Gjaldfrjáls aðgangur að gögnum eins og „ókeypis aðgangur að söfnum landsins“

Rík­is­skatt­stjóri telur að laga­breyt­ing sem myndi veitir almenn­ingi gjald­frjálsan aðgang að gögnum fyr­ir­tækja­skrár kippi fót­unum undan rekstri hennar. Creditinfo finnst óþarfi að hætta rukkun fyrir gögnin.

Tekjur Rík­is­skatt­stjóra af hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá voru 133,7 millj­ónir króna í fyrra. Verði frum­varp Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um að upp­lýs­ingar úr hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá verði aðgengi­legar almenn­ingi án þess að gjald verði tekið fyrir muni því tekjur stofn­un­ar­innar skerð­ast „veru­lega“. Þetta kemur fram í umsögn sem emb­ætti rík­is­skatt­stjóra hefur skilað inn vegna frum­varps­ins.

Þar segir enn fremur að gera megi ráð fyrir því að margir þeirra aðila sem fram til þessa hafi greitt fyrir upp­lýs­ingar úr skránum mun sækja þær upp­lýs­ingar gjald­frjálst verði frum­varpið að lögum. „Samkvæmt fram­an­greindu er því ljóst að fót­unum er veru­lega kippt undan fjár­mögnun á rekstri fyr­ir­tækja­skrár verði inn­heimta þjón­ustu­gjalda að öllu leyti felld niður. Mun rík­is­skatt­stjóri því verða af miklum rekstr­ar­tekjum sem bæta þarf emb­ætt­inu með aukn­ingu á beinu rekstr­ar­fram­lagi. Þeirri breyt­ingu á rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækja­skrár rík­is­skatt­stjóra, sem fyr­ir­huguð er, má líkja við það að ákveð­inn yrði ókeypis aðgangur að söfnum lands­ins.“

Rík­is­skatt­stjóri segir að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­gerð um afmörkun þeirra upp­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­kvæmd hins raf­ræna aðgengis. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­lýs­inga.“

Creditinfo telur gjaldtöku ekki takmarka aðgengi almennings

Í umsögn rík­is­skatt­stjóra kemur fram að 106 millj­ónir króna af þeim 133,7 millj­ónum króna sem stofn­unin hafði í tekjur af því að selja upp­lýs­ingar úr hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrá hafi komið frá miðl­urum. Þ.e. fyr­ir­tækjum sem kaupa upp­lýs­ing­arnar og end­ur­selja þær til við­skipta­vina.

Stærsta fyr­ir­tækið á þeim mark­aði er Creditinfo. Það skil­aði einnig inn umsögn um frum­varpið. Þar segir m.a. að upp­lýs­ing­arnar séu fyrst og fremst nýttar af atvinnu­líf­inu. „Kaup­endur upp­lýs­ing­anna eru að lang­mestu leyti fjár­mála­fyr­ir­tæki, lög­menn, end­ur­skoð­endur og aðrir þátt­tak­endur í við­skipta­líf­inu. Fram­an­greindir aðilar hafa hags­muni af því að afla upp­lýs­ing­anna í tengslum við ákvarð­ana­tökur og ekki óeðli­legt að þeir sem nota upp­lýs­ing­arnar greiði fyrir slíkar upp­lýs­ingar með gjöldum sem lögð eru á skv. heim­ild í lögum, í stað þess að almannafé verði nýtt til að standa straum af kostn­aði við rekstur skránna.“

Ekki verði séð að það tak­marki aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum úr fram­an­greindum skrám að greitt sé sann­gjarnt gjald fyrir öflun þeirra að mati Creditinfo, enda sé vænt­an­lega í flestum til­fellum um að ræða öflun á ein­staka upp­lýs­ingum fremur en að þörf sé á öflun viða­mik­illa skráa. „Það ætti þó helst við í til­felli fræði­manna en skoða mætti afhend­ingu gagna til slíkra aðila sér­stak­lega, sem þá til­greindu í hvaða til­gangi þörf væri á viða­miklum skrám, hvernig þær yrðu nýttar og hvernig með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga yrði tryggð. Magn­af­sláttur í gjald­skrá væri hugs­an­legur í slíkum til­fellum.“

Ein önnur umsögn hefur borist um málið utan þeirra sem rík­is­skatt­stjóri og Creditinfo skil­uðu inn. Hún kom frá Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ). Þar segir að sam­bandið telji „mik­il­vægt að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki hafi hindr­un­ar­lausan aðgang að þeim upp­lýs­ingum sem þessar skrár hafa að geyma og tekur undir þau sjón­ar­mið sem að baki frum­varp­inu liggja.“

Lagabreyting skilaði ekki tilætlunum árangri

Í fyrra var sam­þykkt frum­varp sem sem varð­aði auk­inn aðgang að fyr­ir­tækja­skrá. Í því fólst að almenn­ingur fékk aðganga að fyr­ir­tækja­skrá án gjald­töku. Sú laga­breyt­ing fól þó ekki í sér að aðgengi að gögnum þeirrar skrár, sem er að finna í hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrá, yrði án gjald­töku. Því skipti laga­breyt­ingin litlu máli fyrir þá sem þurfa að sækja slíkar upp­lýs­ingar starfs síns vegna.

Auk þeirra hópa sem Creditinfo nefndi í sinni umsögn eru þeir sem sækja slíkar upp­lýs­ingar meðal ann­ars fjöl­miðlar, en í upp­lýs­ingum hluta­fé­laga- og árs­reikn­inga­skrár er að finna allar helstu upp­lýs­ingar um rekstur og eign­ar­hald fyr­ir­tækja lands­ins auk upp­lýs­inga um allar breyt­ingar sem verða t.d. í fjár­mögnun þeirra og stjórn­ar­skipan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár