Þriðjungur fyrstu ferðagjafarinnar fór til tíu fyrirtækja

Nú stendur til að end­ur­nýja ferða­gjöf stjórn­valda til að örva eft­ir­spurn inn­an­lands. Rúmur helm­ingur þeirra sem áttu rétt fyrstu ferða­gjöf­inni hafa nýtt hana. Á meðal þeirra sem fengu mest í sinn hlut voru elds­neyt­is­salar og skyndi­bita­keðjur.

Ein af efna­hags­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar, sem opin­beruð var þegar fyrsti aðgerð­ar­pakki hennar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var kynntur 21. mars 2020, var að senda á öllum ein­stak­lingum 18 ára og eldri með íslenska kenni­tölu star­fræna fimm þús­und króna gjöf útgefna af stjórn­völd­um. Síðar fékk þessi aðgerð, sem átti að hafa þau áhrif að efla eft­ir­spurn eftir kaupum á inn­lendri vöru og þjón­ustu í fyrra­sumar, nafnið „Ferða­gjöfin“.

Alls átti kostn­að­ur­inn við þessa gjöf til allra full­orð­inna lands­manna að vera 1,5 millj­arðar króna. Ef það ætti að nást hefðu 300 þús­und manns þurft að sækja ferða­gjöf­ina, en miðað við mann­fjölda­tölur Hagstofu Íslands voru íbúar Íslands 18 ára og eldri um 280 þús­und í upp­hafi síð­asta ársárs og ekki víst að þeir séu allir með íslenska kenni­tölu, en slíka þarf til að sækja ferða­gjöf­ina. Því er ljóst að kostn­aður við ferða­gjöf­ina gat í raun aldrei orðið meiri en 1,4 millj­arðar króna hið mesta.

Búið var til sér­stakt app sem hægt að var nýta gjöf­ina í gegnum og safna saman ann­arra manna gjöfum ef þeir ætl­uðu sér ekki að nýta sína, upp að 15 ávís­ana hámarki. Heild­ar­kostn­aður við gerð apps­ins átti að vera að hámarki 15 millj­ónir króna.

Hvert og eitt fyr­ir­tæki átti að hámarki að geta tekið við 100 millj­ónum króna í formi ferða­gjafa og fyr­ir­tæki sem metið var í rekstr­ar­erf­ið­leikum 31. des­em­ber 2019 átti að hámarki að geta tekið við sam­an­lagt 25 millj­ónum króna.

Ferða­gjöfin átti að gilda út árið 2020.

Nýtingin á ferða­gjöf­inni var ekki í takti við áætl­anir stjórn­valda og gild­is­tími hennar var því fram­lengdur. Nú geta þeir sem hafa ekki ráð­stafað þessum fimm þús­und krónum sem þeim var úthlutað úr rík­is­sjóði gert það út maí­mánuð 2021.

[adspot]Þann 10. apríl síð­ast­lið­inn höfðu 199 þús­und manns sótt sér ferða­gjöf­ina en ein­ungis 139 þús­und þeirra nýtt sér hana. Því hefur tæpur helm­ingur þeirra sem áttu rétt á ferða­gjöf­inni notað hana.

Kostn­að­ur­inn hingað til nemur 813 millj­ónum króna, eða rétt tæpum helm­ingi þess sem kynnt var upp­haf­lega. Sú upp­hæð hefur farið til alls 812 fyr­ir­tækja. Búið var að gera ráð fyrir 1,5 millj­arða króna útgjöldum í fjár­auka­lögum og því eru enn tæp­lega 700 millj­ónir króna til ráð­stöf­unar.

Peningar ætlaðir síðustu ferðagjöf notaðir í þá nýju

Í síð­ustu viku til­kynntu stjórn­völd að þau ætl­uðu að end­ur­taka leik­inn. Ný ferða­gjöf upp á fimm þús­und krónur stæði full­orðnum lands­mönnum til boða í sumar, þegar sú fyrri rynni út. Í frum­varpi sem lagt hefur verið fram til að lög­festa úrræðið kemur fram, í grein­ar­gerð, að ástæða þess að svo stór hluti þeirrar upp­hæðar sem lögð var til hliðar í ferða­gjöf­ina stendur enn eftir megi „vafa­laust rekja til þess að á gild­is­tím­anum hafa sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda verið hertar, meðal ann­ars með sam­komu­tak­mörk­unum og lok­unum hjá hluta fyr­ir­tækja sem geta tekið á móti ferða­gjöf. Þá hafa stjórn­völd hvatt ein­stak­linga til að ferð­ast ekki að óþörfu. Af því leiðir að tæki­færi til að nýta ferða­gjöf hafa verið færri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. Það hefur haft í för með sér að áætl­aðir fjár­munir til ferða­gjafar hafa til þessa ekki verið full­nýttir.“

Gild­is­tími end­ur­nýj­aðar ferða­gjaf­ara er fyr­ir­hug­aður frá 1. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021.

Stjórn­völd áætla að 30-50 millj­ónir króna verði nýtt af upp­haf­legu ferða­gjöf­inni á þeim gild­is­tíma sem er eftir af henni, eða út maí­mánuð. Það sem eftir stendur af þeim fjár­munum sem settar voru til hliðar vegna hennar en ekki nýttir, alls 650 millj­ónir króna, muni ásamt 750 millj­ónum króna í við­bót­ar­fjár­magni mynda kostn­að­ar­hlið nýrrar ferða­gjafar sum­arið 2021.

Heild­ar­kostn­aður vegna ferða­gjafar númer tvö er því áætl­aður 1,4 millj­arðar króna. Miðað við nýt­ingu síð­ustu ferða­gjafar er sá kostn­aður veru­lega ofá­ætl­aður.

Stærsti hluti ferða­gjafa sem höfðu verið nýttar fyrir 10. apríl 2021 voru nýttar hjá fyr­ir­tækjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Slík höfðu fengið alls 293 millj­ónir króna til sín vegna úrræð­is­ins eða 37 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Þá fengu fyr­ir­tæki sem starfa á lands­vísu 115 millj­ónir króna í sinn hlut. Því fór rúmur helm­ingur upp­hæð­ar­innar til slíkra fyr­ir­tækja.

Um 119 millj­ónir króna voru nýttar hjá fyr­ir­tækjum á Suð­ur­landi, 83 millj­ónir króna á Norð­ur­landi eystra, 48 millj­ónir króna á Vest­ur­landi, 35 millj­ónir króna á Suð­ur­nesjum, 28 millj­ónir króna á Aust­ur­landi, 15 millj­ónir króna á Norð­ur­landi vestra, 15 millj­ónir króna á Vest­fjörðum, og loks 151 millj­ónir króna hjá fyr­ir­tækjum sem starfa á lands­vísu.

Flugupplifun, eldsneyti og skyndibiti

Á Mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar, sem rekið er af Ferða­mála­stofu, er hægt að sjá hvaða fyr­ir­tæki hafa fengið stærstan hluta hennar til sín.

Þar trónir á toppnum FlyOver Iceland sem býður upp á flugupp­lifun. Fyr­ir­tækið er stað­sett á Granda í Reykja­vík og hefur verið með sér­stakt Ferða­gjaf­artil­boð þar sem vilj­ugum býðst að kaupa eina flugupp­lifun á Íslandi fyrir eina ferða­gjöf. Alls hefur FlyOver Iceland fengið 45 millj­ónir króna í ferða­gjafir.

Elds­neyt­is­salar eru líka fyr­ir­ferða­miklir á topp tíu list­anum yfir þau fyr­ir­tæki sem hafa fengið mest í sinn hlut. Olís, sem til­heyrir Högum, hefur fengið 31 milljón króna og N1, sem til­heyrir Festi, hefur fengið 28 millj­ónir króna. Bæði Hagar og Festi eru skráð félög á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði og á meðal umsvifa­mestu smá­sala á Íslandi. Félögin eru rekin í góðum hagn­aði. Festi skil­aði til að mynda 2,3 millj­arða króna hagn­aði í fyrra og Hagar í 1,7 millj­arða króna hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum síð­asta rekstr­ar­árs síns.

Tvær stórar hót­el­keðjur, Íslands­hótel (29 millj­ónir króna) og Flug­leiða­hótel (24 millj­ónir króna) hafa sam­tals fengið 53 millj­ónir króna. Bláa lónið hefur fengið 25 millj­ónir króna í sinn hlut og Flug­fé­lag Íslands 24 millj­ónir króna. Tveir skyndi­bita­staðir hafa tekið vel til sín af ferða­gjöfum. KFC hefur fengið 22 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og Pizza-Pizza ehf., sem rekur Domino´s á Íslandi, hefur fengið 19 millj­ónir króna. Þá hefur Tix.is, sem selur miða á ýmis­konar afþrey­ingar- og list­við­burði, fengið 16 millj­ónir króna. Samtals hafa þessi tíu fyr­ir­tæki, sem eru 1,2 pró­sent allra fyr­ir­tækja sem hafa fengið ferða­gjöf fengu 32,2 pró­sent af þeim ferða­gjöfum sem greiddar hafa verið út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár