Mun þétting byggðar fylla skólana í borginni?

Með þétt­ingu byggðar og fólks­fjölgun í Reykja­vík­ur­borg má vænta þess að börnum fjölgi í sumum grónum hverfum borg­ar­innar – fyrir utan nýju hverfin. Kjarninn kann­aði hvernig áætl­anir borg­ar­innar um grunn­skóla- og leik­skóla­mál líta út til næstu ára.

Borgin hefur verið að vinna með það að markmiði að hægt verði að bjóða öllum börnum leikskólavist við 12 mánaða aldur innan nokkurra ára.
Borgin hefur verið að vinna með það að mark­miði að hægt verði að bjóða öllum börnum leik­skóla­vist við 12 mán­aða aldur innan nokk­urra ára. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Reykja­vík­ur­borg býst við því að á næstu árum þurfi að bregð­ast við auk­inni fólks­fjölgun í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laug­ar­dal og Háaleiti með því meðal ann­ars að stækka leik­skóla með við­bygg­ingum og nýjum leik­skóla­deildum sem ýmist verði í var­an­legu hús­næði, eða fær­an­legu, sem nýta má til að mæta breyt­ingum á þróun íbúa­fjölda í hverfum borg­ar­innar.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svörum skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem send var til þess að fá fram hvernig borgin sæi fyrir sér að skóla­mál í borg­inni þró­uð­ust sam­fara upp­bygg­ingu hús­næðis.

Áætlanir borg­ar­innar gera jú ráð fyrir því að á næstu árum bygg­ist upp tölu­vert mikið af nýjum íbúðum inni í grónum hverfum borg­ar­innar – ekki síst umhverfis legu fyr­ir­hug­aðrar Borg­ar­línu – og vænt­an­lega flytja þangað ein­hver börn.

Nýir grunnskólar í nýjum og stækkandi hverfum

Fyr­ir­spurnin til borg­ar­innar laut bæði að leik­skólum og grunn­skólum. Hvað grunn­skóla varðar segir borgin að nýir grunn­skólar séu skipu­lagðir víða um borg­ina í tengslum við upp­bygg­ingu hús­næðis. Þannig eru nýir grunn­skólar á áætl­unum í Skerja­firði, Voga­byggð, Ártúns­höfða og Bryggju­hverfi, en þetta eru þau svæði í borg­inni þar sem stendur til að byggja mest af nýjum íbúðum á næsta ára­tug eða svo.

Eins og Kjarninn rakti fyrr á árinu er gert ráð fyrir því að íbúðir í hinu nýja borg­ar­hluta á Ártúns­höfða verði jafn­vel um 6.000 tals­ins þegar hverfið verður að fullu upp­byggt, en það eru svipað margar íbúðir og eru í öllum Graf­ar­vogi í dag. Land­svæðið í nýja borg­ar­hlut­anum er hins vegar rösk­lega fjórum sinnum minna.

Auk þess er tekið fram að borgin hafi keypt Vörðu­skóla, sem stendur við Bar­óns­stíg, við hlið Aust­ur­bæj­ar­skóla. Til­gangur þeirra kaupa var að byggja upp safn­skóla á ung­linga­stigi í ljósi áætl­aðrar fjölg­unar íbúa til fram­tíðar á þessu svæði, en Aust­ur­bæj­ar­skóli er eini grunn­skól­inn sem Reykja­vík­ur­borg rekur í mið­borg­inni í dag.

Borgin rekur í dag alls 36 almenna grunn­skóla í hverfum borg­ar­innar, auk tveggja sér­skóla. Til við­bótar eru sex einka­reknir skólar í Reykja­vík og alls stunda um 15.500 nem­endur nám í þessum skólum í dag.

Leikskólar sumir að opna og aðrir á skipulagi

Hvað leik­skól­ana varðar segir skóla- og frí­stunda­svið í svörum til Kjarnans að nýir leik­skólar séu skipu­lagðir víðs­vegar um borg­ina.

[adspot]

Þar á meðal er gert ráð fyrir leik­skólum á upp­bygg­ing­ar­svæðum í Skerja­firði, Voga­byggð og einnig í Völvu­felli í Breið­holti „á allra næstu árum“ en lengra er í að leik­skólar sem eru í skipu­lagi á Ártúns­höfða og í Bryggju­hverfi verði byggðir og teknir í notkun.

Aðrir leik­skólar eru nær því að opna og sagðir gera það á „kom­andi miss­erum“ en þeir eru hinn svo­kall­aði „mið­borg­ar­leik­skóli“ við Njáls­götu, leik­skól­inn við Klepps­veg (Brák­ar­borg-Sund), auk þess sem leik­skólar eiga að opna í Safamýri, á Kirkju­sandi og í Brí­et­ar­túni.

Ævintýraborgir til að brúa bilið

Leik­skóla­málin eru mála­flokkur sem núver­andi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti sagð­ist ætla sér að taka föstum tökum í upp­hafi yfir­stand­andi kjör­tíma­bils. „Við viljum brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla með fjölgun ung­barna­deilda og bygg­ingu nýrra leik­skóla, auk þess að skoða aðgerðir til að fjölga dag­for­eldrum,“ segir auk ann­ars í meiri­hluta­sátt­mála Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og VG.

Nokkur gagn­rýni hefur þó verið á að inn­ritun á leik­skóla sé ekki í takt við mark­mið borg­ar­yf­ir­valda, sem hafa verið að öll 18 mán­aða börn eigi að geta gengið að leik­skóla­plássi vísu og hafa ein­sett sér að lækka þann aldur niður í 12 mán­aða börn, svo hægt væri að bjóða upp á leik­skóla­pláss um leið og fæð­ing­ar­or­lofi sleppir.

Í frétt Rík­is­út­varps­ins frá því í febr­úar kom fram að um 200 börn sem orðin væru 18 mán­aða biðu eftir því að kom­ast að á leik­skólum og að rúm­lega 540 börn sem hefðu náð eins árs aldri væru að auki á biðlista eftir plássi.

Til við­bótar, sagði Helgi Grímsson sviðs­stjóri, voru um 400 börn á biðlistum eftir því að fá færslu á annan leik­skóla, til dæmis leik­skóla sem væru nær heim­ili eða vinnu­stað for­eldra. Það væri því ýmis­legt til að leysa úr, í leik­skóla­mál­unum.

Nýlega kynnti borgin til sög­unnar tíma­bundnar lausnir til þess að fjölga leik­skóla­plássum. Þetta verða nýir fær­an­legir leik­skólar, sem borgin kallar Ævin­týra­borgir.

Þær verða stað­settar við Egg­erts­götu, Naut­hóls­veg, Vörðu­skóla og í Voga­byggð og eiga að verða til­búnar til notk­unar á allra næstu mán­uðum, sam­kvæmt svörum skóla- og frí­stunda­sviðs. Alls eiga þetta að verða um 340 ný leik­skóla­pláss.

Alls rekur skóla- og frí­stunda­svið 63 leik­skóla þar sem dvelja um 5.200 börn. Að auki eru sautján sjálf­stætt starf­andi leik­skólar eru í borg­inni og alls eru leik­skóla­börnin um 6.450 tals­ins, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef borg­ar­innar.

Boða að bætt verði í Brúum bilið

Samkvæmt svörum sviðs­ins er í leik­skóla­mál­unum unnið eftir aðgerða­á­ætl­un­inni Brúum bilið hvað leik­skóla­málin varðar, en sú ætlun sem sam­þykkt var undir lok árs 2020 gerði ráð fyrir því að fjölga leik­skóla­plássum um 700-750 fram til árs­loka 2023.

„Nú er verið að end­ur­skoða þá áætlun og fjölga enn frekar plássum til að mæta auknum íbúa­fjölda og verður sú áætlun kynnt fyrir ára­mót. Þá er verið að vinna áætlun til næstu ára varð­andi við­bygg­ingar við leik­skóla og grunn­skóla og end­ur­skoða áætlun um grunn- og leik­skóla sem tengj­ast nýjum hverfum,“ segir í svari skóla- og frí­stunda­sviðs borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár