Kemur til greina að stytta sóttkví hjá þríbólusettum

Stytting á sótt­kví hjá þrí­bólu­settum ein­stak­lingum er til skoð­unar að sögn sótt­varna­læknis. Útfærslan verður kynnt á næstu dögum. Bólu­setn­ing barna hefst í næstu viku. Samþykki beggja for­sjárað­ila þarf svo barn verði bólu­sett.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að komi til greina að stytta sóttkví þróbólusettra einstaklinga.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að komi til greina að stytta sótt­kví þróbólu­settra ein­stak­linga. Mynd: Bára Huld Beck

Vegna mik­illar útbreiðslu smita í sam­fé­lag­inu þessa stund­ina og þess mikla fjölda sem þarf að fara í sótt­kví á hverjum degi er það til skoð­unar að stytta sótt­kví hjá þrí­bólu­settum ein­stak­lingum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í morgun. Útfærslan verður kynnt á næstu dögum.

Sóttkví, það er þegar ein­stak­lingur hefur mögu­lega smit­ast af COVID-19 en er ekki með ein­kenni, er fimm dagar frá útsetn­ing­ar­degi og lýkur þegar við­kom­andi fær nei­kvætt PCR-próf. Sytting á sótt­kví þrí­bólu­settra gæti verið upp­hafið að ýmsum til­slök­unum í sótt­varna­tilliti að mati Þórólfs, en með stytt­ing­unni er einnig verið að koma til móts við atvinnu­lífið.

Yfir 16 þúsund í einangrun eða sóttkví

1.238 smit greindust í gær, þar af voru 1.074 smit inn­an­lands og 164 á landa­mær­unum. Nýgengi inn­an­lands­smita er nú 3.037,4 og hefur aldrei verið hærra. 7.525 eru í sótt­kví og 9.125 í ein­angrun.

30 sjúk­lingar liggja á Land­spít­ala með COVID-19 og er með­al­aldur þeirra 56 ár. Átta eru á gjör­gæslu, fimm þeirra í önd­un­ar­vél. Sex af átta sem eru á gjör­gæslu eru óbólu­sett. Karl­maður á sjö­tugs­aldri lést af völdum COVID-19 á Land­spít­ala í gær. Hann var óbólu­settur. Alls hafa 39 látið lífið af völdum COVID-19 frá því að far­ald­ur­inn braust út í febr­úar 2020.

Börn aðeins bólusett ef báðir forsjáraðilar eru samþykkir

Þórólfur segir óljóst hvort toppnum í smitum sé náð og næstu dagar munu skera úr um það. Sem stendur er ómíkron-afbrigðið algeng­ara hjá yngri full­orðnum en delta-afbrigðið hjá börnum.

Bólu­setn­ing barna 5-11 ára hefst í næstu viku og munu for­eldrar eða for­svars­menn barna fá senda til­kynn­ingu í lok vik­unnar um að börnum á þessum aldri standi bólu­setn­ing til boða. Fram kom í máli Kamillu Sigríðar Jós­efs­dóttur, læknis og verk­efna­stjóra hjá emb­ætti land­læknis, að svara verði til­kynn­ing­unni svo barn verði bólu­sett. Ef for­svars­menn eru tveir og með mis­mun­andi afstöðu verður barn ekki bólu­sett.

Þórólfur hvetur fólk til að mæta í bólu­setn­ingar og hvetur fólk sér­stak­lega til að þiggja örv­un­ar­skammt­inn. Þá hvetur hann for­eldra til að þiggja bólu­setn­ingu fyrir börn sín.

„Við þurfum áfram að berj­ast gegn COVID-19 til að vernda líf og heilsu lands­manna en hversu lengi sú bar­átta mun standa er ekki gott að segja til um á þess­ari stundu,“ sagði Þórolfur. Hann seg­ist þó sann­færður um að á næstu vikum og mán­uðum tak­ist að mynda sam­fé­lags­legt ónæmi svo hægt verði að snúa aftur til fyrra lífs. Það sé hins vegar óljóst hvort það marki enda­lok far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

covid19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár