Tíu fengu 40 prósent af seinni ferðagjöfinni – 226 milljónir runnu út síðasta daginn

Alls var rúmum millj­arði króna ráð­stafað úr rík­is­sjóði til fyr­ir­tækja í gegnum síð­ari ferða­gjöf­ina. Um 20 pró­sent ferða­gjaf­ar­innar var notuð á síð­asta degi gild­is­tíma hennar. Elds­neyt­is­salar og skyndi­bita­keðjur fengu mest.

Mynd tekin fyrir utan N1-verslun að kvöldi 30. september 2021. Það var síðasti dagurinn til að nota ferðagjöfina. Landsmenn notuðu ferðagjafir til að kaupa eldsneyti hjá N1 fyrir 27 milljónir á þeim degi einum og sér.
Mynd tekin fyrir utan N1-verslun að kvöldi 30. sept­em­ber 2021. Það var síð­asti dag­ur­inn til að nota ferða­gjöf­ina. Lands­menn not­uðu ferða­gjafir til að kaupa elds­neyti hjá N1 fyrir 27 millj­ónir á þeim degi einum og sér. Mynd: Bára Huld Beck

Alls nýttu lands­menn 1.076 millj­ónir króna af seinni ferða­gjöf stjórn­valda, en frestur til að nýta hana rann út síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Um 20 pró­sent upp­hæð­ar­innar, alls 226 millj­ónir króna, voru nýttar á síð­asta degi gild­is­tíma hennar. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum frá Ferða­mála­stofu.

Þegar stjórn­völd ákváðu að ráð­ast í aðra umferð á útdeil­ingu ferða­gjafar þá var gengið út frá því að 1,4 millj­arðar króna yrðu til útdeil­ingar. Hluti þeirrar upp­hæðar færð­ist úr þeim sjóðum sem teknar höfðu verið til hliðar vegna fyrstu ferða­gjaf­ar­innar en voru ekki nýttir, alls um 650 millj­ónir króna, en til við­bótar voru settar 750 millj­ónir króna í við­bót­ar­fjár­magn úr rík­is­sjóði í verk­efnið.

Það þurfti ekki að ferð­ast til að nýta ferða­gjöf­ina, sem var fimm þús­und krónur á hvern full­orð­inn Íslend­ing. Hægt var að nýta hana í næsta nágrenni við heim­ili sitt til að kaupa elds­neyti, mat eða ýmis konar þjón­ustu. Fjölmörg fyr­ir­tæki buðu til að mynda upp á það að lands­menn gætu keypt gjafa­bréf upp á aðeins hærri upp­hæð fyrir ferða­gjöf­ina, og þannig notað hana síðar.

Í nið­ur­broti á skipt­ingu gjaf­ar­innar kemur fram að um 72 pró­sent upp­hæð­ar­innar hafi annað hvort farið til fyr­ir­tækja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (50,9 pró­sent) eða til lands­dekk­andi fyr­ir­tækja (21 pró­sent).

Nokkrir tóku mest

Alls fór næstum 40 pró­sent allra ferða­gjafa til tíu fyr­ir­tækja. Þau sem tóku mest til sín eru elds­neyt­is­sal­arnir N1 (91 milljón króna) og Olís (57 millj­ónir króna). Bæði þessi fyr­ir­tæki eru í eigu félaga sem skráð eru á hluta­bréfa­markað og skila miklum hagn­aði árlega, ann­ars vegar Festa og hins vegar Haga.

[adspot]Á topp tíu list­anum er einnig að finna Icelandair og Icelandair Hotels, sem er að hluta í eigu móð­ur­fé­lags flug­fé­lags­ins sem er skráð á hluta­bréfa­markað. Hið nýlega bað­lón Sky Lagoon hefur ber­sýni­lega staðið sig vel í að hvetja kúnna til að nýta ferða­gjöf­ina hjá sér en það er í þriðja sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem fengu mest með 48 millj­ónir króna. Rafræna miða­salan Tix, sem selur aðgangs­miða að ýmsum lista- og afþrey­ing­ar­at­burðum eins og tón­leikum og leik­húsum, er svo í fjórða sæti með 45 millj­ónir króna. Þrjár skyndi­bita­keðjur kom­ast á topp tíu list­ann: KFC, Hlölla­bátar og Pizza-Pizza, sem rekur Domino´s á Íslandi. Sam­an­lagt fóru rúm­lega 99 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði til þess­ara þriggja skyndi­bita­keðja í formi ferða­gjafa í seinni umferð þeirra.

Þau tíu fyrirtæki sem fengu mest út úr ferðagjöfinni eru eftirfarandi:

  1. N1 91.072.061 krónur
  2. Olís 56.913.486 krónur
  3. Sky Lagoon 48.011.254 krónur
  4. Tix 45.356.975 krónur
  5. KFC 37.741.496 krónur
  6. Hlölla­bátar 34.883.039 krónur
  7. Flug­leiða­hótel (Icelandair Hotels) 31.965.564 krónur
  8. Flyover Iceland 27.753.846 krónur
  9. Pizza-Pizza 26.739.943 krónur
  10. Icelandair 22.335.409 krónur

Alls topp tíu: 422.773.073 krónur

Rann æði á landann síðasta daginn

Síðasta dag­inn sem ferða­gjöfin gilti, 30. sept­em­ber, rann á þjóð­ina ferða­gjaf­aræði. Þann dag not­uðu lands­menn 226 millj­ónir króna í ferða­gjafir til fyr­ir­tækja. Um helm­ingur þeirrar upp­hæðar fór til tíu fyr­ir­tækja. Mest tók N1 til sín á loka­deg­inum, eða 27,4 millj­ónir króna. Það þýðir að 30 pró­sent upp­hæð­ar­innar sem N1 fékk í ferða­gjöf kom inn á síð­asta gild­is­degi hennar. Mikil hvatn­ing, meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum, frá lista- og afþrey­ing­ar­sam­fé­lag­inu til fólks um að nota ferða­gjöf­ina í að kaupa miða á ýmis­konar sýn­ingar skil­aði því að 22,3 millj­ónir króna runnu í kaup á vörum hjá Tix.is þann 30. sept­em­ber. Því kom rétt um helm­ingur þeirrar heild­ar­upp­hæðar sem Tix náði í úr ferða­gjöf­inni inn á einum sól­ar­hring.

Til sam­an­burðar not­uðu Íslend­ingar 87 millj­ónir króna í ferða­gjöf á síð­asta gild­is­degi fyrri gjaf­ar­innar, í lok maí síð­ast­lið­ins, eða um þriðj­ungi þeirrar upp­hæðar sem var eytt nú. Vert er þó að taka fram að gild­is­tími fyrri ferða­gjaf­ar­innar var mun lengri og fleiri búnir að ráð­stafa henni fyrir síð­asta dag­inn þá en nú.

Þau tíu fyrirtæki sem fengu mest út úr ferðagjöfinni þann 30. september eru eftirfarandi:

  1. N1 27.403.425 krónur
  2. Tix 22.327.289 krónur
  3. Olís 14.501.395 krónur
  4. Hlölla­bátar 12.976.634 krónur
  5. Sky Lagoon 6.726.578 krónur
  6. KFC 6.369.801 krónur
  7. Flug­leiða­hótel (Icelandair Hotels) 6.364.701 krónur
  8. Flyover Iceland 4.931.880 krónur
  9. Pizza-Pizza 4.508.170 krónur
  10. Borg­ar­leik­húsið 3.924.042 krónur

Alls topp tíu: 110.033.915 krónur

Rúmir tveir milljarðar allt í allt

Í tölum Ferða­mála­stofu kemur fram að alls hafi verið sóttar 231.331 ferða­gjafir fyrir 1.157 millj­arð króna. Notaðar voru 218.934 ferða­gjafir og voru 194.171 full­nýttar (5.000 krónur) Ónotaðar ferða­gjafir voru 12.397 og nemur ónotuð upp­hæð um 80 millj­ónum króna. Heild­ar­upp­hæð sem nýtt var í ferða­gjöf var, líkt og áður sagði, 1.076.841.713 krónur.

Sam­kvæmt mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar var rétt rúm­lega millj­arður greiddur út í formi ferða­gjafar í síð­ustu atrennu. Ferða­gjöf 2020 átti að gilda frá júní í fyrra og út árið 2020 en var fram­lengd til loka maí á þessu ári. Af þeim 280 þús­undum sem gátu nýtt sér síð­ustu ferða­gjöf sóttu 240 þús­und gjöf­ina en heild­ar­fjöldi not­aðra gjafa nam 207 þús­und­um. Því er heild­ar­kostn­aður skatt­greið­enda vegna ferða­gjaf­ar­innar rúm­lega tveir millj­arðar króna.

Mörg þeirra fyr­ir­tækja sem fengu mest út úr seinni ferða­gjöf­inni mynd­uðu þann hóp sem fékk mest út úr þeirri fyrri. Þar ber helst að nefna elds­neyt­is­sal­ana N1 og Olís og skyndi­bita­keðj­urnar Domino´s og KFC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár