Svona nærðu í ársreikninga frítt

Samkvæmt nýjum lögum sem tóku gildi í árs­byrjun má nú nálg­ast árs­reikn­inga íslenskra fyr­ir­tækja án end­ur­gjalds á vef rík­is­skatts­stjóra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Nú er hægt að nálg­ast árs­reikn­inga íslenskra fyr­ir­tækja án end­ur­gjalds, eftir að ný lög þess, sem voru sam­þykkt í fyrra, tóku gildi í byrjun árs.

Hægt er að nálg­ast alla árs­reikn­inga í fyr­ir­tækja­skrá rík­is­skatt­stjóra með því að smella á körfu við hlið­ina á árs­reikn­ingi val­ins félags líkt og sést á mynd hér að neðan.

Þegar árs­reikn­ingur er val­inn þarf svo að smella á gráan kassa sem mynd­ast efst á síð­unni og stendur „Karfa“ á, eins og stendur á mynd­inni hér til hliðar.

Frum­varpið til lag­anna var flutt af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, en Björn Leví Gíslason þing­maður Pírata hefur end­ur­tekið flutt sam­bæri­leg frum­vörp á síð­ustu þremur árum þar sem afnám gjald­d­töku á upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingum var lagt til.

Dó í nefnd og mótmælt af Creditinfo

Björn Leví flutti frum­varp um afnám gjald­töku fyrir aðgang að árs­reikn­ingum í sept­em­ber árið 2017 og svo aftur í des­em­ber sama ár. Það frum­varp fór í fyrstu umræðu í efna­hags- og við­skipta­nefnd sem kall­aði eftir umsögnum um málið, en rataði svo aldrei þaðan.

Creditinfo, sem er stærsta fyr­ir­tækið á þeim mark­aði sem selur upp­lýs­ingar úr árs­reikn­inga­skrá, mót­mælti því frum­varpi í umsögn sinni til nefnd­ar­innar snemma árs 2017. Þar sagði fyr­ir­tækið meðal ann­ars að upp­lýs­ing­arnar væru fyrst og fremst nýttar af atvinnu­líf­inu og taldi það eðli­legt að fólk og fyr­ir­tæki greiði fyrir þær í stað þess að „almannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstrur skránna.“

Ríkisskattsstjóri líka á móti

Embætti rík­is­skatt­stjóra skrif­aði einnig umsögn um frum­varpið og sagði það kippa fótum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeypis.

[adspot]

Rík­is­skatt­stjóri sagði að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­gerð um afmörkun þeirra upp­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­kvæmd hins raf­ræna aðgeng­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­lýs­inga.“

Þórdís Kolbrún með nýtt frumvarp

Björn Leví end­ur­flutti sama frum­varpið þrisvar sinnum á árunum 2017-2019, en það komst aldrei úr nefnd. Í apríl í fyrra, rúmu hálfu ári eftir þriðja end­ur­flutn­ing Björns Levís kom Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýsköp­unar- og ferða­mála­ráð­herra, svo fram með eigið frum­varp sem sneri að árs­reikn­ingum og end­ur­skoðun á þeim, en í því var lagt til að aðgengi að árs­reikn­ingum yrði gjald­frjálst. Frum­varpið var sam­þykkt í fyrra­sumar, en lögin tóku gildi við upp­haf þessa árs.

Aðgengilegt í nágrannalöndum

Líkt og Kjarninn benti fyrst á fyrir þremur árum síðan eru upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki aðgengi­legar almenn­ingi í nágranna­löndum Íslands. Þar eru starfs­­ræktar sér­­stakar vef­­síður þar sem hægt er að nálg­­ast grunn­­upp­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki á borð við eig­end­­ur, stjórn­­endur og lyk­il­­tölur úr rekstri fyr­ir­tækj­anna.

Vef­­síð­an Alla­­bolag í Sví­­þjóð þjónar til að mynda þessum til­­­gangi, en þar er að finna helstu upp­­lýs­ingar um fyr­ir­tæki þar í landi. Hægt er að nálg­­ast grunn­­upp­­lýs­ingar án kosn­­aðar en ef þörf er á þá er hægt að greiða fyrir frek­­ari upp­­lýs­ing­­ar. Sam­­kvæmt síð­­unni er hún upp­­­færð dag­­lega með upp­­lýs­ingum frá yfir­­völdum þar í landi.

Sam­­bæri­­legar síður eru í Dan­­mörku og Nor­egi, þar sem hægt er að fletta upp grunn­­upp­­lýs­ingum um dönsk og norsk fyr­ir­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár