Ráðuneyti braut gegn persónuverndarlögum með framkvæmd Ferðagjafar og fékk sekt

Smá­forritið sem notað var til að dreifa ferða­gjöf stjórn­valda sótti um tíma, án vit­neskju eig­enda sím­tækja, aðgang að „mynda­vél til þess að taka ljós­myndir og mynd­bönd, svo og að hljóð­nema til að taka upp hljóð og breyta hátal­ara­still­ingum sím­tækis.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er sá ráðherra sem bar ábyrgð á framkvæmd Ferðagjafarinnar.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er sá ráð­herra sem bar ábyrgð á fram­kvæmd Ferða­gjaf­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu hefur verið gert að greiða 7,5 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt vegna vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga í tengslum við ferða­gjöf stjórn­valda. Fyr­ir­tæk­inu YAY ehf., sem bjó til smá­forrit sem not­ast var við í útdeil­ingu ferða­gjaf­ar­innar, hefur verið gert að greiða 4,5 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt af sömu sökum.

Þetta kemur fram í ákvörðun Per­sónu­verndar í mál­inu sem birt var í morgun. Þar segir að ráðu­neytið og fyr­ir­tækið sem það réð til að útdeila ferða­gjöf­inni staf­rænt hafi brotið gegn grund­vall­ar­reglum per­sónu­vernd­ar­lög­gjaf­ar­innar, til dæmis um fræðslu­skyldu, gagn­sæi og öryggi per­sónu­upp­lýs­inga í smá­forrit­inu Ferða­gjöf.

„Dagana 18.-23. júní 2020 sótti smá­forritið, í ein­hverjum til­vikum án vit­neskju eig­enda þeirra, mjög víð­tækar aðgangs­heim­ildir í sím­tækjum not­enda. Þar á meðal var sóttur aðgangur að mynda­vél til þess að taka ljós­myndir og mynd­bönd, svo og að hljóð­nema til að taka upp hljóð og breyta hátal­ara­still­ingum sím­tækis,“ segir meðal ann­ars í ákvörðun Per­sónu­verndar.

Ráðu­neytið ákvað að semja við YAY ehf. í júní í fyrra og fékk fyr­ir­tækið greiddar fjórar millj­ónir króna fyrir að hanna smá­forrit utan um ferða­gjöf stjórn­valda. Sam­kvæmt svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­isins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið á þeim tíma var lausn fyr­ir­tæk­is­ins metin hæfust af fjölda lausna sem upp­haf­lega voru skoð­að­ar.

Auk þeirra fjög­urra millj­óna króna sem fyr­ir­tækið fékk fyrir að hanna Ferða­gjaf­ar-­for­ritið reikn­aði ráðu­neytið með að greiða YAY ehf. á bil­inu átta til ell­efu millj­ónir króna til við­bótar fyrir rekstr­ar­þjón­ustu for­rits­ins þar til fyrsta áfanga verk­efn­isins lyki, en ferða­gjaf­irn­ar, sem námu 5.000 krónum á hvern íbúa á Íslandi 18 ára og eldri, voru upp­haf­lega inn­leys­an­legar til loka árs í fyrra. Sá frestur var síðan fram­lengdur og ráð­ist var í útgáfu nýrrar ferða­gjafar á þessu ári sem einnig var ráð­stafað í gegnum smá­forrit YAY ehf.

YAY viðurkenndi mistök

Per­sónu­vernd segir að sér hafi borist fjöldi ábend­inga um að við notkun ferða­gjaf­ar­innar hefði verið kraf­ist umfangs­mik­illa per­sónu­upp­lýs­inga og víð­tæks aðgangs að sím­tækjum not­enda. Því frum­kvæð­is­rann­sókn sett af stað.

Nið­ur­staða Per­sónu­verndar var sú að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, sem ábyrgð­ar­að­ili vinnsl­unnar, braut gegn mörgum grund­vall­ar­reglum per­sónu­vernd­ar­lög­gjaf­ar­innar auk þess sem vinnslan var umfangs­mikil. Þá hafi hvorki atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið né YAY ehf. gert „við­eig­andi tækni­legar og skipu­lags­legar ráð­staf­anir til að tryggja öryggi við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, svo sem með aðlögun og mótun still­inga smá­forrits­ins, auk þess sem ekki var gerður vinnslu­samn­ingur milli aðila svo sem lög kveða á um, en gerð slíks samn­ings telst til mik­il­vægra skipu­lags­legra ráð­staf­ana vegna vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.“

[adspot]Í ákvörð­un­inni kemur fram að þrátt fyrir ábend­ingar Per­sónu­verndar um ófull­nægj­andi fræðslu hafi seint verið gripið til úrbóta og allt þar til verk­efn­inu lauk nú í sumar var not­endum gert að sam­þykkja ranga not­enda­skil­mála við inn­skrán­ingu í smá­forritið.

Þar segir enn fremur að það hafi verið fyrir mis­tök YAY ehf. að aflað hafi verið víð­tækra og ónauð­syn­legra aðgangs­heim­ilda í sím­tækjum not­enda smá­forrits­ins, meðal ann­ars að við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum, svo sem trún­að­ar­upp­lýs­ingum í daga­tali. „Hins vegar kom í ljós við rann­sókn máls­ins að per­sónu­upp­lýs­ingar not­enda hefðu ekki verið sóttar á grund­velli fyrr­greindra aðgangs­heim­ilda.“

YAY ehf. við­ur­kenndi að vinnslan hefði farið fram fyrir mis­tök og verið ónauð­syn­leg. „Auk þess komst Per­sónu­vernd að þeirri nið­ur­stöðu að fyr­ir­tækið hefði ekki upp­fyllt kröfur per­sónu­vernd­ar­laga um inn­byggða og sjálf­gefna per­sónu­vernd við upp­setn­ingu smá­forrits­ins. Þá lágu ekki fyrir gögn sem sýndu að gerðar hefðu verið úttektir eða próf­anir til að meta skil­virkni og still­ingar for­rits­ins, meðal ann­ars með til­liti til þess hvaða per­sónu­upp­lýs­inga væri í reynd óskað við inn­skrán­ingu í smá­forritið og þeirra aðgangs­heim­ilda sem aflað væri sjálf­krafa. Var hátt­semi YAY ehf. því ekki talin sam­ræm­ast per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­inni hvað þessi atriði varð­aði.“

Kostaði rúmlega tvo milljarða

Í tölum Ferða­mála­stofu kemur fram að alls hafi verið sóttar 231.331 ferða­gjafir í seinni úthlutun þeirra fyrir 1.157 millj­arð króna. Not­aðar voru 218.934 ferða­gjafir og voru 194.171 full­nýttar (5.000 krón­ur) Ónot­aðar ferða­gjafir voru 12.397 og nam ónotuð upp­hæð um 80 millj­ónum króna. Heild­ar­upp­hæð sem nýtt var í ferða­gjöf var því 1.076.841.713 krón­ur.

[links]Sam­­kvæmt mæla­­borði ferða­­þjón­ust­unnar var rétt rúm­­lega millj­­arður greiddur út í formi ferða­gjafar í fyrri atrennu hennar. Ferða­­gjöf 2020 átti að gilda frá júní í fyrra og út árið 2020 en var fram­­lengd til loka maí á þessu ári. Af þeim 280 þús­undum sem gátu nýtt sér síð­­­ustu ferða­­gjöf sóttu 240 þús­und gjöf­ina en heild­­ar­­fjöldi not­aðra gjafa nam 207 þús­und­­um. Því er heild­ar­kostn­aður skatt­greið­enda vegna ferða­gjaf­ar­innar rúm­lega tveir millj­arðar króna.

Mörg þeirra fyr­ir­tækja sem fengu mest út úr seinni ferða­gjöf­inni mynd­uðu þann hóp sem fékk mest út úr þeirri fyrri. Þar ber helst að nefna elds­neyt­is­sal­ana N1 og Olís og skyndi­bita­keðj­urnar Domino´s og KFC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár