„Tillaga um þjóðareign hinna fáu“

Þing­maður Við­reisnar telur að nýja auð­linda­á­kvæði for­sæt­is­ráð­herra muni engu breyta. Hún segir að til­laga ráð­herr­ans sé í raun til­laga um þjóð­ar­eign hinna fáu.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar segir að til­lögur for­sæt­is­ráð­herra, Katrínar Jak­obs­dóttur, um nýtt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá sé til­laga um þjóð­ar­eign hinna fáu.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

„Mig langar að tala um þjóð­ar­eign hinna fáu. Í þeirri umræðu sem nú á sér stað um ítök stór­út­gerð­ar­innar verða stjórn­mála­menn að vera vak­andi í því meg­in­hlut­verki sínu að verja almanna­hags­muni. Í þessu sam­hengi verður að skoða það auð­linda­á­kvæði sem Katrín Jak­obs­dóttir hefur nú lagt fram, og spyrja: Í þágu hverra er þetta ákvæði?“ spurði hún.

[links]Vísaði hún í grein Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­flokks­for­manns VG, um nýtt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá sem birt­ist á Kjarn­anum 2. júní en þar hvetur Bjarkey þing­menn til að sam­þykkja frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um málið. Sagði Þorbjörg Sigríður í ræðu sinni að svarið við spurn­ingu hennar sjálfrar, varð­andi það í þágu hverra þetta ákæði væri, kæmi fram í grein­inni. Vissu­lega væri mik­il­vægt að Íslend­ingar væru með auð­linda­á­kvæði, eins og segir í grein Bjarkeyjar, en „án þess þó að miða algjör­lega við þær helstu nátt­úru­auð­lindir sem við nýtum í dag“. Traust og tíma­laust plagg yrði þá nið­ur­staðan, sam­kvæmt Bjarkeyju.

[adspot]

Niðurstaðan yrði óbreytt ástand fyrir almenning

„Nið­ur­staðan yrði vissu­lega traust og tíma­laus fyrir stór­út­gerð­ina með auð­linda­á­kvæði sem haggar í engu hags­munum hennar. Nið­ur­staðan yrði því miður um leið óbreytt ástand fyrir almenn­ing,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Benti þing­mað­ur­inn á að í frum­varpi for­sæt­is­ráð­herra væri talað um þjóð­ar­eign en án þess þó að nefna að rétt­ur­inn til að nýta þessa þjóð­ar­eign ætti að vera tíma­bund­inn og að fyrir þann rétt þyrfti að greiða eðli­legt gjald. „Til að gefa þessu orði þjóð­ar­eign raun­veru­lega þýð­ingu þarf að tryggja að nýt­ing á sam­eig­in­legri auð­lind sé gerð með tíma­bundnum samn­ingum og það skiptir auð­vitað líka máli að fram komi að greiða skuli eðli­legt gjald fyrir þessa nýt­ingu. Þannig verjum við hags­muni almenn­ings.

Þetta er það atriði sem öllu máli skiptir í hinu póli­tíska sam­hengi og svar rík­is­stjórn­ar­innar liggur skýrt fyrir. Hér á nefni­lega engu að breyta. Það er af ástæðu sem þessi til­laga er þögul um stærstu póli­tísku álita­efnin. Sterk­ustu skila­boðin hér fel­ast nefni­lega í því sem ekki er sagt, í þögn­inni um þau atriði sem myndu tryggja hags­muni almenn­ings. Herra for­seti. Þetta er til­laga um þjóð­ar­eign hinna fáu,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auðlindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár