Bensínstöðvar, baðlón og skyndibitastaðir vinsælust hjá notendum nýrrar ferðagjafar

Yfir 10 þús­und manns hafa nýtt nýja ferða­gjöf stjórn­valda og um 50 millj­ónir króna verið greiddar út. Kunn­ug­leg nöfn raða sér í efstu sæti þeirra fyr­ir­tækja sem tekið hafa við mestu en bað­lónið Sky Lagoon kemur nýtt inn á lista og tyllir sér í annað sæti.

N1 er vinsælasti viðkomustaður þeirra sem hafa notað nýju ferðagjöf stjórnvalda.
N1 er vin­sæl­asti við­komu­staður þeirra sem hafa notað nýju ferða­gjöf stjórn­valda. Mynd: Anton Brink

Rúmlega helm­ingur þeirrar fjár­hæðar sem greidd hefur verið út í formi nýrrar ferða­gjafar stjórn­valda hefur runnið til tíu fyr­ir­tækja. Frá upp­hafi mán­aðar, þegar nýja ferða­gjöfin tók gildi, hafa um 50 millj­ónir króna verið greiddar út og þar af hafa 25,6 millj­ónir farið til tíu fyr­ir­tækja.

Ferða­gjöfin er hluti af aðgerða­pakka stjórn­valda sem ætlað er að byggja undir íslenska ferða­þjón­ustu. Líkt og í fyrra fá allir ein­stak­lingar 18 ára og eldri fimm þús­und krónur í staf­rænu formi sem hægt er að nýta í sumar til að kaupa vörur og þjón­ustu hjá fyr­ir­tækjum sem eru gjald­geng. Gild­is­tími ferða­gjaf­ar­innar í sumar er til og með 31. ágúst.

Í efstu sæt­unum yfir þau fyr­ir­tæki sem tekið hafa við flestum ferða­gjöfum eru fyr­ir­tæki sem kunn­ug­leg eru frá topp­lista síð­ustu ferða­gjafar. Samkvæmt tölum í mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar sem upp­færðar voru þann 15. júní situr N1 í fyrsta sæti yfir þau fyr­ir­tæki sem tekið hafa við mestu, alls tæp­lega 5,7 millj­ónum króna. Í öðru sæti situr Sky Lagoon í Kópavogi, fyr­ir­tæki sem ekki náði hátt á lista í síð­ustu ferða­gjöf enda nýtt af nál­inni. Þangað hafa runnið rúm­lega 4,1 milljón króna. Í næstu sætum sitja fyr­ir­tæki sem öll voru ofar­lega á blaði í síð­ustu ferða­gjöf, Olís, KFC og Domino’s.

Helmingur til höfuðborgarsvæðisins

Þegar nýt­ing ferða­gjaf­ar­innar er skoðuð eftir flokkum sést að stór hluti ferða­gjafa­hafa hefur ákveðið að nýta gjöf­ina í mat og drykk, alls hafa rúm­lega 20 millj­ónir runnið til veit­inga­staða. Næst á eftir koma sam­göngur með 11,6 millj­ónir og svo afþrey­ing með 7,7 millj­ónir.

Hátt í helm­ingur ferða­gjafar sem nú þegar hefur verið nýttur kom í hlut fyr­ir­tækja sem stað­sett eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, rúmar 22,7 millj­ónir króna. Fyr­ir­tæki sem falla í flokk svo­kall­aðra lands­dekk­andi fyr­ir­tækja hafa fengið tæpar 15,8 millj­ónir. Land­svæðin sem næst koma eru Suð­ur­land með 3,7 millj­ónir og Norð­ur­land eystra með 3,4 millj­ónir.

Frá upp­hafi mán­aðar hafa tæp­lega ell­efu þús­und nýtt sér nýju ferða­gjöf­ina og þar af hafa hátt í átta þús­und full­nýtt hana.

Milljarður í ferðagjafir í fyrra

[links] Samkvæmt mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar var rétt rúm­lega millj­arður greiddur út í formi ferða­gjafar í síð­ustu atrennu. Ferða­gjöf 2020 átti að gilda frá júní í fyrra og út árið 2020 en var fram­lengd til loka maí á þessu ári. Af þeim 280 þús­undum sem gátu nýtt sér síð­ustu ferða­gjöf sóttu 240 þús­und gjöf­ina en heild­ar­fjöldi not­aðra gjafa nam 207 þús­undum.

Í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna nýrrar ferða­gjafar kemur fram að 812 fyr­ir­tæki muni taka við nýju ferða­gjöf­inni. Þar segir að lands­menn hafi ekki látið sitt eftir liggja á síð­asta ári og þeir hvattir til að end­ur­taka leik­inn. „Með end­ur­nýjun Ferða­gjafar 2021 eru ein­stak­lingar hvattir til að ferð­ast inn­an­lands í sumar, rétt eins og síð­ast­liðið sumar, eftir því sem aðstæður leyfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár