Fullorðna fólkið kann að telja og ætti ekki að þurfa jóladagatal

Jóla­daga­töl af ýmsu tagi hafa verið að festa sig í sessi á íslenskum mark­aði, rétt eins og afslátt­ar­dagar að banda­rískri fyr­ir­mynd. Pró­fessor í félags­sál­fræði segir full­orðið fólk kunna og telja og þurfi því ekki jóla­daga­töl.

Biðin eftir jólunum getur verið löng og ströng en félagssálfræðingur segir fullorðið fólk fullfært um að telja niður dagana og þurfi því ekki jóladagatöl líkt og börnin.
Biðin eftir jól­unum getur verið löng og ströng en félags­sál­fræð­ingur segir full­orðið fólk full­fært um að telja niður dag­ana og þurfi því ekki jóla­daga­töl líkt og börnin. Mynd: Samsett

Slag­orðin „Black Friday,“ „svartur föstu­dagur,“ „svartur föss­ari“ og jafn­vel „myrkir mark­aðs­dagar,“ „svört vika“ og „svört helgi“ hafa lík­lega ekki farið fram hjá neyt­endum síð­ustu daga. Svarti föstu­dag­ur­inn er nýaf­stað­inn, dag­ur­inn þar sem versl­anir bjóða upp á ýmsa afslætti, og er fyr­ir­myndin sótt til Banda­ríkj­anna þar sem dag­ur­inn markar upp­haf jóla­versl­unar. Dagurinn hefur fest sig í sessi hér á landi síð­ustu ár ásamt Degi ein­hleypra (e. Singles Day) og Staf­rænum mánu­degi (e. Cyber Monday). Á meðan sumir neyt­endur kepp­ast við að gera góð kaup eru aðrir sem setja spurn­inga­merki við þessa daga.

Ragna Bene­dikta Garð­ars­dóttir, pró­fessor í félags­sál­fræði, ráð­leggur almenn­ingi að forð­ast allt mark­aðsáreiti. „Það gerir lífið svo miklu létt­ara, lík­ams- og sjálfs­mynd­ina betri og svo er það líka ódýr­ara, svo ekki sé minnst á kolefn­islos­un­ina sem spar­ast,“ segir Ragna, sem hefur meðal ann­ars rann­sakað áhrif neyslu­menn­ingar á umhverf­is­hegðun og umhverf­is­við­horf fólks.

Hátíð ljóss og friðar nálg­ast en ljóst er að mikil neyslu­há­tíð er einnig fram undan. Ragna segir að neyt­endur geti sett sér ein­föld við­mið til að forð­ast sem mest áreiti jóla­versl­un­ar­innar. „Ekki fylgja neinum á Instagram sem er ekki vinur þinn, ekki hleypa inn aug­lýsendum. Þið eruð ekki að missa af neinu sem verður ekki komið úr tísku eftir hálfan mánuð hvort eð er.“

[adspot] Jólaverslun sló öll met í fyrra

Stað­reyndin er hins vegar sú að jóla­verslun fær­ist sífellt í auk­ana en í fyrra sló hún öll met þegar heild­ar­korta­velta Íslend­inga í des­em­ber nam alls 83,8 millj­örðum króna, sem er 8,7% aukn­ing frá 2019. Kór­ónu­kreppan virð­ist því ekki hafa sett strik í jóla­verslun í fyrra ef marka má tölur frá Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafði samt sem áður áhrif en í grein­ingu rann­sókn­ar­set­urs­ins segir að lík­legt þyki að miklar tak­mark­anir á versl­un­ar­ferðum lands­manna til útlanda hafi haft mikil áhrif á verslun í des­em­ber í fyrra, en 55,3 millj­örðum var varið í verslun og 28,5 millj­örðum í þjón­ustu.

Netverslun nærri fimmfaldaðist

Vís­bend­ingar eru einnig um að jóla­versl­unin sé að dreifast yfir lengra tíma­bil og fær­ast að hluta til á netið. Þannig má nefna að inn­lend velta íslenskra korta í nóv­em­ber í fyrra nam alls 70,7 millj­örðum króna og jókst um 5,6 pró­sent, á föstu verð­lagi, milli ára. Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar metur það svo að auknar vin­sældir afslátt­ar­dag­anna þriggja, það er Dags ein­hleypra, Svarts föstu­dags og Stafræns mánu­dags, hafi breytt neyslu­venjum til fram­búðar og nú fer sífellt meiri jóla­verslun fram í nóv­em­ber. Þannig jókst verslun Íslend­inga um 28,6 pró­sent í nóv­em­ber milli ára og þar vóg net­verslun tæp 17 pró­sent allrar versl­unar í mán­uð­inum.

Ef rýnt er í tölur um net­verslun sést að í nóv­em­ber í fyrra var hún 368 pró­sent hærri en í sama mán­uði árið á undan. Mest var veltan í stór­mörk­uðum og dag­vöru­versl­unum, fata­versl­unum, raf- og heim­il­is­tækja­versl­unum og hjá versl­unum sem selja heim­il­is­búnað. Talið er að sam­komu­tak­mark­anir hafi haft áhrif á þessa miklu hækkun milli ára og það á því eftir að koma í ljós hvernig núgild­andi sam­komu­tak­mark­anir hafi áhrif á net- og jóla­verslun í ár.

„Fullviss um að fullorðna fólkið þurfi ekki hjálp við að telja dagana“

Á sama tíma og jóla­versl­unin er form­lega hafin hefur flóra jóla­daga­tala lík­lega aldrei verið eins fjöl­breytt og fyrir þessi jól. En er þetta enn eitt mark­aðs­fyr­ir­bærið sem ein­kennir jóla­ver­tíð­ina, líkt og afslátt­ar­dag­arnir sem marka upp­haf jóla­versl­unar? Ragna segir málið í raun sára­ein­falt, full­orðið fólk kunna og telja og þurfi því ekki jóla­daga­töl.

Tilkoma súkkulað­i­jóla­daga­tala á sínum tíma þótti mik­ill lúxus sam­an­borið við hefð­bundin jóla­daga­töl með fal­legum myndum. Í dag eru jóla­daga­töl ekki ein­ungis miðuð að börnum, heldur geta börn og full­orðnir stytt bið­ina eftir jólum með ýmsum hætti, allt frá súkkulað­i­jóla­daga­tala til snyrti­vara- og jafn­vel unað­stækja­daga­tala. „Jóla­daga­töl voru upp­runa­lega búin til til þess að hjálpa spenntum börnum að telja niður dag­ana til jóla. Ég er full­viss um að full­orðna fólkið þurfi ekki hjálp við að telja dag­ana, og því ætti það ekki að vanta daga­tal. Það er eitt­hvað annað sem býr að baki svona kaupum,“ segir Ragna. Í raun og veru sé verið að blekkja neyt­endur.

„Fólk sem er að kaupa sér svona 24 hluti í einum pakka er nefni­lega að falla fyrir eina elsta trix­inu í bók­inni, það er að telja sig vera að gera góð kaup því að þetta er bara ein greiðsla, en þau eru í raun að kaupa mun meira en þau þurfa mögu­lega á að halda og hefðu aldrei keypt akkúrat þessa 24 hluti ef þeir væru seldir í sitt­hvoru lagi,“ segir hún.

Tálmyndin um hið ljúfa líf

Kaup á jóla­daga­tali fela einnig í sér tál­mynd­ina um hið ljúfa líf að sögn Rögnu. „Það er sú trú að vissum, það er fjölda­fram­leiddum og dauðum hlutum, fylgi ein­hver sál­rænn ábati, ein­hver bætt líðan, betri sjálfs­mynd, hærri sam­fé­lags­staða, inn­ganga í vissan sam­fé­lags­hóp eða meiri vin­sældir. Fólk er venju­lega ekki með­vitað um að það sé að falla fyrir þessum ein­földu brögðum, en þau hafa virkað í mark­aðs­setn­ingu í um eina öld.“

Þá segir Ragna fólk einnig gjarn­ara til að falla fyrir félags­legum sam­an­burði en það er til­búið til að við­ur­kenna. „Fólk kaupir sér mögu­lega eitt­hvað „vegna þess að allir eiga þannig“ en það telur sér trú um að þau hafi í raun langað í þetta óháð því sem aðrir gera. Það er yfir­leitt ekki rétt hjá þeim. Þessu tengt er líka það sem heitir þriðju-per­sónu-áhrifin, sem eru þannig að fólk sér skýrt hvernig aðrir verða fyrir áhrifum af ein­hverjum for­tölum eða áróðri, en fólk sér ekki hvernig það sjálft verður fyrir þessum sömu áhrifum. Við van­metum áhrif mark­aðs­setn­ingar á okkar hegðun en erum raun­særri á áhrif mark­aðs­setn­ingar á aðra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár