Aftur niður í 50 manna fjöldatakmörk á miðnætti

Almennar fjölda­tak­mark­anir munu frá og með mið­nætti kveða á um að almennt megi ein­ungis 50 manns megi vera í sama rými. Allt að 500 manns mega þó koma saman á við­burðum, þar sem kraf­ist verði hrað­prófa.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Í nýrri reglu­gerð um sam­komu­tak­mark­anir sem tekur gildi á mið­nætti í kvöld verður kveðið á um að ein­ungis 50 manns megi vera í sama rým­inu. Allt að 500 manns mega þó koma saman í hverju sótt­varn­ar­hólfi á við­burðum þar sem kraf­ist er hrað­prófa.

Veit­inga­hús og barir þurfa að loka dyrum sínum kl. 22 og koma öllum gestum út fyrir kl. 23 á kvöldin og fjöldi gesta í sund­laugum og lík­ams­rækt­ar­stöðum verður tak­mark­aður við 75 pró­sent af leyfi­legum fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi.

Þetta til­kynnti Svandís Svav­ars­dóttir eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag. Gert er ráð fyrir að þessar aðgerðir verði í gildi í þrjár vikur, eða til og með 8. des­em­ber.

[adspot]

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um þessar aðgerðir segir að Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir telji harðar sótt­varna­að­gerðir nauð­syn­legar á meðan að unnið sé að því að ná víð­tæku ónæmi í sam­fé­lag­inu með örv­un­ar­bólu­setn­ingum, sem þegar séu hafnar. Gert er ráð fyrir því að boða um 160 þús­und manns í örv­un­ar­bólu­setn­ingu fyrir ára­mót.

Takmarkanir sem taka gildi á miðnætti, aðfaranótt 13. nóvember:

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir 50 manns: Börn fædd 2016 og síðar telj­ast ekki með. Í þessu felst að óheim­ilt er að fleiri en 50 komi saman, hvort heldur inni eða utandyra, í opin­berum rýmum eða einka­rýmum.
  • Nálægð­ar­mörk 1 metri milli ótengdra aðila: Ef ekki er hægt að virða mörkin er skylt að nota and­lits­grímu. Þrátt fyrir þetta eru íþróttir með snert­ingu áfram heim­ilar hjá börnum og full­orðnum. Enn fremur eru leik­skóla­börn og nem­endur í 1. til 4. bekk í grunn­skóla und­an­þegin 1 metra regl­unni.
  • Grímunotkun: Skylt er að nota grímu sé ekki hægt að virða 1 metra reglu, s.s. í versl­unum, almenn­ings­sam­göngum og starf­semi sem krefst nándar, t.d. á hár­greiðslu­stofum. Börn fædd 2006 og síðar eru und­an­þegin grímu­skyldu.
  • Fjöl­mennir við­burðir með notkun hrað­prófa: Heimilt er að halda við­burði fyrir 500 manns í hverju sótt­varna­hólfi ef allir gestir fæddir 2015 og fyrr fram­vísa nei­kvæðri nið­ur­stöðu úr hrað­prófi sem má ekki vera eldra en 48 klst. Ef ekki er hægt að upp­fylla 1 metra reglu skulu gestir bera grímu, að und­an­skildum börnum fæddum 2006 eða síðar. Heimilt er að víkja frá 1 metra reglu þegar gestir sitja en þá ber að nota grímu. Skylt er að skrá gesti í föstum sætum með nafni, kenni­tölu og síma­núm­eri. Óheimilt er að selja veit­ingar í hléi. Á skóla­skemmt­unum með hrað­prófum í grunn- og fram­halds­skólum er und­an­þága frá 1 metra reglu og grímu­skyldu.
  • Sund-, bað­staðir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar og skíða­svæði mega taka á móti 75% af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta sam­kvæmt starfs­leyfi. Börn fædd 2016 eða síðar telj­ast ekki með.
  • Opn­un­ar­tími veit­inga­staða o.fl.: Veit­inga­húsum og öðrum stöðum þar sem áfeng­is­veit­ingar eru heim­ilar er óheim­ilt að hleypa inn nýjum við­skipta­vinum eftir kl. 22.00 og allir gestir eiga að vera farnir hið síð­asta kl. 23.00. Vín­veit­ingar skulu aðeins bornar fram til sitj­andi gesta. Skylt er að halda skrá yfir gesti. Einka­sam­kvæmi á stöðum með vín­veit­inga­leyfi eru óheimil eftir kl. 23.00.
  • Versl­anir og söfn: Í versl­unum og söfnum gilda almennar reglur um 50 manna fjölda­tak­mörk, 1 metra reglu og grímu­skyldu. Þó er heim­ilt að taka á móti fimm við­skipta­vinum til við­bótar á hverja 10 m² en þó aldrei fleirum en 500 að hámarki.

Takmarkanir sem gilda munu um skólastarf:

  • Í skóla­starfi gilda almennar reglur um 50 manna fjölda­tak­mörk nema börn fædd 2016 og síðar eru und­an­skilin. Börn fædd 2006 og síðar eru und­an­þegin grímu­skyldu.
  • Starfs­fólki í leik­skólum er ekki skylt að nota grímu í sam­skiptum við leik­skóla­börn.
  • Kennurum í grunn­skólum er heim­ilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skóla­stofum.
  • Nemendum og kenn­urum í fram­halds­skólum er heim­ilt að taka niður grímu eftir að sest er niður inni í skóla­stofum.
  • Blöndun milli hópa í skóla­starfi er heimil á öllum skóla­stigum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár