Við höfum val um framtíðina

Guð­mundur Ragn­ars­son skrifar um ástæður þess að kjós­endur ættu að kjósa Viðreisn.

Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú að kjós­endur leggi mat á stöðu sína og fram­tíð­ar­hags­muni fyrir kom­andi alþing­is­kosn­ingar. Það er svo mikið í húfi að við erum skyldug að axla ábyrgð og skoða vel stefnu­skrá stjórn­mála­flokk­anna áður en við greiðum atkvæði okkar í kjör­klef­anum. Í stað þess að gleypa við gömlum end­ur­teknum kosn­inga­lof­orðum eða popúl­ískum töfra­lausnum verðum við að huga að fram­tíð­ar­lausnum sem virka. Sagar kennir okkur að skyndi­lausnir settar fram í aðdrag­anda kosn­inga hafa oft­ast endað hörmu­lega efna­hags­lega.

Við þurfum að spyrja okkur hvort við ætlum að kjósa flokka sem áfram boða stöð­ug­leika með krónu sem er ekk­ert annað en áfram­hald­andi stuðn­ingur við sér­hags­muna­hópana sem eru að eign­ast Ísland í skjóli fákeppni og gjald­mið­ils­ins. Hvort við viljum afhenda kom­andi kyn­slóðum sam­fé­lag hús­bænda og hjúa, því þangað stefnum við með sama áfram­haldi.

Fyrirbyggjum frekari skaða

Við verðum líka að spyrja okkur hvað erum við til­búin að fórna miklu fyrir krón­una. Það er mín skoðun að í því alþjóð­aum­hverfi sem við erum í dag þá sé tími sjálf­stæðs gjald­mið­ils lið­inn og ef við horf­umst ekki í augu við þá stað­reynd mun það valda okkur ómældum skaða. Við þurfum að takast á við ýmis stór verk­efni, eins og að reka sam­fé­lagið, við­halda kaup­mætti launa­fólks og auka fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins og það er ljóst að það verður ekki gert með krón­una sem gjald­miðil. Það er full reynt. Ef við förum ekki að við­ur­kenna það þá blasir ekk­ert við nema stöðnun, ein­angrun og rýrnun lífs­kjara.

Kjósum betri lífskjör

Það er sam­fær­ing mín að fyrir launa­fólk og almenn­ing yrði það mik­ill kjara­bót að tengja krón­una við evru. Það myndi ekki aðeins bæta lífs­kjör allra heldur skapa fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika sem við þráum að fá í fjár­mál okkar. Það er nefni­lega þannig að rekstr­ar­um­hverfi heim­ila og fyr­ir­tækja hald­ast í hendur og þau hafa sömu hags­muni af breyt­ing­unni. Allir munu græða á henni.

[adspot]Eins eigum við að ljúka aðild­ar­við­ræð­unum við Evr­ópu­sam­bandið og fá að kjósa um þann samn­ing. Ekki gleyma því að það er okkar val að segja já eða nei við honum. Við fáum þá loks­ins að sjá hvað er rétt eða rangt varð­andi það sem hefur verið full­yrt í umræð­unni um aðild að sam­band­inu.

Sköpum nýja framtíð

Það er löngu orðið tíma­bært að við förum að hugsa til fram­tíðar og finna leiðir sem geta aukið sam­keppn­is­hæfni og fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins og um leið aukið kaup­mátt launa með lægri vöxtum, lækkun mat­væla, losað okkur við fákeppn­ina auk margra ann­arra þátta sem hafa áhrif á lífs­kjör okkar.

Þá verður miklu létt­ara fyrir okkur að vinna okkur út úr vanda­mál­unum sam­fé­lags­ins, ekki vantar verk­efnin sem þarf að leysa en til þess þarf aukið fjár­magn í aðþrengdan rík­is­sjóð og fjár­vana sveit­ar­fé­lög.

Viljum við ekki nýja fram­tíð­ar­sýn þar sem við sem sam­fé­lag stöndum jafn­fætis eða jafn­vel framar öðrum þjóðum með sam­keppn­is­hæft fjöl­breytt atvinnu­líf, betri lífs­kjör, gott heil­brigð­is­kerfi fyrir alla og til fyr­ir­myndar í umhverf­is­málum?

Við hjá Viðreisn erum með skýra stefnu inn í fram­tíð­ina og um leið lausnir sem virka og munu auka hag­sæld allra.

Tökum skrefið inn í nýja fram­tíð og kjósum Viðreisn.

Höfundur skipar fjórða sæti Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár