Upplýsingar um fyrirtæki aðgengilegar í nágrannalöndunum

Lagt hefur verið fram frum­varp á Alþingi þess efnis að upp­lýs­ingar árs­reikn­inga­skrár og hlut­hafa­skrár verði aðgengi­legri fyrir almenn­ing. Í Svíþjóð, Danmörku og Noregi eru þessar upp­lýs­ingar aðgengi­legar á net­inu.

Í nágranna­lönd­unum eru starfs­ræktar sér­stakar vef­síður þar sem hægt er að nálg­ast grunn­upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki á borð við eig­endur, stjórn­endur og lyk­il­tölur úr rekstri fyr­ir­tækj­anna.

Vefsíðan Alla­bogal í Svíþjóð þjónar til að mynda þessum til­gangi, en þar er að finna helstu upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki þar í landi. Hægt er að nálg­ast grunn­upp­lýs­ingar án kosn­aðar en ef þörf er á þá er hægt að greiða fyrir frek­ari upp­lýs­ingar. Samkvæmt síð­unni er hún upp­færð dag­lega með upp­lýs­ingum frá yfir­völdum þar í landi.

Sam­bæri­legar síður eru í Danmörku og Noregi, þar sem hægt er að fletta upp grunn­upp­lýs­ingum um dönsk og norsk fyr­ir­tæki.

Á Íslandi er stærsta fyr­ir­tækið á þessum mark­aði Creditinfo. Eins og Kjarninn fjall­aði um í frétta­skýr­ingu þann 8. mars síð­ast­lið­inn þá telur Rík­is­skatt­stjóri að laga­breyt­ing sem myndi veitir almenn­ingi gjald­frjálsan aðgang að gögnum fyr­ir­tækja­skrár kippi fót­unum undan rekstri hennar. Creditinfo finnst óþarfi að hætta rukkun fyrir gögnin.

Með frum­varp­inu er lagt til að upp­lýs­ingar árs­reikn­inga­skrár og hlut­hafa­skrár verði aðgengi­legri fyrir almenn­ing. Lagt er til að ekki skuli taka gjald fyrir raf­ræna upp­flett­ingu í skrám þessum og að sömu upp­lýs­ingar skuli vera aðgengi­legar þar og ef greitt væri fyrir ein­tak af gögnum úr skránni. Þessar upp­lýs­ingar geta ekki talist aðgengi­legar almenn­ingi miðað við núver­andi lög­gjöf þar sem greiða þarf fyrir þær.

[links]Tekjur Rík­is­skatt­stjóra af hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá voru 133,7 millj­ónir króna í fyrra. Verði frum­varp Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um að upp­lýs­ingar úr hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá verði aðgengi­legar almenn­ingi án þess að gjald verði tekið fyrir muni því tekjur stofn­un­ar­innar skerð­ast „veru­lega“. Þetta kemur fram í umsögn sem emb­ætti rík­is­skatt­stjóra hefur skilað inn vegna frum­varps­ins.

Þar segir enn fremur að gera megi ráð fyrir því að margir þeirra aðila sem fram til þessa hafi greitt fyrir upp­lýs­ingar úr skránum mun sækja þær upp­lýs­ingar gjald­frjálst verði frum­varpið að lög­um. „Sam­kvæmt fram­an­greindu er því ljóst að fót­unum er veru­lega kippt undan fjár­mögnun á rekstri fyr­ir­tækja­skrár verði inn­heimta þjón­ustu­gjalda að öllu leyti felld nið­ur. Mun rík­is­skatt­stjóri því verða af miklum rekstr­ar­tekjum sem bæta þarf emb­ætt­inu með aukn­ingu á beinu rekstr­ar­fram­lagi. Þeirri breyt­ingu á rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækja­skrár rík­is­skatt­stjóra, sem fyr­ir­huguð er, má líkja við það að ákveð­inn yrði ókeypis aðgangur að söfnum lands­ins.“

Rík­is­skatt­stjóri segir að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­gerð um afmörkun þeirra upp­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­kvæmd hins raf­ræna aðgeng­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­lýs­inga.“

Í umsögn rík­is­skatt­stjóra kemur fram að 106 millj­ónir króna af þeim 133,7 millj­ónum króna sem stofn­unin hafði í tekjur af því að selja upp­lýs­ingar úr hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrá hafi komið frá miðl­ur­um, þ.e. fyr­ir­tækjum sem kaupa upp­lýs­ing­arnar og end­ur­selja þær til við­skipta­vina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár