Breytt arðgreiðslustefna hjá Landsvirkjun

Lands­virkjun hefur sam­þykkt nýja arð­greiðslu­stefnu, sem ætlað er að hámarka arðs­tekjur rík­is­sjóðs af fjár­munum sem bundnir eru í fyr­ir­tæk­inu og afrakstur af orku­auð­lind­unum. Tíu millj­arða arð­greiðsla þessa árs var reiknuð í sam­ræmi við nýju stefn­una.

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Á stjórn­ar­fundi Lands­virkj­unar í lok apríl var sam­þykkt ný arð­greiðslu­stefna, sem hefur það að mark­miði að hámarka arðs­tekjur rík­is­sjóðs af þeim fjár­munum sem bundnir eru í Lands­virkjun og afrakstur rík­is­ins af orku­auð­lind­unum, en einnig gæta þess að fyr­ir­tækið standi áfram á traustum fjár­hags­legum stoðum og geti við­haldið svip­aðri láns­hæf­is­ein­kunn og sam­bæri­leg fyr­ir­tæki í öðrum löndum.[links]

Tíu millj­arðar króna verða greiddir í arð til rík­is­ins í ár á grund­velli þess­arar nýju stefnu. Það er rúm­lega tvö­falt hærri upp­hæð en á síð­asta ári, þegar arð­greiðslan nam 4,25 millj­örðum króna. Árin þar á undan nam arð­greiðslan 1,5 millj­örðum króna árlega.

Í nýju arð­greiðslu­stefn­unni felst að greiðslan verður jöfn hand­bæru fé frá rekstri að frá­dregnu hlut­falli af fjár­fest­ingum, marg­faldað með útgreiðslu­hlut­falli og verða hlut­föllin háð skuld­setn­ingu félags­ins á hverjum tíma, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í dag.

[adspot]

Þar segir einnig að gert sé ráð fyrir að stjórn félags­ins rök­styðji fyrir eig­anda frá­vik frá reikni­regl­unni ef sér­stakar aðstæður gefa til­efni til þess að arð­greiðslan verði hærri eða lægri. Samkvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins þykir mik­il­vægt fyrir bæði stjórn­völd og fyr­ir­tækið að arð­greiðslu­stefnan byggi á „skýrum og gegn­sæjum við­miðum, verði ein­föld í fram­kvæmd og feli í sér sem mestan fyr­ir­sjá­an­leika um greiðslur.“

For­sendur hafa á und­an­förnum árum skap­ast fyrir auknar arð­greiðslur frá Lands­virkjun til rík­is­sjóðs, vegna sterk­ari eig­in­fjár­stöðu, hóf­legri skulda­stöðu og lít­illi fjár­fest­inga­þörf framundan.

Búið var að greina frá því fyrir nokkru síðan að fyr­ir­tækið stefndi að því í nán­­­ustu fram­­­tíð að greiða tíu til 20 millj­­­arða króna á ári í arð til eig­anda síns og er arð­greiðsla þessa árs sú fyrsta af þeirri stærð­argráðu.

Til stóð að þessar arð­greiðslur myndu verða grunnur fyrir svo­kall­aðan Þjóð­­­ar­­­sjóð sem í átti að vera um 500 millj­­­arðar króna eftir tæpa tvo ára­tugi. Frum­varp um Þjóð­­ar­­sjóð er þó enn ósam­­þykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

auðlindamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár