„Þannig tel ég skyn­sam­legt að halda áfram að aflétta í ákveðnum skrefum og miða aflétt­ing­arnar við stöð­una eins og hún er og von­andi verður hægt að aflétta hraðar en kynnt var í síð­ustu viku,“ segir Þórólfur.

1.379 smit greindust inn­an­lands í gær og 49 á landa­mær­unum. 36 pró­sent þeirra sem greindust inn­an­lands voru í sótt­kví. Fimm pró­sent lands­manna eru ýmist í sótt­kví eða ein­angrun, 10.653 í ein­angrun og 6.887 í sótt­kví.

Til skoðunar að stytta einangrun og sóttkví fyrr en áætlað var

Fyrsta skref af þremur í aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda tók gildi 29. jan­úar. Síðan þá hefur almanna­varn­ar­stig vegna far­ald­urs­ins verið fært af neyð­ar­stigi, sem lýst var yfir 11. jan­úar, niður á hættu­stig og Land­spít­al­inn hefur sömu­leiðis verið færður af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig. Næsta skref aflétt­inga á að taka gildi 24. febr­úar en Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að mögu­lega verði ráð­ist í frekar aflétt­ingar fyrr, jafn­vel á föstu­dag.

Þórólfur tekur undir með heil­brigð­is­ráð­herra en segir ekki víst hvort hann skili minn­is­blaði um frek­ari aflétt­ingar til heil­brigð­is­ráð­herra fyrir rík­is­stjórn­ar­fund á föstu­dag en aflétt­ingar sem eru til skoð­unar snúi að því að stytta frekar ein­angrun og sótt­kví.

Bæði Víðir og Þórólfur nefndu að greina megi tölu­verðan óró­leika vegna aflétt­ing­ar­á­ætl­unar stjórn­valda. Þórólfur telur hins vegar að stjórn­völd séu að gera sitt besta til að aflétta í öruggum skrefum, en á sama tíma sé stöðugt verið að end­ur­skoða allt ferlið og koma til móts við þær athuga­semdir sem fram hafa komið.

„Ég tel að góðar vonir séu til þess að við munum ná í mark í þess­ari bar­áttu og í þessu lang­hlaupi í síð­ari hluta mars og jafn­vel fyrr ef ekk­ert óvænt kemur upp á,“ segir Þórólfur, sem skorar á lands­menn að standa saman þessa síð­ustu metra.

Farsóttarnefnd í takt við tillögur sóttvarnalæknis

Aðspurður hvort COVID-19 sé enn skil­greindur sem sjúk­dómur sem ógnar sam­fé­lag­inu segir Þórólfur slíkt lög, eins og eru til að mynda í Danmörku, séu ekki hér á landi en í sótt­varna­lögum er talað um sjúk­dóma sem ógna almanna­heill. Þórólfur benti á drög að nýjum sótt­varna­lögum þar sem sem reynt verður að sam­ræma skil­grein­ingar af þessu tagi við dönsku lögin.

Umrætt frum­varp um sótt­varna­lög er til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en sam­kvæmt því verður sótt­varna­læknir skip­aður af ráð­herra og níu manna far­sótt­ar­nefnd mun leggja til hvaða sótt­varna­ráð­staf­ana eigi að grípa til hverju sinni. Þórólfur segir nefnd­ina skyn­sam­legt skref og í takt við þær til­lögur sem hann lagði til við starfs­hóp­inn sem vann frum­varps­drögin.

Samkvæmt frum­varp­inu mun far­sótt­ar­nefndin taka að nokkru leyti við verk­efnum sótt­varna­læknis sam­kvæmt gild­andi lögum, þ.e. að koma með til­lögur til ráð­herra um beit­ingu veiga­mestu opin­beru sótt­varna­ráð­staf­anna. Mark­miðið með til­komu far­sótta­nefndar er að færa verk­efni og ábyrgð sótt­varna­læknis yfir á fleiri hendur með „breið­ari þekk­ingu og skírskotun“, eins og segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Í frum­varp­inu er lagt til að reglu­gerðir um sótt­varna­ráð­staf­anir gildi ekki lengur en fjórar vikur í senn en sótt­varna­læknir geti ákveðið að grípa til ráð­staf­ana í sjö daga án þess að leita heim­ilda, telji hann þörf á. Í frum­varp­inu er einnig lagt til að aðkoma og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis að opin­berum sótt­varna­ráð­stöf­unum verði styrkt og að heil­brigð­is­ráð­herra eigi að upp­lýsa Alþingi um sótt­varna­að­gerðir með mán­að­ar­legri skýrslu­gjöf.

Afslappaður klæðnaður Víðis tákn um bjartari tíma

Upp­lýs­inga­fund­ur­inn, sem er sá 197. í röð­inni end­aði á léttum nótum þegar Þórólfur sagði að um tíma­móta­dag væri að ræða þar sem þetta væri fyrsti upp­lýs­inga­fund­ur­inn þar sem Víðir er ekki í lög­reglu­bún­ingi. „Þetta er von­andi merki um það að bjart­ari tímar eru í vændum,“ sagði Þórólfur. Víðir brosti og sagði að mögu­lega teng­ist það því „hversu myglaður hann var í morgun.“ „En við sjáum til,“ sagði Víðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

covid19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár