Þrældómur

Það er fátt fal­legra og girni­legra en nýtínd jarð­ar­ber. Á sumrin fyll­ast úti­mark­aðir og hillur versl­ana af þessum skærrauðu og glans­andi berjum. Það er hins­vegar eng­inn glans yfir vinnu­að­stæðum margra þeirra sem vinna við tínsl­una.

Rauða gullið eru jarðarberin stundum kölluð á Spáni þar sem framleiðslan er mjög umfangsmikil.
Rauða gullið eru jarð­ar­berin stundum kölluð á Spáni þar sem fram­leiðslan er mjög umfangs­mikil. Mynd: Pexels

Danir eru mikil „jarð­ar­berja­þjóð". Stundum er í gríni sagt að þeir elski jarð­ar­berin vegna þess að lit­ur­inn sé eins og höf­uð­litur danska fán­ans. Sjálfir rækta Danir tals­vert af jarð­ar­berjum en þau eru ein­ungis í boði hluta árs­ins. Neysla Dana á jarð­ar­berjum hefur marg­fald­ast á nokkrum árum. Árlega eru því flutt inn hund­ruð tonna af jarð­ar­berjum, einkum frá Spáni. Spánn er lang stærsti fram­leið­andi jarð­ar­berja í Evrópu, ein­ungis tvö lönd í heim­inum eru stærri á þessu sviði, Banda­ríkin og Tyrkland. Spán­verja fram­leiða um 300 þús­und tonn af jarð­ar­berjum. Stærstur hluti fram­leiðsl­unnar fer fram í Huelva hér­aði í Andalúsíu. Til að sinna þess­ari fram­leiðslu þarf margt fólk en um það bil 45 þús­und manns vinna að jafn­aði við fram­leiðsl­una, yfir sum­ar­mán­uð­ina. Sjálf tínslan er mann­frek­ust því þar er ekki hægt að koma við vélum.

Konur frá Rúmeníu og Marokkó

Lang stærstur hluti þeirra sem sinna berja­tínsl­unni eru konur, margar þeirra frá Rúmeníu og Marokkó. Í þessum tveim löndum er mikið atvinnu­leysi, ekki síst meðal kvenna. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda þeirra erlendu kvenna sem vinna við jarð­ar­berja­fram­leiðsl­una á Spáni. Í heima­lönd­unum er litla vinnu að fá og kaupið lágt og þess vegna freist­andi að leita út fyrir land­stein­ana. Fyrir all­mörgum árum gerðu spænsk og marokkósk stjórn­völd með sér sam­komu­lag. Það gekk í stuttu máli út að konur frá Marokkó fengju tíma­bundið atvinnu­leyfi á Spáni, en ekki lang­tíma­dval­ar­leyfi. Í þessu sam­komu­lagi var gert ráð fyrir að fylgt yrði spænskri vinnu­lög­gjöf.

[adspot]

Um 20 þús­und marokkóskar konur eru núna við störf á spænsku jarð­ar­berja­ökrunum. Í sam­komu­lag­inu er enn­fremur tekið fram að kon­urnar sem ráðnar verði í tínsl­una á Spáni skuli eiga börn yngri en 14 ára. Með þessu vilja spænsk yfir­völd tryggja að kon­urnar snúi heim, eftir að tínslu­tíma­bil­inu lýkur en íleng­ist ekki á Spáni.

Orðrómur um slæman aðbúnað

Á und­an­förnum árum hafa af og til birst, í dönskum fjöl­miðlum, fréttir af slæmum aðbún­aði berja­tínslu­kvenna á Spáni. Launin væru lág, hús­næði lélegt, hrein­læt­is­að­staða ófull­nægj­andi og vinnu­tím­inn langur ásamt óhóf­legum kröfum um afköst.

Danska rann­sókn­ar­stofn­unin Danwatch sendi fyrir skömmu blaða­mann til að kanna aðstæður hjá nokkrum stórum jarð­ar­berja­fram­leið­endum Í Huelva hér­aði á Spáni. Hann dvaldi á svæð­inu í tíu daga og tók, með mik­illi leynd, við­töl við margar konur sem allar vinna við berja­tínslu. Blaða­mann­inum tókst líka að taka myndir í húsum sem kon­urnar búa í. Orðróm­ur­inn um slæman aðbúnað reynd­ist á rökum reistur og blaða­mað­ur­inn sagði frá­sagnir kvenn­anna í eitt og allt lýsa ömur­legum og algjör­lega óboð­legum aðstæðum. „Ef ein­hver hefði lýst þessu fyrir mér hefði ég ekki trúað því."

Sjö til tíu tíma vinnudagur og búið í hreysum

Samkvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingum er gert ráð fyrir að vinnu­dag­ur­inn sé sjö klukku­stundir, þar af ólaun­aður hálf­tími í mat. Vinnu­dag­ur­inn er hins vegar oft lengri, fer þó sjaldan yfir tíu tíma. Á einum vinnu­stað, sem blaða­maður Danwatch heim­sótti, sögðu kon­urnar að þær mættu ekki fara á sal­erni nema í mat­ar­tím­anum. Ef við þurfum að létta á okkur og til okkar sést er okkur refsað, með því fá ekki að vinna í tvo til þrjá daga, og fáum þarafleið­andi ekki laun. Á einum vinnu­stað var ekk­ert renn­andi vatn í sal­ernum en vinnu­veit­and­inn neit­aði kon­unum um hand­spritt, það gæti borist í berin.

Víðast hvar eru búgarð­arnir á svæðum þar sem langt er í næsta þorp eða bæ og litlar eða engar almenn­ings­sam­göngur. Ein kona sagði blaða­mann­inum frá því að hún hefði veikst og þurfti nauð­syn­lega að kom­ast til læknis. Eig­and­inn krafði kon­una um greiðslu sem nam hálfum dag­launum fyrir akst­ur­inn.Laun berja­tínslu­kvenn­anna nema um 40 evrum á dag (tæpum 6 þús­und íslenskum) og þær þurfa sjálfar að borga mat­inn og húsa­leigu fyrir kofa sem þær búa í, fimm eða sex saman.

Blaða­maður Danwatch sagð­ist, í við­tali við dag­blaðið Politi­ken, hafa séð ýmis­legt um dag­ana en sér hefði brugðið þegar hann sá kofa­hreysin sem kon­unum var gert að búa í.

[adspot]

Misnotkun og hótanir

Konurnar sem blaða­maður Danwatch ræddi við höfðu miður fal­legar sögur að segja af mörgum yfir­mönn­unum (allt karlar) á búgörð­unum. Þær sögðu að yfir­menn­irnir veldu úr þær konur sem þeim lit­ist vel á og krefðu þær um kyn­líf. Ef kon­urnar neit­uðu var þeim hótað öllu illu, jafn­vel brott­rekstri. Blaða­mað­ur­inn hitti Angels Escrivá pró­fessor við háskól­ann í Huelva, sem stað­festi frá­sagnir kvenn­anna. Hún sagði líka athygl­is­vert að eig­endur búgarð­anna vildu ekki ráða karl­menn. Þegar blaða­maður spurði eig­anda eins búgarð­anna af hverju engir karl­menn væru við tínsl­una var svarið að kon­urnar væru miklu flinkari og hand­nett­ari, eins og það var orðað. Þar að auki væru karlar frekar með leið­indi, vildu gjarna fara að stofna stétt­ar­fé­lög og krefj­ast rétt­inda. Angels Escrivá pró­fessor gaf ekki mikið fyrir þær skýr­ingar að kon­urnar væru hand­nett­ari og flinkari við tínsl­una. Fullyrti að ástæð­urnar væru þær sem kon­urnar hefðu til­greint.

Spænsku jarðarberin í Danmörku

Stóru versl­ana­keðj­urnar í Danmörku hafa öll keypt jarð­ar­ber frá fram­leið­endum í Huelva hér­aði. Starfs­fólk Danwatch rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar lagði skýrslu sem unnin var eftir ferð blaða­manns stof­un­ar­innar fyrir for­svars­menn þess­ara fyr­ir­tækja. Nokkur þeirra hafa hætt, að minnsta kosti tíma­bundið, við­skiptum við jarð­ar­berja­fram­leið­endur í Huelva hér­aði. Í við­tölum við starfs­fólk Danwatch sögðu full­trúar dönsku versl­an­anna að sífellt meiri athygli beind­ist nú að upp­runa þess varn­ings sem seldur væri í versl­unum, og hvort þeir sem ynnu við fram­leiðslu nytu umsam­inna og lög­bund­inna rétt­inda. En sögðu jafn­framt að í þessum efnum væri mikið verk óunnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár