Persónuvernd telur víðtæka birtingu hluthafalista fara gegn lögum

Vegna nýlegra laga­breyt­inga hefur verið hægt að nálg­ast heild­ar­hlut­haf­alista skráðra félaga í Kaup­höll­inni í sam­stæðu­reikn­ingum á vef Skatts­ins. Per­sónu­vernd telur þessa víð­tæku birt­ingu fara gegn lögum.

Upplýsingar um alla hluthafa og hversu mikið þeir eiga í skráðum félögum hafa legið fyrir á opinberum vettvangi undanfarið. Þetta telur Persónuvernd stríða gegn lögum.
Upp­lýs­ingar um alla hlut­hafa og hversu mikið þeir eiga í skráðum félögum hafa legið fyrir á opin­berum vett­vangi und­an­farið. Þetta telur Per­sónu­vernd stríða gegn lögum. Mynd: Nasdaq Iceland

Per­sónu­vernd telur að víð­tæk birt­ing heild­ar­hlut­haf­alista margra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, sem nú má nálg­ast í sam­stæðu­reikn­ingum félaga á vef Skatts­ins, sé ekki heimil lögum sam­kvæmt. Helga Þór­is­dóttir for­stjóri Per­sónu­verndar segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að málið hafi verið tekið fyrir á stjórn­ar­fundi hjá stofn­un­inni í síð­ustu viku og álit þessa efnis hafi verið sent til Rík­is­skatt­stjóra á mið­viku­dag­inn.

Álitið hefur nú verið birt á vef Per­sónu­verndar, en með ákvörðun stofn­un­ar­innar er Skatt­inum gef­inn mán­uður til þess að hætta birt­ingu þess­ara upp­lýs­inga.

Hægt að sjá eign allra hluthafa í skráðum félögum

Heild­ar­hlut­haf­alistar stórra félaga, þar á meðal allra fyr­ir­tækja sem skráð eru í Kaup­höll­ina, hafa að und­an­förnu verið aðgengi­legir með sam­stæðu­reikn­ingum sem nálg­ast má end­ur­gjalds­laust á vef Skatts­ins.

[adspot]

Laga­breyt­ingar sem gerðar voru á Alþingi á síð­asta ári leiddu til þess að þessi víð­tæka birt­ing Skatts­ins hófst, en þar var um að ræða stjórn­ar­frum­varp ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um árs­reikn­inga og lögum um end­ur­skoð­endur og end­ur­skoðun, sem átti að stuðla að auknu gagn­sæi stærri kerf­is­lega mik­il­vægra félaga.

Eftir að þessi lög tóku gildi fóru að birt­ast heild­ar­hlut­haf­alistar opin­ber­lega með sam­stæðu­reikn­ingum allra skráðra félaga, en þess er skemmst að minn­ast að fyrir nokkrum árum fetti Per­sónu­vernd fingur út í það að Kaup­höllin sjálf birti reglu­lega upp­færðar upp­lýs­ingar um 20 stærstu hlut­hafa skráðra félaga á vef sínum.[links]

Nú er hægt að sjá upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni þús­unda ein­stak­linga með því að sækja sam­stæðu­reikn­inga skráðra félaga á vef Rík­is­skatt­stjóra. Þannig má sjá í sam­stæðu­reikn­ingi Icelandair Group, til dæmis, nöfn og kenni­tölur allra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem áttu hlut í félag­inu síð­ustu ára­mót og hversu marga hluti hver og einn átti þá. Hið sama gildir um öll önnur skráð félög.

For­stjóri Per­sónu­verndar sagði við Kjarnann í morgun að álit stofn­un­ar­innar myndi birt­ist í hádeg­inu og að meg­in­inn­tak þess væri að „lög heim­ili ekki þessa víð­tæku birt­ingu.“ Nú þegar álitið er birt að ljóst er að svo sé.

Per­sónu­vernd segir að orða­lag í lögum um árs­reikn­inga feli að óbreyttu ekki í sér nægi­lega skýra heim­ild til birt­ingar lista yfir alla hlut­hafa félaga sem undir lögin falla með árs­reikn­ingum þeirra á opin­berum vef rík­is­skatt­stjóra.

Þá segir stofn­unin að lög­gjaf­anum hefði „verið í lófa lagið að orða það með þeim hætti að engum vafa yrði und­ir­orpið að slík upp­lýs­inga­miðlun rúm­að­ist innan orða­lags ákvæð­is­ins,“ en að óbreyttu sam­rým­ist birt­ing hluta­fjár­eignar ein­stak­linga ekki lögum um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin var upp­færð eftir að álit Per­sónu­verndar um málið var birt opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár