Icelandair yfirgefur Íslensku auglýsingastofuna

Hreyfing hefur verið á nokkrum af stærstu aug­lýsendum á íslenska mark­aðnum und­an­farið. Nú hefur Icelandair yfir­gefið Íslensku aug­lýs­inga­stof­una eftir rúm­lega 30 ára sam­starf.

Icelandair hefur slitið ára­löngu sam­starfi sínu við Íslensku aug­lýs­inga­stof­una, sem hefur séð um aug­lýs­ingar félags­ins í rúma þrjá ára­tugi. Við­skipti Icelandair við stof­una voru vel á annað hund­rað millj­ónir króna á ári. Frá þessu er greint á ferða­þjón­ustu­frétta­vefnum Túrista.is.

Þar er haft eftir Ásdísi Ýri Pét­urs­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa Icelandair, að félagið hafi ákveðið að söðla um. Eftir að hafa leitað til­boða og hug­mynda hjá fleiri aug­lýs­inga­stofum hafi verið ákveðið að semja við Hvíta húsið. Gísli S. Brynj­ólfs­son, sem var ráð­inn mark­aðs­stjóri Icelandair í vor, var áður fram­kvæmda­stjóri Hvíta húss­ins og einn eig­enda stof­unnar. Hann þekkir því vel til þar inn­an­dyra.

[adspot]Þetta er annar stóri aug­lýsand­inn sem hreyfir sig á íslenskum aug­lýs­inga­mark­aði á skömmum tíma. Íslands­banki ákvað seint í ágúst að hætta föstu sam­starfi um aug­lýs­ingar við ákveðnar aug­lýs­inga­stofur, en bank­inn hafði áður verið stór við­skipta­vinur hjá Brand­en­burg.

Greint var frá því í gær að fjórum starfs­mönnum hefði verið sagt upp hjá Brand­en­burg í síð­ustu viku vegna sam­dráttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár